53 bandarískir fangar látnir lausir á Kúbu

Yfirvöld á Kúbu hafa látið alla 53 póli­tísku banda­rísku fang­ana lausa eins og þeir geng­ust við að gera í tíma­móta­sam­komu­lagi sínu við Banda­ríkin sem kynnt var fyrir jól. Þetta stað­festa banda­rískir emb­ætt­is­menn við Reuters-frétta­stof­una.

Samn­ingur Kúbu og Banda­ríkj­anna sem kynntur var 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn er upp­haf auk­inna sam­skipta og við­skipta land­anna eftir meira en 50 ára við­skipta­bann Banda­ríkj­anna við Kúbu. Lausn fang­anna á Kúbu er sögð hafa sett jákvæðan tón fyrir við­ræður emb­ætt­is­manna frá báðum löndum í næstu viku þar sem koma á sam­skiptum land­anna í eðli­legt horf á ný.

Mikil leynd hefur ríkt um lausn fang­anna og nöfn þeirra hafa enn ekki verið birt. Það hefur sett vatn á myllu efa­semda­manna um nán­ari sam­skipti land­anna og þeirra sem gagn­rýnt hafa Banda­ríkja­stjórn fyrir að beita ekki nægum þrýst­ingi á Kúbu í mann­rétt­inda­málum.

Reuters hefur enn fremur eftir banda­rísku emb­ætt­is­mönn­unum að for­seta­emb­ættið muni leggja þing­inu til lista yfir alla þá fanga sem látnir hafa verið lausir og að það sé þings­ins að ákveða hvort nöfn fang­anna verði gerð opin­ber.

Banda­ríkin hafa þegar látið þrjá kúbverska fanga lausa en þeir höfðu verið dæmdir fyrir njósnir í Banda­ríkj­unum. Þá hefur banda­ríska hjálp­ar­starfs­mann­inum Alan Gross verið sleppt úr haldi kúbverskra yfir­valda, en sá hafði verið fang­els­aður fyrir njósnir.

[caption id="attachment_16635" align="alignnone" width="1024"] Alan Gross hafði setið í kúbversku fang­elsi í fimm ár þegar hann var lát­inn laus í des­em­ber síð­ast­liðnum.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár