Innanríkisráðherra styður lögreglustjóra eftir lögbrot

Ólöf Nordal ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar: „Þetta mál er óvenju­legt“

Ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar
Ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur þrátt fyrir að hún hafi sam­kvæmt úrskurði Per­sónu­verndar brotið lög með miðlun upp­lýs­inga um hæl­is­leit­endur. Mynd: Pressphotos

„Ég ber fullt traust til Sigríðar Bjarkar í emb­ætti hennar sem lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“ Þetta segir Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um stöðu lög­reglu­stjór­ans. 

Innan ráðu­neyt­is­ins hefur verið farið yfir úrskurð Per­sónu­verndar um miðlun upp­lýs­inga um mál­efni hæl­is­leit­anda milli lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum og ráðu­neyt­is­ins. Eins og fram kom í fréttum á föstu­dag braut Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 11. og 12. grein laga um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, per­sónu­upp­lýs­ingar um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos. „Við munum taka til skoð­unar þær ábend­ingar sem úrskurð­ur­inn hefur að geyma til að tryggja sem best öryggi upp­lýs­inga sem falla undir per­sónu­vernd­ar­lögin. Það er sér­stak­lega mik­il­vægt þegar um er að ræða við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar,“ segir í svari Ólafar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár