Hafa viku til að fara yfir meðmælalista

Tveir skil­uðu inn fram­boði til for­seta í gær en fram­boðs­frestur rann út á mið­nætti. Yfir­kjör­stjórn hefur viku til að fara yfir með­mæla­lista.

Yfir­kjör­stjórn hefur viku til að fara yfir með­mæla­lista for­seta­fram­bjóð­enda og til­kynna með aug­lýs­ingu hverjir eru í fram­boði. Ekki er úti­lokað að slík aug­lýs­ing birt­ist fyrr.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

For­seta­kosn­ing­arnar fara fram þann 27. júní næst­kom­andi en kosn­ing utan kjör­fundar erlendis hefst mánu­dag­inn 25. maí. Fram kom í fréttum RÚV í gær að Guðni Th. Jóhann­es­son og Guð­mundur Franklín Jónsson hefðu skilað inn fram­boði til for­seta en fram­boðs­frestur rann út á mið­nætti.

Framboð til emb­ættis for­seta Íslands telj­ast ekki gild fyrr en fram­bjóð­endur hafa skilað inn til­skildum fjölda með­mæl­enda, 1500 til 3000 á lands­vísu, en ákveðið hlut­fall und­ir­skrifta þarf að ber­ast úr hverjum lands­fjórð­ungi.

Guð­mundur Frank­lín ákvað að bjóða sig fram til for­seta Íslands í apríl. Í ræðu sem hann flutti í gegnum Face­book kom fram að það væri gert eftir nokkra íhugun og mikla hvatn­ingu. Fram­boð hans myndi í meg­in­þáttum snú­ast um að efla for­seta­emb­ætt­ið, nýta mál­skots­rétt­inn og leggja sitt af mörkum til að berj­ast gegn spill­ingu.

Hann bauð sig líka fram til for­seta árið 2016 en dró þá fram­boð sitt til baka nokkrum vikum síðar og lýsti yfir stuðn­ingi við Ólaf Ragnar Gríms­son, sem hætti stutt­lega við að hætta við að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Ólafur Ragnar dró svo fram­boð sitt til baka og var ekki í fram­boði þá um sum­ar­ið.

Guðni Th. safn­aði hámarks­fjölda með­mæla fyrir fram­boð sitt á nokkrum klukku­tímum þann 8. maí síð­ast­lið­inn en hann óskaði eftir und­ir­skriftum í gegnum sam­fé­lags­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár