Sigríður Björk braut meðalhófsreglu stjórnsýslulaga

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu braut með­al­hófs­reglu stjórn­sýslu­laga með því að víkja lög­reglu­manni úr starfi tíma­bundið í vetur. Henni var ekki heim­ilt að víkja honum frá störfum. RÚV greindi frá þessu í dag og vísar í úrskurð inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur neitað að láta úrskurð­inn af hendi til Kjarnans þar sem hann snertir per­sónu­bundin mál sem séu einka­mál­efni ein­stak­linga.

Sigríður Björk vék fyrr­ver­andi lög­reglu­manni í fíkni­efna­deild tíma­bundið frá störfum í jan­úar eftir að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hóf rann­sókn á meintum brotum hans í starfi. Hann var sak­aður um óeðli­leg sam­skipti við menn sem höfðu verið til rann­sóknar hjá deild­inni, en áður hafði hann verið færður tví­vegis til í starfi vegna meintra brota. Hér­aðs­sak­sókn­ari hreins­aði lög­reglu­mann­inn af öllum ásök­unum og honum var boðið að snúa aftur til starfa í tækni­deild lög­regl­unnar.

Ákvörð­unin um að víkja honum úr starfi var kærð til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Samkvæmt RÚV gagn­rýnir ráðu­neytið að ákvörðun Sigríðar hafi fyrst og fremst byggt á frá­sögnum og orðrómi en ekki gögnum. Hún hafi ekki gætt með­al­hófs­sjón­ar­miða, sam­kvæmt 12. grein stjórn­sýslu­laga. Ákvörðun um að leysa fólk úr emb­ætti tíma­bundið sé veru­lega íþyngj­andi fyrir þann sem hún bein­ist að og vanda eigi til und­ir­bún­ings og með­ferðar mála áður en slík ákvörðun sé tekin.

Braut persónuverndarlög

Þegar Sigríður Björk var lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum braut hún lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga, þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos. Upp­lýs­ing­arnar voru í for­grunni leka­máls­ins svo­kall­aða, en Gísli Freyr var svo dæmdur í fang­elsi fyrir að leka upp­lýs­ingum um Omos í fjöl­miðla.

Miðlun Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á skýrslu­drögum með per­sónu­upp­lýs­ingum um Tony Omos, Evelyn Glory Jos­eph og fleiri ein­stak­linga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013, sem og beiðni ráðu­neyt­is­ins þar að lút­andi, studd­ist ekki við við­hlít­andi heim­ild, að því er fram kom í úrskurði Per­sónu­verndar. Sigríður Björk neit­aði því hins vegar að hafa brotið lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár