Fimm afleikir vinstri stjórnarinnar

Fyrsta ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur eftir kosningarnar 2009 á Bessastöðum 10. maí 2009. Ríkisstjórnin breyttist ört á kjörtímabilinu, eða alls fimm sinnum.
Fyrsta rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur eftir kosn­ing­arnar 2009 á Bessa­stöðum 10. maí 2009. Rík­is­stjórnin breytt­ist ört á kjör­tíma­bil­inu, eða alls fimm sinnum. Mynd: stjornarrad.is

Íslend­ingar eru oft fljótir að gleyma. Vandræði sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, sem hafa verið af ýmsum toga á kjör­tíma­bil­inu, hafa oft dregið athygl­ina frá for­tíð­inni. Síðasta rík­is­stjórn, mynduð af Sam­fylk­ing­unni og Vinstri­hreyf­ing­unni – grænu fram­boði, var þó ekki með allt sitt á hreinu, þótt henni hafi tek­ist vel upp á ýmsum sviðum.

Þvert á móti tóku með­limir hennar nokkrar ákvarð­anir sem munu sögu­lega telj­ast afleitar. Kjarninn tók saman þær helstu í apríl 2014, um ári eftir að vinstri­st­jórnin lét af störfum. Listinn hefur verið upp­færður þar sem við á.

5. Ices­ave 1

„Ég var nú eig­in­lega bara orð­inn leiður á því að hafa þetta hang­andi yfir mér,“ sagði Svavar Gests­son í við­tali við Morg­un­blaðið 6. júní 2009. Hann hafði þá stýrt samn­inga­nefnd Íslands vegna Ices­a­ve-­reikn­ing­anna sem náði sam­komu­lagi sem í dag­legu tali er aldrei kallað annað en Ices­ave 1. Þremur dögum áður hafði Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, sagt Alþingi að ekki stæði til að ganga frá „ein­hverju sam­komu­lagi á morgun eða ein­hverja næstu daga“.

Skemmst er frá því að segja að allt varð vit­laust í sam­fé­lag­inu vegna þessa samn­ings. Bæði þóttu kjörin sem samið var um þess eðlis að Ísland myndi aldrei ráða við þau og stór hluti þjóð­ar­innar var líka þeirrar skoð­unar að ríkið ætti ekk­ert að axla þessar einka­skuldir Lands­bank­ans.

Eftir margra mán­aða hark og breyt­ingar voru lögin loks sam­þykkt á Alþingi 30. des­em­ber 2009. For­seti Íslands synj­aði þeim stað­fest­ingar nokkrum dögum síðar og málið fór þaðan í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í henni sögðu 93,2 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði nei við samn­ingn­um. Já sögðu 1,8 pró­sent. Það er lík­ast til fátt sem klauf þjóð­ina frá þing­inu sínu jafn skarpt og Ices­ave 1. Og í þann klofn­ing glittir enn í dag.

4. Versti Banki Sögunnar

VBS Fjár­fest­ing­ar­banki fékk 26,4 millj­arða króna lán frá rík­is­sjóði í mars 2009, mán­uði eftir að rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og VG tók við. Bankinn núvirti 9,4 millj­arða króna af lán­inu, færði sem eign og gat þannig sýnt fram á sýnd­ar­heil­brigði. Með því keypti VBS sér líf­tíma sem hann stóð, væg­ast sagt, ekki undir.

VBS fór loks í þrot í mars 2010. Lýstar kröfur í búið voru 48 millj­arðar króna og ljóst að ein­ungis brota­brot feng­ist upp í þær. Síðar kom í ljós að staða VBS hafði verið svo slæm á þeim aukna líf­tíma sem ríkið veitti honum, og var meðal ann­ars nýttur í ýmiss konar gjörn­inga sem kröfu­hafar, slita­stjórn og ákæru­valdið hafa síðar þurft að reyna að vinda ofan af og/eða upp­lýsa um, að Seðla­banki Íslands neydd­ist til að lána bank­anum 53 millj­ónir króna í ágúst 2009 til að hann gæti borgað laun. Morg­un­ljóst virð­ist hafa verið að VBS, sem stundum er sagður skamm­stöfun fyrir Versta Banka Sögunnar, átti aldrei mögu­leika á að lifa af og því er óskilj­an­legt að rík­is­stjórn þess tíma hafi veitt honum leng­ingu í heng­ing­ar­snör­unni.

3. Landsdómur

Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu í skýrslu sinni að nokkrir íslenskir ráð­herrar hefðu sýnt af sér van­rækslu í starfi í aðdrag­anda hruns­ins. Þing­manna­nefnd sem skipuð var til að fjalla um skýrsl­una komst að þeirri nið­ur­stöðu í sept­em­ber 2010 að ákæra ætti fjóra fyrr­ver­andi ráð­herra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur og Björgvin G. Sig­urðs­son, fyrir Lands­dómi vegna þess­arar van­rækslu. Þegar alþing­is­menn kusu um málið varð nið­ur­staðan hins vegar sú að ein­ungis Geir var kærður.

Málið var rammpóli­tískt og allt varð hrein­lega vit­laust þegar nokkrir þing­menn Sam­fylk­ingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins en hlífa sínum flokks­mönnum. Lands­dóms­mál­inu lauk með því að Geir var fund­inn sekur um einn ákæru­lið en þeir voru upp­haf­lega sex. Honum var ekki gerð refs­ing. Geir kærði máls­með­ferð­ina til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, þar sem málið er enn til með­ferðar. Geir er nú sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum.

2. Sparisjóðurinn í Keflavík

Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík var ónýt fjár­mála­stofnun fyrir banka­hrunið. Það var meðal ann­ars stað­fest í svartri skýrslu sem Fjár­mála­eft­ir­litið vann um hann og var skilað inn mán­uði áður en allt hrundi. Samt var ákveðið að leyfa sjóðnum að lifa áfram eftir banka­hrun og ráða­menn töl­uðu um hann sem verð­andi hryggjar­stykki í nýju spari­sjóða­kerfi. Það sem verra var er að hann hélt áfram að safna inn­lánum með þeim afleið­ingum að tapið vegna hans jókst stór­kost­lega.

Alls fékk sjóð­ur­inn að lifa í 30 mán­uði eftir banka­hrunið þrátt fyrir að rekstr­ar­for­sendur hans hafi algjör­lega brostið þá. Á því tíma­bili tókst honum að tapa 46,6 millj­örðum króna. Þegar sjóð­ur­inn fór loks form­lega á höf­uðið í apríl 2010 var nýr spari­sjóður stofn­aður á grunni þess gamla, SpKef. Ríkið setti 900 millj­ónir króna inn í hinn nýja sjóð sem eigið fé.

Tæpu ári síðar varð ljóst að nýi sjóð­ur­inn ætti sér ekki við­reisnar von og SpKef var rennt inn í Lands­bank­ann. Kostn­aður skatt­greið­enda vegna beins kostn­aðar, vaxta og eig­in­fjár­fram­laga til Spari­sjóðs­ins í Keflavík varð á end­anum 26,1 millj­arður króna. Ákæra var gefin út á hendur fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjór­anum, Geir­mundi Krist­ins­syni, fyrr á þessu ári vegna umboðs­svika fyrir að hafa mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum og gefa félagi sonar síns stofn­bréf í sjóðnum. Máls­með­ferð er lokið fyrir hér­aðs­dómi en dómur liggur ekki fyrir.

1. Gjöf á hlut í Landsbankanum

Þegar íslenska ríkið samdi við kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans í des­em­ber 2009 um skipt­ingu eigna hans fékk ríkið 80 pró­senta hlut í nýja Lands­bank­anum, sem stofn­aður var á rústum hins gamla. Þessi hlutur gat hækkað umtals­vert ef vel gengi að inn­heimta tvö lána­söfn, sem heita Pony og Pegasus.

Afrakstur þeirrar inn­heimtu átti að renna til gamla Lands­bank­ans og hlutur rík­is­ins myndi vaxa upp að 98,2 pró­sentum ef end­ur­heimtir yrðu góðar. Afgang­inn áttu starfs­menn nýja Lands­bank­ans að fá í verð­laun fyrir vel heppn­aða rukkun. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, skrif­aði undir samn­ing­inn fyrir hönd íslenska rík­is­ins. Nið­ur­staðan varð sú að end­ur­heimtir urðu með hæsta móti og starfs­menn­irnir fengu umræddan hlut gef­ins.

Bankinn hélt reyndar eftir hluta bréf­anna til að greiða ýmsan kostnað vegna þess­arrar aðgerðar og heldur því sjálfur á 0,91 pró­sent í sjálfum sér. 530 fyrr­ver­and­i ­og núver­andi starfs­menn bank­ans og um 430 fyrrum stofn­fjár­hafar í tveimur spari­sjóðum sem rennt var inn í Lands­bank­ann eiga hins vegar sam­tals 0,89 pró­sent hlut í bank­anum. Þorri þeirrar eignar er í eigu starfs­mann­anna.

Hlutur starfs­manna, núver­and­i og fyrr­ver­andi, og 430 fyrrum stofn­fjár­haga í spari­sjóð­unum er um 2,2 millj­arða króna virð­i. Þeir hafa fengið greiddan arð vegna eignar sinnar á und­an­förnum árum. 

Á þeim hlutum sem runnu til starfs­manna bank­ans voru reyndar kvaðir um að ekki mætti fram­selja hlut­ina fyrr en 1. sept­em­ber 2016 en gert hafði verið ráð fyrir að búið yrði að ­skrá hluta­bréf í bank­anum á skipu­legan verð­bréfa­markað fyrir þann tíma. Svo er hins vegar ekki. 

Bankaráð Lands­bank­ans ákvað í sept­em­ber síð­ast­liðnum að nýta heim­ild til að kaupa eigin hlutafé. til að lækka eigin fé bank­ans og gefa hlut­höfum hans mögu­leika á að selja hluti sína. Alls býðst bank­inn til að kaupa um tveggja pró­senta hlut í sjálfum sér, sem verð­metin er á 5,2 millj­arða króna miðað við bók­fært verð eigin fjár, í þremur lotum. Síðasta lotan fer fram í febr­úar á næsta ári. Á meðal þeirra sem geta selt eign­ar­hlut sinn í þessum lotum eru núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Lands­bank­ans sem fengu hluta­bréf gef­ins.

Sam­bæri­leg umfjöllun um afleiki hægri stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks birt­ist á sunnu­dags­kvöld. Hér má lesa hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár