Fimm afleikir hægri stjórnarinnar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson voru glaðbeittir þegar þeir mynduðu saman ríkisstjórn.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son voru glað­beittir þegar þeir mynd­uðu saman rík­is­stjórn. Mynd: EPA

Á Íslandi ríkir efna­hags­leg vel­sæld um þessar mundir. Hér er rokna­hag­vöxtur, skuldir þjóð­ar­bús­ins hafa snar­lækkað, atvinnu­leysi er nán­ast ekk­ert og verð­bólga hefur ekki verið vanda­mál í tvö og hálft ár. Samt sem áður mæl­ast stjórn­ar­flokk­arnir tveir ein­ungis með rétt rúm­lega 30 pró­sent fylgi sam­an­lagt og nokkuð ljóst að rík­is­stjórnin er fallin.

En hvað veldur því að þetta sé staðan, þrátt fyrir allan efna­hags­batann sem þjóðin er að upp­lifa? Fyrir því eru margar ástæður. Mörgum finnst gæð­unum allt of mis­jafn­lega skipt og telja sig ekk­ert finna fyrir góð­ær­inu. Öðrum finnst for­gangs­röðun í rík­is­fjár­málum röng og vilja mun meira fjár­magn í vel­ferð­ar­kerfið. En fram hjá því verður ekki litið að sumar ákvarð­anir sem rík­is­stjórnin hefur tekið , og mál sem komið hafa upp í kringum lyk­il­fólk í henni, á kjör­tíma­bil­inu hafa verið væg­ast sagt umdeild. Kjarninn tók saman þau fimm mál sem hafa skaðað rík­is­stjórn­ina mest á kjör­tíma­bil­inu.

5. Lækkun veiðigjalda

Vorið 2013 tók ný rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar við völdum á Íslandi og í stefnu­yf­ir­lýs­ingu hennar kom fram að lög um veiði­gjöld yrðu end­ur­skoðuð. Það varð eitt af fyrstu verkum þeirrar rík­is­stjórnar að sam­þykkja lög sem lækk­uðu veiði­gjöld, og voru þau sam­þykkt 5. júlí 2013. Samhliða var boðað að til stæði að leggja fram frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun laga um veiði­gjöld. Sú heild­ar­end­ur­skoðun hefur enn ekki átt sér stað.

Vegna þeirra breyt­inga sem ráð­ist hefur verið í hafa veiði­gjöld sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða til rík­is­sjóðs lækkað mikið. Á næsta fisk­veiði­ári verða þau 4,8 millj­arðar króna, eða átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013, þegar þau voru 12,8 millj­arðar króna. Á sama tíma hefur íslenskur sjáv­ar­út­vegur upp­lifað for­dæma­lausa vel­sæld. Eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja jókst um 265 millj­arða króna frá lokum árs 2008 og út árið 2014. Hagn­að­ur­inn var 242 millj­arðar króna og arð­greiðslur til eig­enda voru tæp­lega 50 millj­arðar króna. Morg­un­ljóst er að síð­ustu tvö ár, 2015 og það sem af er 2016, hafa bætt vel við eigið fé, hagnað og arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna.

Sú mis­skipt­ing auðs sem verður til vegna nýt­ingar þjóð­ar­auð­lind­ar­innar og hefur aldrei verið meiri en á und­an­förnum árum, er eitt dýpsta þjóð­fé­lags­sár íslensks sam­fé­lags. Með því að lækka veiði­gjöldin með þeim hætti sem gert var, og láta það vera sitt fyrsta verk, þá dýpkaði rík­is­stjórnin það sár.

4. Lekamálið

Leka­málið hófst með því að aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lak minn­is­blaði um nafn­greinda hæl­is­leit­endur til fjöl­miðla haustið 2013. Aðstoð­ar­mað­ur­inn, Gísli Freyr Val­dórs­son, neit­aði því reyndar stað­fast­lega í lengri tíma að hafa lekið minn­is­blað­inu og Hanna Birna neit­aði sömu­leiðis að hún eða hennar aðstoð­ar­menn hefðu gert slíkt.

Málið vatt upp á sig og næsta rúma árið tók Hanna Birna ævin­týra­lega margar vondar ákvarð­anir sem tengd­ust því. Hún hafði meðal ann­ars sam­band við þáver­andi rit­stjóra DV, sem fjall­aði mikið um leka­málið, og reyndi að láta reka blaða­menn­ina sem skrif­uðu um málið. Hún bendl­aði Rauða kross Íslands við lek­ann á minn­is­blað­inu. Hún í besta falli villti um fyrir þing­heimi og í versta falli laug hún að hon­um. Hún skamm­aði sam­þing­menn sína fyrir að spyrja sig út í leka­málið á þingi og ásak­aði þá um „ljótan póli­tískan leik“. Hún lét rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins fram­kvæmda hvít­þvotta­rann­sókn á leka­mál­inu sem skil­aði vill­and­i ­nið­ur­stöðu. Lög­maður fyrrum aðstoð­ar­manns henn­ar, sem starf­aði í hennar umboði og á hennar ábyrgð, gaf í skyn í grein­ar­gerð sem lögð var fram fyrir dómi að ræst­ing­ar­fólk eða örygg­is­verðir í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu hefði getað lekið minn­is­blað­inu. Hún fór langt út fyrir vald­svið sitt og reyndi að hafa áhrif á lög­reglu­rann­sókn sem snéri að henni og aðstoð­ar­mönnum hennar með því að ham­ast á þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Stef­áni Eiríks­syni, með sím­töl­um, fund­ar­boðum og hót­un­um. Eftir að umboðs­maður Alþingis hóf rann­sókn á sam­skiptum Hönnu Birnu við lög­reglu­stjór­ann krafði lög­maður á hennar vegum sama lög­reglu­stjóra, sem síðar hætti í starfi sínu, um skýr­ingar á því sem hann hefði greint umboðs­manni Alþingis frá um sam­skipti þeirra. Hún reyndi ítrekað að hafa áhrif á athugun umboðs­manns Alþingis á fram­göngu hennar í leka­mál­inu og gaf í skyn að hann setti fram „eigin dylgjur og dóma án rök­stuðn­ings eða rétt­ar­halda."

Allt varð þetta þó til einskis gert. Aðstoð­ar­maður hennar var ákærður fyrir að leka minn­is­blað­inu og skömmu áður en málið var tekið fyrir ját­aði hann á sig verkn­að­inn. Hanna Birna sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra nokkru síðar, eða í lok árs 2014. Umboðs­maður Alþingis birt nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birnu og fyrr­ver­andi lög­reglu­stjór­ans vegna rann­sóknar leka­máls­ins í jan­úar 2015. Þar sagði hann að ráð­herr­ann hafi gengið langt út fyrir vald­svið sitt. Hanna Birna hafði þá þegar beðist afsök­unar á fram­göngu sinni gagn­vart Stefáni.

Hanna Birna fór í leyfi eftir afsögn sína og skömmu eftir að hún snéri aftur ákvað hún að bjóða sig ekki fram áfram til vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún ákvað enn fremur að hætta stjórn­mála­þátt­töku og er ekki fram­boði um næstu helgi.

3. Svikin loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið

21. febr­úar 2014 lagði Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að draga umsókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka.

Fram­lagn­ing til­lög­unnar var keyrð áfram af Fram­sókn­ar­flokknum, sem hafði und­ir­búið hana vel. Þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins var hins vegar ekki kynnt efni hennar fyrr en sama dag og hún var lögð fram. Samt stóð hann með til­lög­unni.

Í kjöl­far þess að til­lagan var lögð fram urðu fjölda­mót­mæli á Aust­ur­velli og hópur alþjóða­sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna klauf sig opin­ber­lega frá flokknum sínum. Á meðal þeirra sem til­heyra þeim hópi má nefna fyrr­ver­andi flokks­for­mann­inn Þorstein Pálsson, Benedikt Jóhann­es­son, líf­eyr­is­sjóða­á­hrifa­mann­inn Helga Magn­ús­son, Þórð Magn­ús­son fjár­festi og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trú­ann Jórunni Frí­manns­dóttur. Þess utan gagn­rýndi fyrr­ver­andi vara­for­mað­ur­inn Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir stefnu flokks­ins harð­lega og sagði að hún vildi ekki að harð­lífið tæki yfir. „Við viljum ekki að svart­stakk­arnir í flokknum eigi flokk­inn meira en ég og þú,“ sagði Þor­gerður Katrín í þætti á RÚV skömmu eftir að til­lagan var sam­þykkt. Þetta fólk stóð síðar að stofnun Við­reisnar.

Ástæða þess að reiðin varð svona mikil var sú að fjórir af þeim sex þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem leiddu kjör­dæmi flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar lof­uðu því að áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu yrði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á kjör­tíma­bil­inu sem nú er að líða. Allir fjórir urðu síðar ráð­herrar í þeirri rík­is­stjórn sem tók við völdum vorið 2013. Engir fyr­ir­varar um meiri­hluta á Alþingi, meiri­hluta innan rík­is­stjórnar eða sýni­legan þjóð­ar­vilja í skoð­ana­könn­unum voru settir fram. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, sagði það oftar en nokkur annar Sjálf­stæð­is­maður að þjóð­ar­at­kvæðið myndi fara fram og að flokkur hans myndi standa við það. Meira að segja Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem síðar varð for­sæt­is­ráð­herra um tíma, sagði að að sjálf­sögðu myndi koma til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið.

Af henni varð ekki og rík­is­stjórnin dró umsókn­ina til baka án aðkomu þings og þjóðar. Ástæðan var, að sögn Bjarna, „póli­tískur ómögu­leiki“ sem fólst fyrst og fremst í því að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir voru á móti aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

2. Leiðréttingin

Helsta kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var að „leið­rétta“ verð­tryggðar hús­næð­is­skuldir heim­ila lands­ins. Ýjað var af því að um mörg hund­ruð millj­arða króna nið­ur­greiðslu á skuldum þeirra yrði að ræða og að pen­ing­arnir til að gera það myndu koma frá vog­un­ar­sjóðum. Þetta lof­orð hafði gríð­ar­leg áhrif á að Framsókn vann mik­inn kosn­inga­sigur og fékk að leiða rík­is­stjórn.

Fram­kvæmd lof­orðs­ins varð tölu­vert öðru­vísi en flestir áttu von á. Hún var kynnt með lúðra­blæstri í Hörpu sem 150 millj­arða króna aðgerð fyrir heim­ilin í land­inu. Í reynd var um að ræða 80,4 millj­arða króna milli­færslu af fé úr rík­is­sjóði inn á hluta þjóð­ar­innar sem hafði verið með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 óháð efna­hags­stöðu þeirra og þeirri stað­reynd að hækkun hús­næð­is­verðs hafði þegar „bætt“ flestum upp það tap sem verð­bólga eft­ir­hrunsár­anna hafði skilið eftir sig. Hinn hluti aðgerð­ar­innar sner­ist um að leyfa Íslend­ingum að nota sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn til að borga inn á hús­næð­is­lánið sitt upp að 70 millj­örðum króna. Lands­menn hafa ein­ungis nýtt brota­brot af þess­ari heim­ild.

Það sem gagn­rýnt var mest við Leið­rétt­ing­una var að í aðgerð­inni runnu tugir millj­arða króna úr rík­is­sjóði til 94 þús­und Íslend­inga og barna þeirra. ⅔ hluti þjóð­ar­innar var því „óleið­réttur“. Hlut­falls­lega voru flestir þeirra sem sóttu um leið­rétt­ingu yfir fimm­tugt en ungt fólk fékk sára­lítið. Pen­ing­arnir streymdu aðal­lega til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og þeir sem voru með mestar tekjur, fengu mest. Þá skuld­aði tæpur þriðj­ungur þeirra sem fékk Leið­rétt­ing­ar­tékka undir tíu millj­ónum króna í hús­næði sínu, sem verður vart talið til mik­illar skuld­setn­ingar. Meira að segja stór­eigna­fólk, sem greiddi auð­legð­ar­skatt, fékk leið­rétt. Til að greiða slíkan skatt þurftu hjón að eiga meira en 100 millj­ónir króna í hreinni eign. Alls fengu 1.250 manns úr þeim stór­eigna­hópi alls 1,5 millj­arð króna vegna Leið­rétt­ing­ar­innar.

Afleið­ingar leið­rétt­ing­ar­innar eru þær að pen­ingar rík­is­sjóðs sem ella hefði verið hægt að nota í sam­fé­lags­leg verk­efni eins og upp­bygg­ingu inn­viða, laga heil­brigð­is­kerfið eða fjár­festa í mennta­kerf­inu, runnu til val­ins hóps Íslend­inga, sem margir hverjir þurftu ekk­ert á þeim að halda. Aðgerðin olli ruðn­ings­á­hrifum á fast­eigna­mark­aði með hækk­andi fast­eigna­verði. Það gerði þeim sem eru að reyna að koma þaki yfir höf­uðið, sér­stak­lega ungu fólki og lág­tekju­hópum, enn erf­ið­ara fyrir að gera slíkt. Og síð­ast en ekki síst þá skert­ust vaxta­bætur þeirra sem fengu leið­rétt, en lægstar höfðu tekj­urnar, þar sem eigna­staða þeirra batn­aði. Vaxta­bætur falla niður þegar ein­stak­lingur hefur náð 533 þús­und krónum í tekjur á mán­uði og þegar hjón ná sitt­hvorum 433 þús­und krón­unum. Þess vegna hefur þessi skerð­ing ein­ungis áhrif á þá sem eru með lægri laun en ofan­greind. Og sá hópur greiðir því leið­rétt­ingu sína, að minnsta kosti að hluta, úr eigin vasa. Vaxta­bætur lækk­uðu um 25,7 pró­sent á síð­asta ári og þeim fjöl­skyldum sem fengu þær greiddar fækk­aði um 21,3 pró­sent.

1. Wintris-málið

Þann 15. mars 2016 birti Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hún greindi frá því að hún ætti aflands­fé­lag á Bresku Jóm­frú­areyj­unni Tortóla. Það héti Wintris og í því væri að finna arf hennar. Anna Sig­ur­laug sagð­ist segja frá þessu vegna þess að umræða væri farin af stað um erlendar eignir hennar. Hún bað síðan um að Gróu á Leiti yrði gefið smá frí.

Síðar kom í ljós að nokkrum dögum áður, nánar til­tekið 11. mars, hafði sænski frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Uppdrag Granskning, í sam­starfi við Reykja­vík Media og alþjóð­legu rann­sókn­ar­blaða­manna­sam­tökin ICIJ, tekið við­tal við Sigmund Davíð og spurt hann út í Wintris. Sig­mundur Davíð sagði ósatt í við­tal­inu og gekk svo út úr því. Næstu daga átti sér stað heift­úð­leg umræða þar sem fjöl­margir þing­menn ásök­uðu fjöl­miðla um að fara offorsi í árásum gegn Sigmundi Davíð.

3. apríl síð­ast­lið­inn var sýndur sér­stakur Kast­ljóss­þáttur þar sem við­talið var sýnt. Þar var einnig greint frá tengslum Sig­mundar Dav­íðs, Bjarna Bene­dikts­sonar og Ólafar Nordal við aflands­fé­lög í skatta­skjól­um. Þar kom skýrt fram að Sig­mundur Davíð hafði átt Wintris um tíma með eig­in­konu sinni, að hann hafi leynt til­vist félags­ins og að það væri kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna. Enn fremur kom fram að félagið hafi lýst þeim kröfum á meðan að Sig­mundur Davíð var eig­andi þess. Aldrei hafa verið birtar upp­lýs­ingar um hvaða eignir eru inni í Wintris en full­yrt er að allir skattar hafi verið greiddir af þeim hér­lendis.

Dag­inn eft­ir, þann 4. apr­íl, voru haldin mót­mæli sem lög­regla og kann­anir segja að séu stærstu mót­mæli Íslands­sög­unn­ar. Yfir­skrift mót­mæl­anna var krafan um að flýta kosn­ing­um. Flestir sem mættu sögð­ust vera að mót­mæla spill­ingu stjórn­mála og hags­muna­tengslum ráð­herra, til þess að knýja á um kosn­ingar strax og til þess að Sig­mundur Davíð segði af sér.

Degi síðar fór af stað ótrú­leg atburða­rás. Þá var það Sig­mundur Davíð sjálf­ur, sem greindi frá því á Face­book-­síðu sinni, að hann hefði á fundi með Bjarna Bene­dikts­syni sagt að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins „treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.“ Að þessu búnu fór hann á Bessa­staði, þar sem honum og Ólafi Ragn­ari Gríms­syni, þáver­andi for­seta, ber ekki saman um hvort Sig­mundur hafi form­lega óskað eftir þing­rofi eða ekki. Að minnsta kosti sagði Ólafur Ragnar að hann hefði hafnað beiðni um þing­rof. Þegar deg­inum lauk hafði verið til­kynnt að Sig­mundur Davíð myndi stíga til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra og Sig­urður Ingi Jóhanns­son tæki við. Þeir Bjarni Bene­dikts­son kynntu málið fyrir frétta­mönnum degi síð­ar.

Wintris-málið varð að heims­frétt. Og til­urð máls­ins er ástæða þess að gengið verður til kosn­inga eftir sex daga, rúmu hálfu ári fyrr en áætlað var.

Í gær birt­ist sam­bæri­leg umfjöllun um afleiki vinstri stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna sem sat 2009-2013. Hægt er að lesa hana hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár