Peningum rigndi yfir Blatter á blaðamannafundi

Sepp Blatter, for­seti FIFA, gerði hlé á blaða­manna­fundi FIFA eftir að fölsuðum pen­inga­seðlum hafði verið kastað yfir hann. Breski grínist­inn Lee Nelson var þar að verki en hafði fundið sér leið inn á fund­inn sem full­trúi norður-kóreska knatt­spyrnu­sam­bands­ins.

Á vef breska blaðs­ins The Guardian er mynd­band af atvik­inu. Þar sést Nelson ganga á sviðið þar sem Blatter og annar full­trúi FIFA sátu. Einnig er greint frá því að Nelson hafi kom­ist inn á blaða­manna­fund FIFA með tvö seðla­búnt. Annað hafi hann lagt á borðið hjá Blatter og sagt pen­ing­ana vera frá Norður-Kóreu til for­seta FIFA. Nelson hélt svo stutta ræðu undir köllum Blatters á örygg­is­verði sem voru fljótir að ná Nelson af svið­inu.

https://youtu.be/0pqO6tK8_Wg

Áður en honum var kippt frá náði hann hins vegar að kasta pen­ingum yfir for­seta FIFA, sem er spaugi­legt enda hefur Blatter verið bendl­aður ítrekað við spill­ingu í starfi sínu. Þar bera ákvarð­anir um að halda heims­meist­ara­keppn­ina í fót­bolta í bæði Katar og Rúss­landi.

Nýverið voru gefnar út ákærur á hendur níu stjórn­ar­mönnum hjá FIFA eftir ára­langa rann­sókn alrík­is­lög­regl­unnar í Banda­ríkj­unum. Blatter var ekki meðal þeirra sem ákærðir voru en hans helstu sam­starfs­menn sæta nú frek­ari rann­sókn.

Blatter gerði hlé blaða­manna­fund­inum með því að stíga í pontu og segja að ekki væri hægt að halda honum áfram fyrr en búið væri að taka til. „Þetta hefur ekk­ert með fót­bolta að gera,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár