Mynd: Icelandair

Svartasti dagurinn í Kauphöllinni frá bankahruni

Icelandair lækk­aði um tæp 23 pró­sent og mark­aðsvirði þess er nú einn þriðji af eigin fé félags­ins um síð­ustu ára­mót. Úrvals­vísi­talan lækk­aði meira en hún hefur gert frá því í hrun­inu. Krónan hefur veikst um sjö pró­sent innan árs.

Úrvals­vísi­tala íslensku Kaup­hall­ar­inn­ar, sem er saman sett úr gengi þeirra tíu félaga á mark­aði sem hafa mestan selj­an­leika, hefur lækkað um tæpan 22,5 pró­sent frá 21. febr­ú­ar. Þann föstu­dag var gengi hennar 2.170,5 stig en við lok við­skipta í dag var hún rétt rúm­lega 1.682,6 stig. Hún lækk­aði um 8,44 pró­sent í dag, sem gerir það að verkum að hann var sá svart­asti í íslensku Kaup­höll­inni frá því að íslenskur hluta­bréfa­mark­aður var end­ur­reistur eftir banka­hrun.

Heild­ar­mark­aðsvirði þeirra 20 félaga sem skráð eru á aðal­l­ista Kaup­hall­ar­innar hefur lækkað um rúm­lega 281 millj­arð króna frá 21. febr­úar.

Icelandair leiðir hrunið

Alls féllu 18 af félög­unum 20 sem skráð eru á aðal­list­ann í verði í dag. Mest lækk­aði Icelandair, eða um 22,8 pró­sent. Mark­aðsvirði þess félags við lok við­skipta var rétt um 21 millj­arður króna. Það hefur ekki verið lægra frá því í jan­úar 2011. Mark­aðsvirði Icelandair fór niður fyrir 30 millj­arða króna í fyrsta skipti í átta ár í byrjun viku og hefur haldið áfram að falla hratt.

Þegar mark­aðsvirði var hæst, í apríl 2016, var það 191,5 millj­arðar króna. Síðan þá hefur hlutafé í Icelandair verið aukið um rúm­lega fimm millj­arða króna en mark­aðsvirðið samt komið niður í ofan­greinda tölu.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem Icelandair sendi frá sér í morgun nam ­­lausa­fjár­s­­staða ­­fé­lags­ins nam rúmum 39 millj­­örðum króna í árs­­lok 2019 og er á sama stað í dag. Eigið fé Icelandair var um 60 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Mark­aðsvirðið er því um einn þriðji af eigin fé félags­ins og rétt rúmur helm­ingur af lausu fé þess.

Trump setur allt á annan endann

Ástæðan fyrir hinu mikla hruni í dag er vit­an­lega tíma­bundið ferða­­bann banda­rískra stjórn­­­valda til og frá Evr­­ópu, sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, setti á í nótt. Ferða­­bann­ið, sem á að standa yfir í 30 daga frá og með kom­andi föst­u­degi, mun virka þannig að öllum íbúum landa sem til­­heyra Schengen-­­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­­ópu, verður meinað að koma til Banda­­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­­is­­borg­­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­­ríkj­unum munu fá að ferð­­ast ef þeir vilja en sam­­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í nótt á vef heima­varn­­ar­ráðu­­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schengen-­­svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­­velli þar sem sér­­stakar ráð­staf­­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Allar líkur eru því til þess að flug milli Banda­­ríkj­anna og landa sem til­­heyra Evr­­ópska efna­hags­­svæð­inu muni að mestu liggja niðri á meðan að bannið stendur yfir, enda ólík­­­legt að flug­­­fé­lög muni fljúga mikið þegar þorri Evr­­ópu má ekki koma til Banda­­ríkj­anna, og Banda­­ríkja­­menn hafa verið hvattir til að fara helst ekki til Evr­­ópu. Það mun hafa gríð­­ar­­leg áhrif rekstur Icelandair.

Krónan veikst mikið síðastliðinn mánuð

Á meðal ann­arra félaga sem fóru illa út úr deg­inum var Iceland Seafood, sem skráð var á markað í fyrra, en gengi bréfa í því féllum um 14,7 pró­sent í dag. Smá­söluris­inn Festi og trygg­inga­fé­lagið VÍS féllu líka um tveggja stafa pró­sentu­tölur í við­skiptum dags­ins.

Verð­mætasta félagið á mark­aði, Mar­el, fór með him­in­skaut­unum í fyrra og virði þess hækk­aði um 66 pró­sent á árinu 2019. Mark­aðsvirði félags­­ins í lok árs var 473,4 millj­­arðar króna. Það hélt áfram að hækka framan af árinu 2020 og virði þess skreið yfir 500 millj­arða króna um tíma í jan­ú­ar. Nú er það um 377,8 millj­arðar króna, eftir að bréf í félag­inu lækk­uðu um rúm sjö pró­sent í dag, og því hafa rúm­lega 120 millj­arðar króna af mark­aðsvirði Marel horfið á tæpum tveimur mán­uð­u­m.

Næst stærsta félagið á mark­aði er Arion banki. Hann var skráður á markað í júní 2018 og í lok fyrsta við­skipta­dags var gengi hluta­bréfa hans 88,8 krónur á hlut. Það er nú 65,2 krónur á hlut eða tæp­lega 27 pró­sent lægra. Mark­aðsvirði bank­ans er nú 118,3 millj­arðar króna, eða umtals­vert lægra en eigið fé bank­ans sem var 190 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Íslenska krónan er líka í frjálsu falli. Hún hefur veikst um 5,4 pró­sent gagn­vart evru síð­ast­lið­inn mánuð og alls um sjö pró­sent frá ára­mótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár