Íbúðalánasjóður fækkar framkvæmdastjórum og sviðum

Íbúða­lána­sjóður kynnti í dag nýtt skipu­lag, þar sem fram­kvæmda­stjórum fyr­ir­tæk­is­ins er fækkað úr sex í fjóra og starf­semi sjóðs­ins er flokkuð í fjögur svið: við­skipta­svið, útlána­svið, fjár­mála­svið og rekstr­ar­svið. Þetta er gert í kjöl­far þess að vinnu við úrlausn skulda­mála í kjöl­far hruns­ins er að mestu lokið. Hermann Jónasson, for­stjóri Íbúða­lána­sjóðs, segir því eðli­legt að aðlaga starf­sem­ina að breyttum aðstæðum.

Nýja skipu­lagið er liður í stefnu­mót­un­ar­vinnu stjórnar ÍLS í fram­haldi af skilum á skýrslu verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála.

Að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá sjóðnum hefur hann náð fram tölu­verðri rekstr­ar­hag­ræð­ingu á síð­ustu tveimur árum en áfram­hald­andi hag­ræð­ing og ein­földun starf­sem­innar verða áfram mark­mið. Nú á að „aðlaga rekst­ur­inn frekar að kjarna­starf­semi sjóðs­ins sem er að veita þjón­ustu í almanna­þágu með hús­næð­is­lán­veit­ingum til almenn­ings um allt land.“ Samhliða þessu ætlar sjóð­ur­inn að halda áfram að selja eignir og draga úr þeim hluta starf­sem­innar sem tengd­ist úrlausn skulda­mála, enda sé þeirri vinnu að mestu lokið.

Afkoman neikvæð um 808 milljónir á fyrri helmingi ársins


Afkoma Íbúða­lána­sjóðs var nei­kvæð um 808 millj­ónir króna á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­an­borið við 1.308 millj­óna tap árið á undan. Þrátt fyrir tapið, var nið­ur­staðan betri en áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Eig­in­fjár­hlut­fall sjóðs­ins hækk­aði í 4,8 pró­sent en var 4,5 pró­sent í upp­hafi árs. Hlut­fallið er reiknað með sama hætti og eig­in­fjár­hlut­fall fjár­mála­fyr­ir­tækja. Lang­tíma­mark­mið sjóðs­ins er að hlut­fallið sé yfir fimm pró­sent. Eigið fé Íbúða­lána­sjóðs í lok tíma­bils­ins er 17.279 millj­ónir króna en var 18.087 millj­ónir króna í árs­lok 2014.

Vaxta­tekjur námu sam­tals rúm­lega þrjá­tíu millj­örðum krónum sam­an­borið við vaxta­tekjur upp á 27,5 millj­arða á sama tíma í fyrra. Rekstr­ar­kostn­aður var 958 millj­ónir króna og lækk­aði um fimmtán pró­sent eða 170 millj­ónir króna sam­an­borið við sama tíma­bil árið 2014. Stöðu­gildum fækk­aði um níu pró­sent á fyrri hluta árs­ins 2015 og voru 100 sam­an­borið við 109 á sama tíma­bili árið 2014.

Sjóð­ur­inn skil­aði hagn­aði upp á 3,2 millj­arða króna á síð­asta ári og er það í fyrsta sinn sem hann skilar slíkum frá árinu 2008. Í milli­tíð­inni hefur sjóð­ur­inn tapað tæpum 58 millj­örðum króna og rík­is­sjóður hefur þurft að leggja honum til 53,5 millj­arða króna frá árinu 2009 til að halda sjóðnum gang­andi.

Þorri þess hagn­aðar sem Íbúða­lána­sjóður sýnir fyrir árið 2014 er komin til vegna breyt­inga á virð­is­rýrnun útlána sjóðs­ins. Þ.e. inn­heimt­an­leiki lána hefur auk­ist um 2,5 millj­arða króna. Þá skiptir hlut­deild sjóðs­ins í hagn­aði dótt­ur­fé­lags­ins Kletts, sem er leigu­fé­lag utan um hluta þeirra íbúða sem Íbúða­lána­sjóður hefur leyst til sín, líka tölu­verðu máli.

Árs­reikn­ingur sjóðs­ins sýnir að útlán hans hafi lækkað um 40,4 millj­arða króna á síð­asta ári. Hann er samt sem áður enn langstærsti íbúða­lán­veit­andi á Íslandi með 43 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Hún hefur hins vegar minnkað hratt á und­an­förnum árum. Hún var talin vera á bil­inu 55 til 60 pró­sent árið 2011. Ný útlán sjóðs­ins voru líka mjög lág. Alls námu þau 6,6 millj­örðum króna á síð­asta ári og sam­kvæmt mán­að­ar­skýrslum sjóðs­ins var umfang lána til ein­stak­linga, venju­bundin hús­næð­is­lán, um 4,7 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar juk­ust íbúða­lán Lands­bank­ans um 39 millj­arða króna á síð­asta ári, um nán­ast sömu krónu­tölu og heild­ar­út­lán íbúða­lána­sjóðs dróg­ust saman.

Óvissa um framtíðarhlutverk


Vaxta­munur Íbúða­lána­sjóðs er ekki mik­ill, ein­ungis 0,28 pró­sent. Hann dugar ekki fyrir virð­is­rýrnun sam­bæri­legri þeirra sem efna­hags­hrunið fól í sér og vegna þess­arra aðstæðna þarfn­ast sjóð­ur­inn þess að eig­and­inn, skatt­greið­endur á Íslandi, styðji við bakið á honum.

Það ríkir hins vegar gríð­ar­leg óvissa um hvert fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs sé. Í skýrslu stjórnar sem fylgdi árs­skýrsl­unni segir að þetta óvissu­á­stand hafi staðið yfir „frá þeim tíma er félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra skip­aði verk­efna­stjórn um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála 9. sept­em­ber 2013 í sam­ræmi við þings­á­lyktun um aðgerðir vegna skulda­vanda íslenskra heim­ila sem sam­þykkt var á Alþingi vorið 2013. Verk­efna­stjórn um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála hefur skilað ráð­herra til­lögum sínum og unnið er að því í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu að skapa ramma fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lags með laga- og reglu­gerða­smíð sem von­andi verður til­búið sem fyrst. Fyrir vikið hefur stefnu­mót­andi ákvörð­un­ar­taka í nán­asta umhverfis sjóðs­ins verið sett í bið­stöðu en slíkt hefur áhrif á rekstur sjóðs­ins með ýmsum hætti“.

Bæði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og Efnahags- og fram­fara­stofn­unin vilja að Íbúða­lána­sjóður verði lagður niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár