Stendur við orð sín og biðst ekki afsökunar

Þing­flokks­for­maður Pírata segir að ef gagn­rýni hans á Mið­flokk­inn verði tekin á dag­skrá hjá for­sætis­nefnd – eins og þing­maður Mið­flokks­ins hefur lagt til – sé Alþingi komið á stað sem eng­inn þing­maður kæri sig um.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­flokks­for­maður Pírata, og Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, áttu í orða­skaki á Alþingi í dag en Þor­steinn sagði undir liðnum störf þings­ins að stöðva þyrfti þá orð­ræðu sem Helgi Hrafn við­hefði. Forseti Alþingis og for­sætis­nefnd þyrfti að taka málið á dag­skrá og sjá til þess að slík orð­ræða væri ekki við­höfð í þingsölum Alþingis.

Forsaga máls­ins er sú að við umræðu í gær um frum­varp Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um mál­efni inn­flytj­enda gagn­rýndi Helgi Hrafn þing­menn Mið­flokks­ins harð­lega fyrir það hvernig orð­ræðu þeir við­hefðu um útlend­inga­mál hér á landi, en hann sagði hana meðal ann­ars líkj­ast for­dóma­fullri orð­ræðu um sam­kyn­hneigða á tíunda ára­tugi síð­ustu aldar og gyð­inga­hatur.

Þor­steinn tók málið upp undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag og sagði að nokkur umræða hefði orðið um orð­ræðu í stjórn­málum og hefðu þing­menn áður ýmist stigið á stokk „blý­sperrtir“ og lofað því að haga sér vel eða sagst aldrei hafa notað orð­ræðu sem væri ósæmi­leg. Núna nokkrum vikum seinna væri sið­bótin frá.

„Hér í gær­kvöldi var orð­ræða í gangi sem for­seti, ásamt for­sætis­nefnd, hlýtur að taka til athug­unar þar sem teiknuð var upp mynd af heilum þing­flokki með lítið bursta­skegg og allir greiddir til vinstri. Það er ekki líð­andi, herra for­seti. Og það er ekki líð­andi að heill þing­flokkur sé sak­aður um til­burði sem nálgist gyð­inga­hatur, og það kom­andi frá stuðn­ings­manni borg­ar­stjórnar sem setti við­skipta­bann á Ísrael. Hversu mikil getur hræsnin orðið, herra for­seti?“

Þá vildi hann meina að um ganga Alþingis reik­aði stefnu­laus lýður með lúið bók­hald í vas­anum sem ætl­aði að kenna öllum hinum hvernig ætti að haga sér. „Í gær­kvöldi gat popúlisti úr ein­stefnu­flokknum ekki stað­ist mátið að hefja upp sama söng og hinn sið­prúði félags­mála­ráð­herra sem er nýber að því að hafa farið á svig við lög um ráð­herra­á­byrgð og þing­sköp. Hann bland­aði sér í hóp­inn til að mála þennan hræði­lega þing­flokk þessum gyð­inga­hat­urs­homma­fælni­stimpli sem er alger­lega óþol­andi,“ sagði Þor­steinn.

Stendur við orð sín

Helgi Hrafn tók til varna undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta og sagði að í umræðum á Alþingi í gær hefði hann tekið fyrir ýmsar birt­ing­ar­myndir andúðar á minni­hluta­hópum, svo sem hommum og gyð­ingum í gegnum tíð­ina.

„Þetta að ég skyldi nefna þessa birt­ing­ar­mynd fór ber­sýni­lega fyrir brjóstið á Mið­flokknum og skildi kannski engan undra. Ég vildi bara koma hingað upp og segja það að ég tek það nærri mér sem þing­maður og lýð­ræð­is­sinni að hér sé kallað eftir því að þaggað sé niður í þing­mönnum fyrir það að gagn­rýna Mið­flokk­inn.“

Helgi Hrafn sagði að hann hefði valið orð sín af kost­gæfni og nákvæmni. „Ég stend við þau, ég mun ítreka þau, ég biðst ekki afsök­unar og læt Mið­flokk­inn um að leið­rétta það sem honum finnst hafa farið úrskeiðis í gær.“

Enginn beðið um afsökunarbeiðni

Þor­steinn steig aftur í pontu undir sama lið og sagði að nú hefði komið í ljós „enn einu sinni“ að hann hefði haft rétt fyrir sér í fyrri ræðu.

„Nú er komið hér upp og beitt þeirri aðferð að menn skuli sekir þangað til þeir sanni sak­leysi sitt. Og þetta er enn ein birt­ing­ar­myndin þess sem ég ræddi hér áðan, herra for­seti, og for­seti verður að taka í taumana núna vegna þess að þetta og þessi fram­koma og þessi orð­ræða og að gera fólki upp skoð­anir er gjör­sam­lega frá­leit. Það er nátt­úru­lega í sjálfu sér áhuga­vert að hátt­virtur þing­maður skuli taka það hér upp að fyrra bragði að hann muni ekki biðj­ast afsök­unar. Það hefur eng­inn beðið hann um það. Ekki nokkur ein­asti maður. En ef hann finnur ein­hvers staðar hjá sér í koll­inum þörf á því þá er það eitt­hvað sem hann verður að eiga við sjálfan sig, því það hefur eng­inn beðið hann um það. Ekki nokkur skap­aður maður,“ sagði hann.

Sér ekki eftir stöku orði

Helgi Hrafn svar­aði í annað sinn og sagði að hann væri vanur að biðj­ast afsök­unar á því þegar hann gerði eða segði eitt­hvað sem hann síðan sæi eftir – eða sem hann teldi að betur mætti fara.

„Það er ein­fald­lega ekki til­fellið núna. Ég tek það fram bara til þess að hafa það á hreinu; það kom ekki til greina. Ég sé ekki eftir stöku orði sem ég lét falla hér í gær. Og ekki ennþá eftir neinu sem ég hef sagt í dag. Það sem ég sagði í gær var að vilj­andi eða óvilj­andi – með­vitað eða ómeð­vitað – þá er orð­ræða Mið­flokks­ins í mál­inu sem við vorum að ræða hér í gær og í öðrum málum sem varða útlend­inga til þess fallin að auka útlend­inga­andúð í land­inu. Hvort sem það er ætlun Mið­flokks­ins eða ekki þá ber hann ábyrgð á því.

Og ég mun halda áfram þessum mál­flutn­ingi eins lengi og Mið­flokk­ur­inn heldur uppi sínum. Og þannig er það. Og ef þetta verður eitt­hvað tekið til umræðu að fara að þagga niður í þing­mönnum hér þegar þeir gagn­rýna Mið­flokk­inn þá erum við komin á ein­hvern stað sem eng­inn annar þing­maður vilji sjá hér á Alþingi,“ sagði Helgi Hrafn.

Niðurstöðu forseta Alþingis ekki áfrýjað

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sagði í kjöl­farið að hann teldi betur fara á því að menn ættu orða­skipti um þetta undir öðrum dag­skrár­lið heldur en fund­ar­stjórn for­seta.

„Að öðru leyti er það eitt um að segja að það er í valdi þess for­seta sem fundi stýrir hverju sinni að leggja mat á orð­færi þing­manna og hvort þar þurfi að gera athuga­semdir við. En athafnir eða athafna­leysi for­seta í slíkum til­vikum eru end­an­leg og þeirri nið­ur­stöðu verður ekki áfrýjað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár