Fimm myndrit: Atvinnuleysi

Atvinnu­leysi mældis eitt pró­sent í júlí. Það er lægsta atvinnu­leysi sem mælst hefur á Íslandi í fimm ár.

Atvinnu­leysi á Íslandi er nú með lægsta móti. Eftir að hafa náð hámarki í 11,9 pró­sentum í maí árið 2010 hefur atvinnu­leysi minnkað stöðugt, eða um 0,7 pró­sentu­stig að jafn­aði á ári. Árið 2015 og 2016 minnk­aði atvinnu­leysi hratt, eða um eitt pró­sentu­stig bæði árin. Það sem af er árinu 2017 (fyrstu sjö mán­uði árs­ins) hefur atvinnu­leysi minnkað um 0,2 pró­sentu­stig frá því í fyrra.

Atvinnu­leysi sveifl­ast mikið á milli mán­aða hér á landi. Á mynd­rit­inu hér að ofan sést með­al­at­vinnu­leysi yfir heilt ár á árunum 1991 til 2016. Á mynd­rit­inu hér að neðan má svo sjá atvinnu­leysi í hverjum mán­uði frá og með jan­úar 2003 til og með júlí 2017.

Í júlí náði atvinnu­leysi lægsta punkti sínum á þessu tíma­bili sem hér er grein (2003 til júlí 2017), í 1% atvinnu­leysi. Hlutfall atvinnu­lausra árið 2017 var hæst í maí þegar það náði 5,1 pró­senti.

Þessar árs­tíða­bundnu sveiflur ráð­ast ekki síst af þátt­töku ungs fólks á vinnu­mark­aði. Í júní á þessu ári voru 98,1 pró­sent fólks á aldr­inum 16 til 24 ára á atvinnu­mark­aði, miðað við 82,2 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 25-74 ára. Í jan­úar var hlut­fall ungs fólks á atvinnu­mark­aði hins vegar 77,2 pró­sent.

Hærra hlut­fall atvinnu­leysis í maí skýrist að miklu leyti af atvinnu­leysi ungs fólks, sem var 17,1 pró­sent miðað við 2,4 pró­sent atvinnu­leysi meðal þeirra sem eru eldri en 25 ára. Í júní voru náms­menn svo komnir í vinnu því atvinnu­leysi meðal ungs fólks var skyndi­lega orðið 5,1 pró­sent.

Atvinnu­leysi er skil­greint í lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar en allir þeir sem fá ekki vinnu þrátt fyrir leit og færni um að vinna telj­ast atvinnu­lausir. Fjöldi atvinnu­lausra má þess vegna skýra sem hlut­fall af atvinnu­þátt­töku. Allir þeir sem eru í vinnu eða að leita að vinnu telj­ast til þátt­tak­endur á vinnu­mark­aði.

Á Íslandi er atvinnu­þátt­taka með mesta móti, miðað við OECD-löndin. Síð­ast­liðin 25 ár hefur atvinnu­þátt­taka ekki farið undir 80% af mann­fjölda. Tölurnar hér að neðan sýna atvinnu­þátt­töku 15 ára og eldri í OECD-lönd­unum árið 2016. Hæsta súlan merkir atvinnu­þátt­töku á Íslandi.

Atvinnu­leysi á Íslandi er jafn­framt það minnsta sé það borið saman við OECD-löndin.

Atvinnu­þátt­taka kvenna er að jafn­aði minni en karla. Í júlí var atvinnu­þátt­taka karla til að mynda 87,7 pró­sent en atvinnu­þátt­taka meðal kvenna 78,7 pró­sent. Ekki hefur verið mik­ill munur á atvinnu­leysi karla og kvenna und­an­farin ár, þó mun­ur­inn hafi verið tals­verður á árum efna­hags­þreng­ing­anna 2008-2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár