Fyrsta tilfellið þar sem ISIS-barn afhöfðar hermann

Barna­her­maður í liði með ISIS sést á mynd­bandi, sem her­skár hópur í Homs í Sýrlandi hefur undir höndum, afhöfða sýr­lenskan her­mann. Þetta er fyrstu hald­bæru sann­an­irnar fyrir því að börn séu látin fremja slík voða­verk fyrir Íslamska ríkið.

Sér­stakir barna­her­flokkar Íslamska rík­is­ins eru skip­aðir nokkur hund­ruð svoköll­uðum „hvolpum Kalifats­ins“ (e. Cubs of the Caliphate). Barnið á myndum er eitt þeirra. Börnin eru flest á tán­ings­aldri og hafa hlotið her­þjálfun. Flest hafa þau skráð sig hjá ISIS-liðum sem bíða við skóla og moskur á svæðum undir stjórn Íslamska rík­is­ins.

Á mynd­unum sést barnið klætt bún­ingi í felu­litum hald­andi á mann­höfði og blóð­ugum hníf. Her­mað­ur­inn sem myrtur var er tal­inn hafa verið í haldi Íslamska rík­is­ins síðan það náði svæðum í Palmyra í maí, nærri borg­inni Homs í Sýrlandi.

Rami Abdul Rahman, yfir­maður sam­taka sem fjalla um mann­rétt­indi í Sýrlandi, hefur mynd­bandið undir höndum. „Þetta er fyrsta svona til­fellið þar sem barn afhöfðar mann­eskju,“ segir Rahman í sam­tali við Reuters.

Liðsmenn Íslamska rík­is­ins hefur afhöfðað eða myrt sýr­lenska borg­ara, her­menn, erlenda hjálp­ar­starfs­menn og blaða­menn á svæðum sem þeir ráða yfir. Á mynd­böndum sem þeir hafa dreift á inter­net­inu af voða­verk­unum sjást börn jafnan horfa á eða taka þátt í dráp­unum.

NATO undirbýr stærstu heræfingu síðan 2002


NATO og banda­menn sam­tak­anna fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs hyggj­ast halda stærstu her­æf­ingu sína síðan 2002 í októ­ber. 36.000 manns taka þátt í æfing­unni sem er liður í und­ir­bún­ingi fyrir átök við Íslamska ríkið.

[caption id="attachment_34375" align="alignleft" width="229"] Hans-Lothar Domrose, her­for­ingi[/caption]

Á mið­viku­dag sagði Hans-Lothar Domrose, her­for­ingi NATO, segir þáttak­endur munu æfa árás á landi, í lofti og á legi. Svíþjóð og Aust­ur­ríki munu einnig taka þátt í æfing­unni jafn­vel þó þau séu ekki í NATO. Alls munu 30 ríki taka þátt í æfing­unni sem fram fer á Ítalíu, Spáni, Portugal og á Mið­jarð­ar­hafi.

Athygli NATO hefur und­an­farna mán­uði verið á Rúss­landi sem það telur vera sí rót­tækara í aðgerðum sinum. Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, lagði áherslu á að því upp­lausn­ar­á­standi sem ríkir fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs verði að ljúka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár