71 prósent Íslendinga telja #MeToo vera jákvæða

Mikill meiri­hluti Íslend­inga telur #MeToo bylt­ing­una vera jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag, sam­kvæmt nýrri könnun MMR.

Rúmlega sjö af hverjum tíu Íslend­ingum telja #MeToo bylt­ing­una vera jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag, sam­kvæmt nýbirtri könnun MMR. Stuðn­ing­ur­inn við bylt­ing­una var mestur meðal kvenna, höf­uð­borg­ar­búa og kjós­enda Vinstri grænna.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 16. Til 22. Maí 2018 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 929 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri Af aðspurðum sögð­ust tæp­lega 71 pró­sent telja #MeToo vera jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag en 13 pró­sent töldu hana nei­kvæða.

Stuðn­ingur meðal kvenna var 82 pró­sent og var nokkuð meiri en stuðn­ingur meðal karla, sem var um 60 pró­sent. Sömu­leiðis voru íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins jákvæð­ari gagn­vart bylt­ing­unni heldur en þeir sem voru búsettir á lands­byggð­inni, en stuðn­ing­ur­inn mæld­ist 74 pró­sent hjá borg­ar­búum og 64 pró­sent hjá lands­byggð­ar­búum.

Stuðn­ings­fólk Vinstri grænna ( 91 pró­sent) og Sam­fylk­ing­ar­innar (87 pró­sent) var lík­leg­ast til að líta bylt­ing­una jákvæðum augum, en Stuðn­ings­fólk Mið­flokks (32 pró­sent), Sjálf­stæð­is­flokks (22 pró­sent) og Flokks fólks­ins (16 pró­sent) voru ólík­leg­ust til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár