Hærra bensínverð eykur árlegan kostnað heimila um milljarða

Verð á elds­neyti hefur hækkað um 14 pró­sent frá ára­mótum. Ríkið tekur til sín rúm­lega helm­ing af hverjum seldum lítra.

Bens­ín­verð hefur gríð­ar­lega mikil áhrif á buddu lands­manna. Frá því að við­mið­un­ar­verð á bens­íni náði lægsta punkti frá októ­ber 2009 í krónum talið júlí í fyrra, og var 184,7 krónur, og fram í miðjan sept­em­ber síð­ast­lið­inn hefur það hækkað um 38,2 krónur, eða um tæp­lega 21 pró­sent á tæpum 15 mán­uðum. Þetta má lesa út úr Bens­ín­vakt Kjarnans sem unnin er mán­að­ar­lega í sam­starfi við bens­ín­verð.is. Frá ára­mótum hefur verðið hækkað um næstum 14 pró­sent.

[links]Vert er að taka fram að við­mið­un­ar­verðið sem hér er stuðst við er með lægstu verðum sem standa til boða og því má reikna með að algeng­asta verð sé hærra. Ef til dæmis er miðað er við hæsta verð á bens­ín­lítra í dag, sem er 234,4 krónur á lítra, hefur hækk­unin numið 27 pró­sentum frá miðju sumri 2017.

Allar spár gera ráð fyrir því að verðið muni halda áfram að hækka. Það er þó enn tölu­vert langt frá hæsta punkt­inum sem það fór í, en um miðjan apríl 2012 var við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra 268,1 krónur.

Ríkið tekur rúman helming

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 19,78 pró­­sent af verði hans um miðjan sept­em­ber í sér­­stakt bens­ín­gjald, 12,27 pró­­sent í almennt bens­ín­­gjald og 3,7 pró­­sent í svo­kallað kolefn­is­­gjald, sem er lagt á jarð­efna­elds­neyti og jarð­gas. Þá er ótalið að 19,35 pró­­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­­ur. Sam­an­lagt fór því 122,8 krónur af hverjum seldum lítra til rík­­is­ins, eða 55,1 pró­­sent. Hæstur fór hlutur rík­­is­ins í 60,26 pró­­sent í júlí 2017.

[adspot]Þessi gjöld skila veru­legum tekjum. Ekki er til­greint sér­stak­lega í fjár­laga­frum­varpi næsta árs hversu stór hluti þeirra tekna sem falla til vegna greiðslu virð­is­auka­skatts er vegna bensín- og dísil­kaupa, en sú upp­hæð hleypur án vafa á mörgum millj­örðum króna. Alls er reiknað með að virð­is­auka­skattur skili rík­is­sjóði í heild 255,3 millj­örðum króna á næst ári, sem er 15,8 millj­örðum krónum meira en í ár.

Til við­bótar eru eru áætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs vegna elds­neyt­is­gjalda 31,2 millj­arðar króna á næsta ári. Olíu­gjaldið hækkar til dæmis úr 11,4 millj­örðum króna í 12,1 millj­arð króna og bens­ín­gjald verður 13,2 pró­sent. Á síð­ustu árum hefur þó kolefn­is­gjaldið hækkað mest. Frá 2017 hefur það hækkað um 3,2 millj­arða króna, en vert er að taka fram að það hækkar lítið á næsta ári, eða um rúmar 300 millj­ónir króna.

Álagningin sveiflast

Bens­ín­vakt Kjarnans reiknar einnig út hlut olíu­­­fé­lags í hverjum seldum lítra sem afgangs­­stærð þegar búið er að greina aðra kostn­að­­ar­liði. Hlutur olíu­­­fé­laga, þ.e. álagn­ingin sem fer í þeirra vasa, er nú að minnsta kosti 38,65 krónur á hvern seldan bens­ín­lítra. Hún hefur lækkað umtals­vert á síð­­ast­liðnu ári. Í maí 2017 fengu olíu­­­fé­lögin 41,74 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra.

Olíu­­­fé­lögin taka nú að minnsta kosti 17,34 pró­­sent af hverjum seldum olíu­­lítra. Það hlut­­fall náði lægsta punkti sínum í sept­­em­ber 2017 þegar olíu­­­fé­lögin fengu 11,38 pró­­sent í sinn hlut. Til sam­an­­burðar þá fengu þau 21,3 pró­­sent af hverjum seldum lítra í maí 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár