Ótti við hryðjuverk breytir ferðavenjum

Óttinn við hryðju­verk hefur á síð­ustu árum haft mikil áhrif í ferða­mennsk­unni. Í nýrri könnun sem fyr­ir­tækið IPK International gerði, og 50 þús­und manns tóku þátt í, sögðu 40% þátt­tak­enda að hryðju­verkaógnin hefði áhrif á hvert ferð­ast væri. Tyrkland, Egypta­land og lönd Norður-Afríku hafa orðið verst úti og af stór­borgum París, Istanbúl og Kaíró. 

Könnun sem evr­ópsk ferða­mála­sam­tökum létu gera fyrir rúmu ári síðan leiddi í ljós að sífellt fleiri Evr­ópu­búar ferð­ast. Og hjá þeim sem á annað borð ferð­ast til ann­arra landa er það ekki lengur ein utan­lands­ferð annað eða þriðja hvert ár, nú eru það iðu­lega tvö, jafn­vel þrjú, ferða­lög árlega. Sól­ar­ferðir, óbyggða­ferðir, veiði­ferðir, golf­ferðir, skíða­ferðir,borg­ar­ferðir, sér­stakar göngu- og reið­hjóla­ferðir, sigl­ingar með skemmti­ferða­skipum eða skútum, kletta­klifur, o.s.frv, o.s.frv. Mögu­leik­arnir eru nær óþrjót­andi.

Að verða „vin­sælt ferða­manna­land“ er oft­ast árangur margra ára eða jafn­vel ára­tuga aug­lýs­inga­starfs. Slík land­kynn­ing kostar mikið fé, og þol­in­mæði. Þekktur danskur ferða­fröm­uður sagði ein­hverju sinni að land­kynn­ing væri lang­hlaup, „marg­falt mara­þon“ eins og hann komst að orði. Mörg lönd verja miklum fjár­munum í að kynna land og þjóð enda eftir miklu að slægj­ast.

Ferða­mennskan skapar miklar tekjur, því hafa Íslend­ingar kynnst vel á allra síð­ustu árum. Á Íslandi hefur mark­visst kynn­ing­ar­starf, ásamt hag­stæðu gengi (fyrir ferða­menn) ráðið mestu um mikla aukn­ingu þeirra sem landið heim­sækja. Því til við­bótar hefur Ísland notið góðs af því að ferða­fólk leitar sífellt að ein­hverju nýju og ekki síst stöðum, sem fáir hafa heim­sótt. Framandi er það stundum kallað. Þótt mörgum Íslend­ingum þyki nóg um ferða­manna­straum­inn, sem hefur marg­fald­ast á örfáum árum, er hóp­ur­inn sem heim­sækir Ísland lít­ill, sam­an­borið við mörg önnur lönd. Tekjur Íslend­inga af ferða­mönnum hafa líka marg­fald­ast, í hlut­falli við ferða­manna­fjöld­ann.

Frakkland fjölsóttasta ferðamannalandið

Um langt ára­bil hefur Frakk­land verið fjöl­sóttasta ferða­manna­land heims. Samkvæmt upp­lýs­ingum World Statistic stofn­un­ar­innar heim­sóttu 83 millj­ónir ferða­fólks Frakk­land á síð­ast­liðnu ári. 75 millj­ónir lögðu leið sína til Banda­ríkj­anna, 65 millj­ónir til Spánar, 56 millj­ónir fóru til Kína. Í fimmta sæti yfir vin­sæl­ustu ferða­manna­löndin árið 2015 var Ítalía, þangað fóru 48 millj­ónir, Tyrkland heim­sóttu 40 millj­ónir, 33 millj­ónir fóru til Þýska­lands og sami fjöldi til Bret­lands. Til Rúss­lands lögðu 30 millj­ónir leið sína og í tíunda sæti yfir fjöl­sótt­ustu ferða­manna­lönd ver­aldar er Mexíkó, þangað fóru 29 millj­ónir. World Statistic getur þess sér­stak­lega varð­andi Mexíkó að stór hluti þess­ara 29 millj­óna séu Banda­ríkja­menn sem fari oft í viku yfir landa­mærin.

Í fjöl­sótt­ustu lönd­unum eru það iðu­lega borg­irnar sem draga til sín hlut­falls­lega flesta ferða­lang­ana, í Frakk­landi París, Nice, Le Mans, í Banda­ríkj­unum New York, Los Angeles, San Francisco, Las Vegas. Á Spáni, þriðja fjöl­sóttasta ferða­manna­land­inu var dreif­ingin meiri ef svo mætti segja: Barcelona, Madrid, Majorka, Costa del Sol, Sevilla, Valencia svo það helsta sé nefnt. Í Kína voru það stór­borg­irnar Beijing og Shanghai sem flestir lögðu leið sína til en á Ítalíu, fimmta fjöl­sóttasta land­inu var dreif­ingin mjög mikil enda á Ítalía 51 nafn á menn­ing­arminja­skrá Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í Tyrk­landi skipt­ust millj­ón­irnar 40 sem heim­sækja landið á milli sögu­staða, sól­ar­stranda og stór­borg­ar­innar Istanbúl. Í Þýska­landi og Bret­landi vógu Berlín og London þyngst þótt í þessum löndum færi ferða­fólk víða um. Í Rúss­landi voru það Moskva og St. Pét­urs­borg sem drógu til sín flesta úr hópi þeirra 30 millj­óna sem landið sóttu heim í fyrra.

Hryðjuverkaógnin og ferðamennskan

Eins og fram kom í upp­hafi pistils­ins hefur ótt­inn við hryðju­verk veru­leg áhrif þegar að því kemur að velja hvert skuli haldið þegar leggja á land undir fót. Margir veigra sér við að heim­sækja lönd og borgir þar sem hryðju­verka­menn hafa látið til sín taka.

Matthias Fekl aðstoð­ar­ferða­mála­ráð­herra Frakk­lands sagði fyrir nokkrum dögum í við­tali að ferða­mönnum í París hefði fækkað um tugi pró­senta að und­an­förnu, sam­an­borið við síð­ustu ár. Hann sagði að nýt­ing hót­el­her­bergja í síð­ari hluta júlí­mán­aðar hefði ein­ungis verið 32%, á sama tíma í fyrra og hitteð­fyrra var nýt­ingin yfir 70%. Það eru einkum ferða­menn frá Banda­ríkj­unum, Asíu, einkum Japan, og löndum við Persaflóa sem hafa hætt við ferðir til Parísar en ferða­menn frá þessum löndum búa að jafn­aði á dýr­ari hót­elum og eyða meiri pen­ingum en ferða­menn frá öðrum löndum. Óttinn við hryðju­verk er ástæðan. Sam­dráttur í ferða­mennsku hefur mikil áhrif, í Frakk­landi hafa t.d. fleiri en tvær millj­ónir manna við­ur­væri sitt af ferða­mennsku. Í Brussel í Belgíu fækk­aði ferða­mönnum um 40% í júlí­mán­uði síð­ast­liðnum miðað við sama tíma í fyrra. Hryðju­verkin á Zaventem flug­velli í mars, þar sem 32 lét­ust, er talin helsta ástæðan þess­arar miklu fækk­unar. Ekki eru til­tækar tölur um fækkun ferða­manna í Tyrk­landi, Egypta­landi og löndum í Norður-Afríku en í þessum löndum hefur ferða­fólki fækkað mjög mikið. Evr­ópskar ferða­skrif­stofur, og flug­fé­lög, hafa brugð­ist við með því að fækka ferðum og draga úr sæta­fram­boði.

Eftir mikla fjölgun kín­verskra ferða­manna til Evrópu und­an­farin ár virð­ist nú hafa hægt nokkuð á þeim straumi. Ferða­mála­sér­fræð­ingar segja það beina afleið­ingu ótt­ans við hryðju­verk.

Mikil aukning til Spánar og Portúgals

Sér­fræð­ingar um ferða­mál segja að þrátt fyrir að dregið hafi úr straumi ferða­manna til þeirra landa sem nefnd hafa verið hér að framan sé jákvætt að almennt virð­ist ekki hafa dregið úr ferða­lögum. Fólk velur önnur lönd. Þeim sem ferð­uð­ust til Spánar fjölg­aði um 12% á fyrri helm­ingi þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra og í Portúgal er fjölg­unin á sama tíma 13%. Á Spáni hefur verð á gist­ingu hækkað tals­vert að und­an­förnu og danskur ferða­mála­fræð­ingur sagði að spænskir hót­el­eig­endur megi ekki láta stjórn­ast af græðgi. Ef verð hækki allt of mikið sé hætta á að ferða­menn leiti annað.

Ísland öruggasta land í heimi

Nýlega birti alþjóð­leg stofnun, Institute for Economics and Peace, skýrslu þar sem lagt er mat á, með mörgum og flóknum aðferðum, öryggi fólks í löndum heims­ins. Á þessum lista trónir Ísland á toppnum, Danmörk er í öðru sæti, í þriðja sæti er Aust­ur­ríki, Nýja-Sjáland í fjórða sæti og í fimmta sæti Portúgal. Finnland er í ell­efta sæti, Svíþjóð í því fjórt­ánda og Noregur er neðst Norð­ur­land­anna í 17. sæti. Þetta hlýtur að telj­ast ánægju­leg nið­ur­staða fyrir Íslend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár