Mynd: Bára Huld Beck

Er tími fimm flokka stjórna eða minnihlutastjórna runninn upp?

Á hinum Norð­ur­lönd­unum eru átta til tíu flokkar á þingi og hefð er fyrir myndum rík­is­stjórna margra flokka eða minni­hluta­stjórna sem njóta verndar ann­arra gegn falli.

Það hvort Flokkur fólks­ins nái inn manni í kom­andi kosn­ingum getur ráðið úrslitum um myndun næstu rík­is­stjórnar ef styðj­ast á við hefðir í þeim efnum, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar.

Fylgi Flokks fólks­ins mælist 4,7 pró­sent og því senni­legt að flokk­ur­inn nái inn kjör­dæma­kjörnum manni í ein­hverju kjör­dæmi. Ef flokk­ur­inn bætir við sig nokkrum atkvæðum, og fer yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn, þá fær hann jöfn­un­ar­menn. Og þá, miðað við núver­andi stöðu, er rík­is­stjórnin fallin. Hún næði ein­ungis 31 þing­manni út úr 47,8 pró­sent sam­eig­in­legu fylgi sínu.

Ef Flokkur fólks­ins næði inn einum kjör­dæma­kjörnum þing­manni en engum jöfn­un­ar­manni myndi rík­is­stjórnin rétt halda með 32 þing­menn gegn 31. Ef Flokkur fólks­ins næði hins vegar ekki inn á þing myndi það þýða að stjórn­ar­flokk­arnir fengu 33 þing­menn og hefðu þriggja manna meiri­hluta.

Fimm flokka þarf til án Sjálfstæðisflokks

Til að mynda rík­is­stjórn án Sjálf­stæð­is­flokks þyrfti alltaf fimm flokka, eða minni­hluta­stjórn. Þannig væri til að mynda hægt að mynda fimm flokka stjórn frá miðju til vinstri með aðkomu Fram­sókn­ar­flokks, Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Pírata og Sós­í­alista­flokks (53,7 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi), sem hefði 36 þing­menn á móti 27, ef Flokkur fólks­ins nær ekki inn. Slík stjórn myndi skilja Sjálf­stæð­is­flokk, Miðflokk og Viðreisn, allt flokka sem stað­setja sig hægra megin við þá flokka sem hana myndu mynda, eftir í stjórn­ar­and­stöðu. Fordæmi eru fyrir fimm flokka stjórnum á hinum Norð­ur­lönd­unum. Sitjandi rík­is­stjórn Finn­lands sam­anstendur til að mynda af slíkum fjölda flokka.

Sá mögu­leiki væri einnig fyrir hendi að t.d. þrír stærstu flokk­arnir innan þess­arar blokkar yrðu minni­hluta­stjórn með 24 þing­menn, en að Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn myndu verja hana falli gegn því að fá til­tekin stefnu­mál sín í far­veg. Eða að Sjálf­stæð­is­flokkur og einn flokkur til myndi minni­hluta­stjórn, fáist aðrir tveir flokkar til að verja hana falli.

Það er fyr­ir­komu­lag sem tíðkast víða á Norð­ur­lönd­unum en minni­hluta­stjórnir eru við stjórn­völ­inn í Noregi, Svíþjóð og Danmörku sem stendur. Flokka­kraðak er ekki nýtt fyr­ir­bæri í stjórn­málum þessa helstu nágranna­landa okkar. Það eru níu flokkar á þingi í Noregi og kann­anir benda til þess að sá fjöldi hald­ist í kosn­ingum þar í landi um næstu helgi. Í Danmörku eru flokk­arnir tíu auk þess sem fjórir þing­menn koma frá Færeyjum og Græn­landi. Í Finn­landi eru tíu flokkar á þingi, og tveir þeirra ein­ungis með einn þing­mann. Í Svíþjóð eru flokk­arnir átta.

Er kominn tími á minnihlutastjórn?

Engin hefð er þó fyrir því að mynda minni­hluta­stjórn í kjöl­far kosn­inga hér­lendis. Síðasta slíka stjórnin var mynduð í nokkra mán­uði snemma árs 2009 þegar Sam­fylk­ingin og Vinstri græn mynd­uðu minni­hluta­stjórn fram að kosn­ingum sem fóru fram í apríl það ár. Þeir flokkar voru með 27 þing­menn á þeim tíma en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn varði stjórn­ina falli með sína sjö þing­menn.

Þeir flokkar sem eru í hægra hólfi stjórn­mál­anna, Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur, Viðreisn og Mið­flokkur, geta fræði­lega myndað fjög­urra flokka rík­is­stjórn með í mesta lagi 35 þing­menn. Nái Flokkur fólks­ins inn færi sá fjöldi þó niður í 33.

Ólíklegt verður að telj­ast að þessi fjórir flokkar nái saman í ljósi þess að per­sónu­leg sam­skipti ýmissa for­svars­manna þeirra eru með þeim hætti að vart er flötur á sam­starfi, auk þess sem Viðreisn hefur sett stórar kerf­is­breyt­ingar sem Sjálf­stæð­is­flokkur og Mið­flokkur eru mót­fallnir, efst á kosn­inga­stefnu sína. Þar ber helst að nefna breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og gjald­miðla­mál.

Þá er ótal­inn sá mögu­leiki að sitj­andi stjórn­ar­flokkar taki einn nýjan flokk með sér í rík­is­stjórn. Sá flokkur yrði ekki Sam­fylk­ing, Píratar eða Sós­í­alista­flokkur Íslands, enda hafa þeir allir úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Því yrði um Viðreisn (sex þing­menn) eða Miðflokk (fjóra þing­menn) að ræða. Hvort það stærð­fræði­dæmi myndi ganga upp í raun­veru­leik­anum, þegar máta þyrfti stefnu­mál flokk­anna saman og mynda starf­hæfa rík­is­stjórn, er svo önnur spurn­ing.

Framsókn hressist en Vinstri græn og Píratar að dala

Litlar breyt­ingar urðu á fylgi flokka milli kosn­inga­spáa. Helst ber að nefna að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætti við sig 0,9 pró­sentu­stigum og mælist nú með einu pró­sentu­stigi meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Þá halda Vinstri græn áfram að dala og hafa nú tapað tveimur pró­sentu­stigum frá 25. ágúst, og mæl­ast með 11,7 pró­sent fylgi. Verði það nið­ur­staðan á kom­andi kjör­degi mun flokkur for­sæt­is­ráð­herra tapa næstum þriðj­ungi af fylgi sínu milli kosn­inga.

Píratar hafa líka verið að missa flugið og eru nú að mæl­ast með 2,2 pró­sentu­stigi minna en þeir mæld­ust með um miðjan síð­asta mánuð, eða 10,4 pró­sent. Það er þó enn yfir kjör­fylgi Pírata 2017.

Þótt flokkur Ingu Sæland mælist minnstur á meðal þeirra sem eiga möguleika á að koma manni inn á þing þá getur endanlegt fylgi hans ráðið úrslitum um myndum ríkisstjórna, þrátt fyrir að Flokkur fólksins yrði ekki í þeim ríkisstjórnum.
Þótt flokkur Ingu Sæland mælist minnstur á meðal þeirra sem eiga mögu­leika á að koma manni inn á þing þá getur end­an­legt fylgi hans ráðið úrslitum um myndum rík­is­stjórna, þrátt fyrir að Flokkur fólks­ins yrði ekki í þeim rík­is­stjórnum.

Stöð­ug­leiki virð­ist vera kom­inn í fylgi Sós­í­alista­flokks­ins sem hefur verið á svip­uðum slóðum í þremur kosn­inga­spám í röð eftir hraða aukn­ingu vik­urnar á undan. Mið­flokk­ur­inn virð­ist ekk­ert vera að ná að hress­ast og hefur nú ekki mælst með yfir sjö pró­sent fylgi frá því um miðjan júní. Sam­fylk­ingin er við kjör­fylgi, Viðreisn rúmum þremur pró­sentu­stigum yfir því og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn um pró­sentu­stigi undir því sem sem hann fékk haustið 2017. Sá síð­ast­nefndi er áfram sem áður langstærsti flokkur lands­ins með 24,3 pró­sent fylgi.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 18 - 24. ágúst (vægi 18,0 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 13 – 23. ágúst (9,6 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 16. ágúst-29. ágúst (vægi 35,9 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 24 - 3. sept­em­ber (vægi 36,5 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár