Samkeppniseftirlitið: Icelandair nýtur forgangs og yfirvöld verða að breyta því

Fyr­ir­komu­lag Isavia á úthlutun afgreiðslu­tíma fyrir flug­fé­lög á Kefla­vík­ur­flug­velli hindrar sam­keppni og Icelandair nýtur sam­keppn­is­for­skots hjá Isavia. Þetta kemur fram í nýju áliti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem vill að inn­an­rík­is­ráðu­neytið og Sam­göngu­stofa grípi til aðgerða vegna þessa. Almenn­ingur hafi hag af því að virk sam­keppni verði sett í for­gang.

Und­an­farin ár hafa keppi­nautar Icelandair ítrekað kvartað yfir því að Icelandair njóti sam­keppn­is­for­skots, þar sem félagið hafi fengið for­gang að afgreislu­tímum á flug­vell­inum milli 7 og 8 á morgn­anna og milli 16 og 17:30 síð­degis. „Rannsókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins leiðir í ljós að afgreiðslu­tímar á þessum tíma­bilum eru sér­stak­lega mik­il­vægir flug­fé­lögum sem vilja koma á sam­keppni í tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku, með Kefla­vík­ur­flug­völl sem tengi­stöð. Rann­sóknin leiðir enn­fremur í ljós að Icelandair hefur ekki aðeins for­gang að afgreiðslu­tímum sem félag­inu hefur verið úthlutað áður, heldur einnig nýjum afgreiðslu­tímum sem stafa af auk­inni afkasta­getu,“ segir í áliti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Isavia hefur mót­mælt þessum kvört­unum og er ósam­mála því að úthlutun afgreiðslu­tíma hafi skað­leg áhrif á sam­keppni. Það sé nóg af lausum afgreiðslu­tímum utan álags­tíma. „Þá bera sam­skipti við Sam­göngu­stofu með sér að stofn­unin hefur tak­mark­aðan skiln­ing á þeim sam­keppn­is­hindr­unum sem tengj­ast úthlutun á afgreiðslu­tímum á Kefla­vík­ur­flug­velli og Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur bent á um ára­bil. Hefur stofn­unin virt að vettugi til­mæli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að fram­kvæma sam­keppn­is­mat við end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi við úthlutun á afgreiðslu­tímum,“ segir í álit­inu.

„Sam­keppni í áætl­un­ar­flugi til og frá land­inu hefur mikla þýð­ingu fyrir almenn­ing og atvinnu­starf­semi, ekki síst ferða­þjón­ustu. Þar sem sam­keppni hefur kom­ist á höfum við notið þess í lægri flug­far­gjöldum. Kefla­vík­ur­flug­völlur er eina gátt okkar til og frá land­inu. Stjórn­völdum ber því skylda að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að allir keppi­nautar sitji þar við sama borð,“ segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í til­kynn­ingu frá eft­ir­lit­inu.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið beinir því til Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra að hún beiti sér fyrir því að „ráð­ist verði í aðgerðir til þess að draga úr sam­keppn­is­hömlum sem stafa af fyr­ir­komu­lagi við úthlutun afgreiðslu­tíma til flug­fé­laga á Kefla­vík­ur­flug­velli.“

Upp­bygg­ing Kefla­vík­ur­flug­vallar og flug­stöðv­ar­innar á næstu 25 árum gerir ráð fyrir að afkasta­geta vall­ar­ins muni tvö­fald­ast. Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að það séu sterkar vís­bend­ingar um að þess­ari aukn­ingu á afkasta­getu sé ætlað að mæta þörfum Icelandair, en ekki minni keppi­nauta. „Þetta má m.a. ráða af þeirri afstöðu til sam­keppn­is­sjón­ar­miða sem birst hefur í svörum Isavia.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár