Vantraustið tekið fyrir á næstu tveimur sólarhringunum

Forseti Alþingis seg­ist vera að ræða við stjórn og stjórn­ar­and­stöðu um hent­ugan tíma fyrir afgreiðslu á van­traust­s­til­lögu á hendur Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Allir sam­mála um að vilja ekki hafa svona hang­andi yfir sér.

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis seg­ist gera ráð fyrir að kosið verði um van­traust á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra á næstum tveimur sól­ar­hringum.

Hann segir í sam­tali við Kjarnann að hann sé nú að heyra í öllum aðilum vegna van­traust­s­til­lögu sem þing­flokkar Pírata og Sam­fylk­ingar hafa lagt fram á hendur Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra.

[links]„Ég er bara í því núna að heyra í aðilum, flutn­ings­mönnum þess­arar til­lögu, for­sæt­is­ráð­herra og öðrum og sjá hvenær við getum komið þessu að,“ segir Stein­grímur.

Hann segir það skipta alla máli að klára þetta sem fyrst, en ganga þurfi úr skugga um að full­skipað sé í öllum flokkum. Vera kann að ein­hverjir séu til dæmis úti á landi og þá þarf að kalla þá þing­menn til baka.

„Það þarf líka að kom­ast til dæmis að sam­komu­lagi um ræðu­tíma og annað og síðan er hægt að kýla á þetta. Yfir­leitt eru báðir aðilar sam­mála um að hafa svona ekki hang­andi yfir sér.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­flokks­for­maður Pírata sendi yfir­lýs­ingu í morgun um að hefð sé fyrir því að van­traust­s­til­lögur séu teknar á dag­skrá þings­ins við fyrsta tæki­færi.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fimm hefðu allir tekið þátt í umræðu um að leggja fram van­traust­s­til­lögu á Sig­ríði vegna fram­göngu hennar í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Þing­flokks­for­menn þeirra fund­uðu í gær­morgun þar sem málið var rætt. Til stóð að annar fundur færi fram í dag, þriðju­dag, þar sem þing­flokks­for­menn og for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna til að taka ákvörðun um hvort og þá hvenær til­laga um van­traust yrði lögð fram. Ljóst er að þau áform hafa breyst og nú hafa þing­menn tveggja flokka lagt fram van­traust­s­til­lög­una. Kom­ist til­lagan ekki á dag­skrá á fimmtu­dag er ljóst að bíða verður eftir afgreiðslu hennar í nokkurn tíma, þar sem nefnd­ar­vika er á Alþingi í næstu viku og engir þing­fundir haldn­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár