Framsókn ekki mælst með meira fylgi í átta ár og andar ofan í hálsmál Sjálfstæðisflokks

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa bætt við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum en Framsókn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með auk­inn stuðn­ing.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast sam­tals með 50,5 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er tæpum fjórum pró­sentu­stigum minna fylgi en þeir fengu í kosn­ing­unum í sept­em­ber þegar 54,3 pró­sent atkvæða fóru til Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks eða Vinstri grænna.

Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn hafa bæði tapað fylgi frá kosn­ingum en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur bætt við sig. Nú segj­ast 21,9 pró­sent lands­manna styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem er 2,5 pró­sentu­stigum minna fylgi en hann fékk í sept­em­ber og 0,5 pró­sentu­stigi minna en fylgið sem flokk­ur­inn mæld­ist með í jan­úar. Vinstri græn dala lít­il­lega á milli mán­aða og mæl­ast nú með 10,5 pró­sent, sem er 2,1 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi. Framsókn mælist hins vegar með 18,1 pró­sent fylgi, sem er mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum Gallup síðan í des­em­ber 2014, þegar hann sat í rík­is­stjórn undir for­sæti þáver­andi for­manns, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 0,8 pró­sentu­stigum meira fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum og er nú ein­ungis 3,8 pró­sentu­stigum minni en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

[adspot]Á meðal stjórn­ar­and­stöðu­flokka er mest sigl­ing á Pírötum. Þeir mæl­ast nú með 13,2 pró­sent fylgi og eru þriðji stærsti flokkur lands­ins. Það er 0,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með í jan­úar og 4,6 pró­sentu­stigum meira en hann fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra. Enginn flokkur hefur bætt við sig meira fylgi á kjör­tíma­bil­inu miðað við stöðu mála í könn­unum Gallup.

Sam­fylk­ingin mælist á svip­uðu slóðum nú og í jan­úar með 11,1 pró­sent fylgi, sem er 1,2 pró­sentu­stigum yfir kjör­fylgi. Þá segj­ast alls 9,7 pró­sent að þeir ætli að kjósa Viðreisn sem er 1,4 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í fyrra­haust.

Hinir tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, Flokkur Fólksins og Mið­flokk­ur­inn, hafa báðir dalað síð­ast kosið var síð­ast. Flokkur fólks­ins mælist nú með 7,5 pró­sent fylgi, 1,4 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi, og Mið­flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 3,9 pró­sent lands­manna, sem er 1,6 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu kosn­ingum.

Níundi flokk­ur­inn sem mælist með fylgi er Sós­í­alista­flokkur Íslands, en 3,9 pró­sent lands­manna segj­ast styðja hann.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar milli mán­aða og mælist nú 58 pró­sent. Nið­ur­stöður um fylgi flokka á lands­vísu eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­anna 1. til 28. febr­úar 2022. Heild­ar­úr­taks­stærð var 9.672 og þátt­töku­hlut­fall var 49,7 pró­sent. Vikmörk við fylgi flokk­anna eru 0,6 til 1,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár