Miðflokkurinn vill að Áslaug Arna breyti útlendingalögum og „hemji útgjöld“

Mið­flokk­ur­inn vill að Alþingi feli dóms­mála­ráð­herra að breyta útlend­inga­lögum á yfir­stand­andi þing­vetri. Þing­flokk­ur­inn segir kostnað vegna útlend­inga­mála hafa fylgt „lög­málum veld­is­vaxtar“ og að Ísland muni ekki fá neitt við ráðið nema gripið sé inn í.

Þingflokkur Miðflokksins stendur allur á bak við þingsályktunartillögu um útlendingamál, sem lögð var fram í vikunni.
Þing­flokkur Mið­flokks­ins stendur allur á bak við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um útlend­inga­mál, sem lögð var fram í vik­unni. Mynd: Facebook / Miðflokkurinn

Þing­flokkur Mið­flokks­ins hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi um að Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur verði falið að flytja frum­varp um breyt­ingu á útlend­inga­lögum „sem hafi að mark­miði að hemja útgjöld rík­is­sjóðs til mál­efna útlend­inga og auka skil­virkni í máls­með­ferð.“

Mið­flokk­ur­inn vill að ráð­herra leggi slíkt frum­varp fram eigi síðar en 1. mars, svo lög­festa megi breyt­ing­arnar fyrir þing­lok og að „áhersla verði lögð á þau mark­mið að tryggja að ákvörð­un­ar­tími um hvort umsókn hæl­is­leit­enda fái efn­is­lega með­ferð verði að hámarki 48 klukku­stundir og að nið­ur­staða efn­is­legrar máls­með­ferðar liggi fyrir innan sex mán­aða.“

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að inn­flytj­enda­mál á Íslandi ein­kenn­ist af „van­mætti stjórn­sýsl­unnar til að ráða við afgreiðslu umsókna innan við­un­andi tíma­marka,“ sem hafi leitt af sér sívax­andi útgjöld rík­is­sjóðs til mála­flokks­ins, sem fylgt hafi „lög­máli veld­is­vaxtar.

Segir þar einnig að hæl­is­leit­endur bíði í sumum til­vikum árum saman eftir því að fá nið­ur­stöðu. Með því sé mikið lagt á fólk sem hingað leitar og um leið ýti þetta undir „til­hæfu­lausar umsóknir.“

„Slíkum umsóknum er sér­stak­lega beint að ríkjum þar sem frest­un­ar­mögu­leik­arnir eru mestir. Úr verður skað­leg keðju­verkun, ekki síst fyrir þá sem þurfa mest á hjálp að halda,“ segir þing­flokkur Mið­flokks­ins í grein­ar­gerð­inni.

Einnig segir þing­flokk­ur­inn í grein­ar­gerð sinni að umsóknum um alþjóð­lega vernd hafi fjölgað hratt á Íslandi á und­an­förnum árum.

Þegar litið er upp úr þing­skjali Mið­flokks­ins og á tölur frá Útlend­inga­stofnun sést að umsóknum fjölg­aði úr 354 árið 2015 í 1.132 árið 2016, sem enn er metár hvað fjöld­ann varðar.[links]

Umsóknum fækk­aði svo í 1.096 árið 2017 og fækk­aði svo aftur árið 2018, er umsókn­irnar voru 800 tals­ins. Árið 2019 fjölg­aði þeim lít­il­lega og voru 867 en útlit er fyrir að þær verði færri í ár og raunar færri en þær hafa verið frá 2015. Alls sóttu 596 ein­stak­lingar um alþjóð­lega vernd á Íslandi á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2020.

Mið­flokk­ur­inn segir í grein­ar­gerð sinni, eins og áður var nefnt, að kostn­aður rík­is­ins vegna mála­flokks­ins hafi fylgt „lög­máli veld­is­vaxtar“ á und­an­förnum árum.

Vert er að taka fram að kostn­aður rík­is­ins við það sem er kallað „út­lend­inga­mál“ í ár er áætl­aður um fjórir millj­arðar króna. Það er mjög svipuð upp­hæð og kostn­að­ur­inn hefur verið und­an­farin ár. Gert er ráð fyrir því að kostn­að­ur­inn verði svip­aður næstu árin.

„Keðjuverkun“ sem ríkið ráði ekki við

Þing­flokkur Mið­flokks­ins segir að íslensk stjórn­völd verði „að ná stjórn á aðgerðum lands­ins í flótta­manna- og inn­flytj­enda­málum“ ella haldi áfram „keðju­verkun sem 350.000 manna ríki mun ekki ráð við“ og segja lög­gjöf um mála­flokk­inn haldna alvar­legum ágöllum.

„Hún ýtir undir þessa þróun, tekur lítið til­lit til raun­veru­leik­ans og er ekki til þess fallin að beina aðstoð­inni að þeim sem þurfa mest á henni að halda. En það þarf líka að fylgja þeim lögum og reglum sem gilda og hafa virkað. Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin var ekki sett að ástæðu­lausu. Samkvæmt henni á að afgreiða hæl­is­um­sóknir í því Evr­ópu­landi sem umsækj­and­inn kemur fyrst til. Eftir að íslensk stjórn­völd fóru að víkja frá henni varð landið fyrst að áfanga­stað þeirra sem ekki eiga til­kall til alþjóð­legrar verndar. Því skyldu menn fylgja regl­unum ef Ísland aug­lýsir sig sem land sem lítur fram hjá þeim?“ segir þing­flokk­ur­inn í grein­ar­gerð sinni.

Mið­flokks­fólk kallar sem áður segir eftir skil­virkri lög­gjöf þar sem „umsóknir eru afgreiddar hratt“ og að allar „reglur sem not­aðar eru til að skapa óraun­hæfar vænt­ingar um Ísland sem áfanga­stað“ verði afnumdar.

„Aðrar Norð­ur­landa­þjóðir keppa nú hver við aðra um að draga úr vænt­ingum fólks um dval­ar­leyfi. Allar nema Ísland. Ef við skerum okkur úr á þessu sviði meðal nor­rænu land­anna verður ekki við neitt ráðið. Það hefur varla farið fram hjá fólki að þrátt fyrir að landið sé nán­ast lokað vegna heims­far­ald­urs­ins kemur hingað enn mik­ill fjöldi fólks sem telur Ísland væn­leg­asta kost­inn fyrir hæl­is­um­sókn,“ segir í grein­ar­gerð­inni, sem lesa má í heild sinni á vef Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár