Umræðum um rammaáætlun frestað og reynt að greiða fyrir þingstörfum

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, hefur ákveðið að fresta umræðu um ramma­á­ætlun og breyt­ing­ar­til­lögur á henni. Þetta til­kynnti hann á þing­fundi nú í kvöld.

Þing­störf hafa verið í upp­námi síð­ustu vikur vegna breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar um að færa fjórar, og síðar þrjár, virkj­anir í nýt­ing­ar­flokk. Stjórn­ar­and­staðan hefur mót­mælt þessu harð­lega, því að lagt sé til að færa í nýt­ing­ar­flokk virkj­un­ar­kosti sem verk­efn­is­stjórn um ramma­á­ætlun hefur ekki lokið við að meta, og ekki síst því að það skuli vera atvinnu­vega­nefnd sem tekur þessa ákvörðun um að breyta til­lögu umhverf­is­ráð­herra um að færa aðeins Hvamms­virkjun í nýt­ing­ar­flokk.

Með því að fresta umræð­unni sagð­ist Einar ætla að freista þess að greiða fyrir þing­störfum og reyna að finna lausnir. Málið sé ekki farið frá þing­inu en hann búist við því að nú muni fást svig­rúm til þess að vinna í mál­inu.

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn fögn­uðu þess­ari ákvörðun Einars mikið, enda hafa þeir und­an­farna daga lagt til að málið verði tekið af dag­skrá þings­ins.





Það er fagn­að­ar­efni að þing­for­seti skuli í kvöld hafa tekið ákvörðun um að fresta umræðu um Ramma­á­ætlun. Nú gefst loks...

Posted by Árni Páll on Tuesday, May 26, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár