Guðni Th.: „Sýnum hvað í okkur býr“

Forseti Íslands hvetur lands­menn til sam­stöðu í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins. „Í strit­inu miðju stoðar lítt að velta vöngum yfir því hvað hefði kannski mátt gera öðru­vísi, ræðum það síðar,“ skrifar for­set­inn á Facebook í kvöld.

Forsetinn birti með færslu sinni þessa teiknuðu mynd af honum sjálfum með grímu.
For­set­inn birti með færslu sinni þessa teikn­uðu mynd af honum sjálfum með grímu.

„Við erum í vanda,“ skrifar Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, í færslu á Facebook í kvöld. For­set­inn hvetur lands­menn til að kynna sér allar upp­lýs­ingar um þær hertu sótt­varn­ar­að­gerðir sem hafa verið kynntar og hvetur til sam­stöðu þjóð­ar­innar.



„Við gerðum það í vor og getum það enn. Einhugur kemur okkur öllum til góða en lang­mest þeim sem á því þurfa helst að halda, fólk­inu sem er veikast fyrir og þeim sem sinna sjúkum. Í strit­inu miðju stoðar lítt að velta vöngum yfir því hvað hefði kannski mátt gera öðru­vísi, ræðum það síðar,“ segir for­set­inn.

Hann hvetur alla til að fylgja til­mælum og leið­bein­ingum og „verða þannig að liði í þessu ágæta sam­fé­lagi okkar.“



„Samstaða í þágu þjóðar, þraut­seigja í verki. Látum þetta sann­ast um okkur. Við erum öll almanna­varnir. Sýnum hvað í okkur býr,“ skrifar for­seti Íslands.

Ávarpaði óþreyjuna í samfélaginu í færslu í gær

For­set­inn skrif­aði einnig um veiruna á Facebook í gær, þar sem hann ávarp­aði þá óþreyju og jafn­vel gremju sem má merkja víða í sam­fé­lag­inu, nú þegar veiran hefur blossað upp að nýju af miklum krafti.

„Vissu­lega getur verið hægð­ar­leikur fyrir þá, sem ekki þurfa að axla ábyrgð á aðgerðum, að benda á sitt­hvað í okkar sótt­vörnum sem mætti vera öðru­vísi, finna heim­ildir á net­inu um önnur við­brögð ann­ars staðar og þar fram eftir göt­unum. Brýnast er þó að við gerum sjálf það sem í okkar valdi stendur til að halda veirunni í skefjum,“ sagði for­set­inn í þeirri færslu sinni, þar sem hann sendi jafn­framt öllum þeim sem sýkst hafa bestu óskir um góðan bata og færði þeim sem eru að „glíma við þennan vágest í þágu okkar allra“ stuðn­ings­kveðjur.

„Við skulum öll reyna að létta þeim verkið með því að sinna okkar eigin sótt­vörnum og fara að eigin frum­kvæði og hyggju­viti eftir leið­bein­ingum og til­mælum sem gagn­ast sam­fé­lag­inu í heild. Verum hluti lausn­ar­innar, ekki vand­ans,“ skrif­aði Guðni þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár