Mynd: Marco Evaristti

Blóðrauðir hverir, úlfaldar og ísjakar

Marco Evaristti, sem hellti rauðum matarlit í Strokk, segist vera nátt­úrverndar­sinni. Hann málaði dýr og náttúru í Sahara, á Mont Blanc, Grænlandi og Noregi.

Marco Evaristti, lista­maðurinn sem hellti rauðum matarlit í Strokk á Geysis­svæðinu í Haukadal á föstudag hefur komið víða við á ferli sínum. Grænland, Mont Blanc, Sahara, Noregur og nú Ísland – allt eru þetta staðir þar sem hann hefur framkvæmt svipaða gjörninga undir nafninu „Pink State“.

Sjálfur lítur hann svo á að um list sé að ræða og kallar verkið, hverinn sem gaus bleiku, the 5th Pink State, The Rauður Thermal Project. Á heimasíðu sinni talar hann um að fegurð nátt­úrunnar sé alltaf jafn yfir­þyrmandi. Hann geri listaverk á og í nátt­úrunni sem endist aðeins jafn lengi og liturinn sjálfur. Vill hann meina að mannúð, náttúru­vernd og bætur á umhverfinu séu meginþemu þessara gjörninga.

Þemað varð til árið 2004, þegar hann fór til Grænlands með það að marki að mála ísjaka rauðan. Sama ár hafði Illulissat ís-fjörðurinn í Disco Bay flóanum á Vestur Grænlandi verið settur á heims­minjaskrá UNESCO. Fjörðurinn er 56 kílómetra langur og fullur af risa­stórum borgar­ísjökum úr einum afkasta­mesta skrið­jökli á norður­hveli, Sermeq Kujalleq. Fjörðurinn hafði einnig verið í umræðunni vegna loftlags­breytinga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár