Rúmlega þrjátíu ný smit í gær – Minnihluti í sóttkví

Alls greindust þrjá­tíu og þrír ein­stak­lingar með COVID-19 hér á landi í gær. Nítján þeirra voru ekki í sótt­kví við grein­ingu.

Alls greindust 33 ein­stak­lingar með COVID-19 hér á landi í gær. Innan við helm­ingur smit­aðra var í sótt­kví við grein­ingu, eða 14 tals­ins og því voru 19 ekki í sótt­kví.

Alls voru tæp­lega 3.000 sýni tekin í gær, að landamæra­skimun með­tal­inni. Þar af voru 1.225 sýni tekin úr fólki sem var með ein­kenni. Tuttugu og fjögur ein­kenna­sýni reynd­ust jákvæð, svo hlut­fall smit­aðra í þeim hópi var 1,96 pró­sent.

Fjórtan daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa á Íslandi heldur áfram að hækka og er nú komið upp í 91,1.

Fjögur sýni reynd­ust jákvæð á landa­mærum, en beðið er eftir nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingum í öllum til­fellum. Alls voru 860 sýni tekin í landamæra­skimunum.

Alls eru 352 ein­stak­lingar nú í ein­angrun með COVID-19 smit og tæp­lega 2.500 manns í sótt­kví eftir að hafa verið útsett fyrir smiti, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is. Einn er inn­lagður á sjúkra­hús vegna COVID-19

Til við­bótar eru tæp­lega tvö þús­und manns í sótt­kví eftir að hafa komið hingað til lands und­an­farna daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár