Nánast allir vilja að ríkið fjármagni Landspítalann

Lítill sem eng­inn stuðn­ingur er við það að fjár­mögnun Land­spít­al­ans sé á hendi ann­arra en rík­is­ins. Þrír af hverjum fjórum aðspurðum telja að rík­is­sjóður eigi að fjár­magna spít­al­ann að fullu. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar sem Við­skipta­ráð lét gera á við­horfi almenn­ings til fjár­mögn­unar stofn­ana og emb­ætta á Íslandi.

Eitt pró­sent svar­enda sögðu að þeir teldu að fjár­mögnun Land­spít­al­ans ætti að vera að litlu eða engu leyti úr rík­is­sjóði. 2,4 pró­sent sögð­ust telja að ríkið ætti að fjár­magna spít­al­ann til helm­ings. 22,5 pró­sent telja að rík­is­sjóður eigi að fjár­magna spít­al­ann að mestu leyti. Lang­flestir, eða 74 pró­sent, vilja að ríkið fjár­magni spít­al­ann að öllu leyti.

815 voru spurðir í könn­un­inni og svar­hlut­fallið við spurn­ing­unni var 94,6 pró­sent. Hlutfall þeirra sem vilja að ríkið fjár­magni spít­al­ann að mestu eða öllu leyti er lægst hjá yngsta ald­urs­hópnum, undir 25 ára, en þar er það 92,5 pró­sent. Þá er minnstur stuðn­ingur við fjár­mögnun rík­is­ins meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 90,9 pró­sent, og meðal Pírata, 91,6 pró­sent.

Meirihluti vill fjármagna lögreglu, Ríkisútvarp og Háskóla Íslands


92,2 pró­sent aðspurðra vilja að ríkið fjár­magni starf­semi lög­regl­unnar að öllu eða miklu leyti. 1,2 pró­sent töldu að ríkið ætti ekki að fjár­magna lög­regl­una að neinu leyti eða að litlu leyti.

55 pró­sent svar­enda sögðu að ríkið ætti að fjár­magna Rík­is­út­varpið að öllu eða mestu leyti, en 26,8 pró­sent að litlu eða engu leyti. Tals­verður munur var á svörum eftir aldri, stjórn­mála­skoð­unum og mennt­un­ar­stigi. Þeir sem eru mennt­aðri eru hlynnt­ari rík­is­fjár­mögnun RÚV og kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru and­víg­astir því að ríkið fjár­magni RÚV.

Þá sögð­ust 71,1 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni starf­semi Háskóla Íslands að öllu eða miklu leyti. Aðeins 7,5 pró­sent vilja að ríkið komi lítið eða ekk­ert að fjár­mögnun HÍ, og 21,4 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni skól­ann um helm­ing.

Í aðdrag­anda Við­skipta­þings lét Við­skipta­ráð gera skoð­ana­könnun um fjár­mögnun hinna ýmsu stofn­ana og emb­ætta. Könn­un­ina í heild sinni má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár