Mynd: Úr safni

Olíuverð hækkar og hefur áhrif á nánast allt á Íslandi

Efna­hagur Íslands er hluti af alþjóða­væddum heimi við­skipta, þar sem olía er áhrifa­mesta hrá­varan. Eftir mikið góð­æri und­an­farin ár gæti hröð verð­hækkun á olíu vakið verð­bólgu­draug­inn.

Maður er nefndur John Bolton. Hann er 69 ára gam­all og starfar nú sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta.

Hann hefur lengi til­heyrt þeim armi Repúblikana­flokks­ins sem sér ekki ávinn­ing í því fyrir Banda­ríkin að til­heyra Sam­ein­uðu þjóð­unum og vill heldur ekki að Banda­ríkin taki þátt í alþjóð­legum samn­ingum, sem með ein­hverjum hætti fela í sér að mögu­lega fái Banda­ríkin ekki nákvæm­lega það sem þau vilja út úr þeim.

Meðal helstu stefnu­mála hans í gegnum tíð­ina - sem nú er orðið að mik­il­vægu atriði í utan­rík­is­stefnu Donalds Trump - er að ein­angra Íran og í versta falli beita landið her­valdi til að tryggja betur banda­ríska hags­muni.

Þetta kann að hljóma frekar ber­ort, og kannski ein­falt, fyrir ein­hverjum, en þetta hefur verið hinn opin­beri boð­skapur Bolton lengi. Hann vill að Banda­ríkin beiti sér beint, til að tryggja póli­tíska og efna­hags­lega hags­muni, og þar er olían í mið­aust­ur­löndum í for­grunni.

Eftir að Trump beitti sér fyrir því að sam­komu­lagið sem gert var í tíð Baracks Obama, sem aflétti við­skipta­þving­unum af Íran í skiptum fyrir það að stjórn­völd þar í landi létu af þróun kjarn­orku­vopna, yrði gert að engu, þá hefur staðan í olíu­hag­kerfi heims­ins breyst mikið.

Olía frá Íran kemst lítið sem ekk­ert á heims­markað sem dregur úr fram­boði.

Þvinganir breyta stöðunni

Ein afleið­ing við­skipta­þving­ana Banda­ríkj­anna - og fleiri ríkja - gagn­vart Íran er því hækkun olíu­verðs­ins á heims­mark­aðs­verði. Þrátt fyrir það er Donald Trump Banda­ríkja­for­seti æfur yfir stöð­unni og greindi AFP frétta­stofan frá því í vik­unni að hann hefði rætt við Salman kón­ung í Sádí-Arabíu um að OPEC olíu­fram­leiðslu­ríkin þyrftu að auka fram­leiðslu til að vinna gegn verð­hækk­unum á olíu. Verð­hækk­anir á olíu eru óvin­sælar í Banda­ríkj­unum enda koma þær beint við rekstur hins dæmi­gerða heim­ilis.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og þjóðaröryggisráðgjafinn hans, John Bolton, hafa mikil áhrif á hvernig heimsmarkaðsverð á olíu þróast.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjaf­inn hans, John Bolton, hafa mikil áhrif á hvernig heims­mark­aðs­verð á olíu þró­ast.

Eftir að Trump beitti sér fyrir því að sam­komu­lagið sem gert var í tíð Baracks Obama, sem aflétti við­skipta­þving­unum af Íran í skiptum fyrir það að stjórn­völd þar í landi létu af þróun kjarn­orku­vopna, yrði gert að engu, þá hefur staðan í olíu­hag­kerfi heims­ins breyst mikið.

Olía frá Íran kemst lítið sem ekk­ert á heims­markað sem dregur úr fram­boði.

Þvinganir breyta stöðunni

Ein afleið­ing við­skipta­þving­ana Banda­ríkj­anna - og fleiri ríkja - gagn­vart Íran er því hækkun olíu­verðs­ins á heims­mark­aðs­verði. Þrátt fyrir það er Donald Trump Banda­ríkja­for­seti æfur yfir stöð­unni og greindi AFP frétta­stofan frá því í vik­unni að hann hefði rætt við Salman kón­ung í Sádí-Arabíu um að OPEC olíu­fram­leiðslu­ríkin þyrftu að auka fram­leiðslu til að vinna gegn verð­hækk­unum á olíu. Verð­hækk­anir á olíu eru óvin­sælar í Banda­ríkj­unum enda koma þær beint við rekstur hins dæmi­gerða heim­ilis.

Þá ýta þær einnig undir verð­bólgu­þrýst­ing, sem svo hraðar vaxta­hækk­unum Seðla­banka Banda­ríkj­anna, en Trump hefur einnig gagn­rýnt þær harð­lega. Póli­tískt eru því miklar og hraðar verð­hækk­anir olíu ekki góðar fyrir Trump, sér­stak­lega núna þegar hann er með vind­inn í fangið á mörgum víg­stöðvum, og kosn­ingar (Midterm Election) framundan í nóv­em­ber, þegar kjör­tíma­bil hans er tæp­lega hálfnað.

Olíusveiflan kemur til Íslands

Á und­an­förnum fjórum mán­uðum hefur verð á heims­mark­aðs­verð á hrá­olíu hækkað um 45 pró­sent og er nú komið í um 86 Banda­ríkja­dali á tunn­una.

Það er mikil breyt­ing á skömmum tíma. Þróunin hefur mikil áhrif á marga geira hér­lendis, eins og sjáv­ar­út­veg og flutn­inga­fyr­ir­tæki, sem þurfa að kaupa mikið magn af elds­neyti til að halda starf­semi sinni gang­andi. Og aukin kostn­aður við flutn­inga á vöru leiðir eðli­lega til hærra vöru­verðs fyrir neyt­endur. Áhrif hækk­unar á verði olíu eru því víð­tæk.

Sá iðn­aður á Íslandi sem finnur hvað mest fyrir þess­ari breyt­ingu er þó flugið. Íslensku flug­fé­lögin, WOW air og Icelandair, hafa bæði átt í vand­ræðum upp á síðkastið og það sér ekki fyrir end­ann á því ennþá, þrátt fyrir að WOW air hafi bjargað sér fyrir horn á dög­unum með því að útvega 60 millj­ónir evra, eða um 7,7 millj­arða króna, í skulda­bréfa­út­boði. Þá fór Primera Air, sem er í íslenskri eigu, í greiðslu­stöðvun í vik­unni, nokkrum vikum eftir að eig­andi þess, Andri Már Ing­ólfs­son sagði við Morg­un­blaðið að Primera Air væri við það að loka skulda­bréfa­út­boði upp á 40 millj­ónir evra, um 5,2 millj­arða króna, með þátt­töku alþjóð­lega fjár­festa.

WOW air vinnur nú að því að afla meira fjár og verða skráð á markað eins fljótt og hægt er, og eru Arctica Finance og Arion banki að vinna að því ferli með fyr­ir­tæk­inu.

Rekstr­ar­um­hverfi flug­fé­laga er fjand­sam­legt í augna­blik­inu og við­kvæm fjár­hags­staða WOW air má ekki við því að sú staða hald­ist lengi. Flest evr­ópsk flug­fé­lög verja sig fyrir hækk­unum á elds­neyt­is­verði, með fram­virkum samn­ingum um að kaupa elds­neyti á ákveðnu verði til að tryggja sig fyrir miklum sveiflum. Eðlilegt er að 30 til 80 pró­sent af elds­neyt­is­birgðum þeirra séu tryggðar með þessum hætti. Þau hafa því meira and­rými til að takast á við heims­mark­aðs­verðs­hækk­an­irnar en þeir sem gera ekki svona samn­inga. Icelandair er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem gerir þetta.

Skúli Mogensen og WOW air eru enn að berjast fyrir tilveru fyrirtækisins. Mynd: WOW air
Skúli Mogensen og WOW air eru enn að berj­ast fyrir til­veru fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: WOW air

WOW air ver sig hins vegar ekki fyrir verð­hækk­unum á elds­neyt­is­verði með neinum hætti heldur kaupir allt elds­neyti á vélar sínar á spotmark­aði. Fyr­ir­tækið greiðir því mark­aðs­verð hverju sinni fyrir, og það hefur hækkað gríð­ar­lega á mjög skömmum tíma. Til að setja umfang elds­neytis­kaupa í sam­hengi þá eyddi WOW air, sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, um 25 pró­sent af tekjum sínum í að kaupa flug­véla­elds­neyti.

Uppsveiflan magnast upp innan hafta

Ísland hefur um margt notið góðs af rús­sí­ban­areið olíu­verðs­ins á heims­mark­aði á und­an­förnum árum. Verðið var í 130 Banda­ríkja­dölum á tunn­una árið 2011 og hélst hátt alveg fram til árs­ins 2014. Þá hrundi það á skömmum tíma og var komið niður í 25 Banda­ríkja­dali í byrjun árs 2016.

Á sama tíma var ferða­þjón­ustan að vaxa hratt, fjár­magns­höft voru enn fyrir hendi og staða þjóð­ar­búss­ins batn­aði veru­lega. Þá batn­aði fjár­hags­staða heim­ila í land­inu umtals­vert þegar 72,2 millj­arða leið­rétt­ing stjórn­valda á skuldum heim­il­anna kom til fram­kvæmda, síðla árs 2014 og á árinu 2015. Við það batn­aði eig­in­fjár­staða margra heim­ila og aukin kaup­geta mynd­að­ist á fast­eigna­mark­aðnum, sem þá var nokkuð spenntur vegna hús­næð­is­skorts.

Aðstæður til mik­illar og kröft­ugrar upp­sveiflu voru því allar fyrir hendi og það er óhætt að segja að hún hafi orðið að veru­leika. Til marks um það er að árs­hækkun fast­eigna­verðs mæld­ist í fyrra­vor 23 pró­sent og frá árinu 2011 hefur fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tvö­fald­ast í verði. Þetta hafði áhrif á hag­töl­urnar og skulda­staða heim­ila lag­ast mikið við þetta, svo dæmi sé tekið. Eigið fé í hús­næði, sam­kvæmt fast­eigna­mati, sem tekur mið af þing­lýstum kaup­samn­ingum á mark­aði, hefur því auk­ist hratt og raunar með for­dæma­lausum hætti, á und­an­förnum árum.

Breytingar í farvatninu

Allt annað er upp á ten­ingnum núna. Raunar bendir margt til þess að fast­eigna­verð gæti lækkað á næst­unni, sé litið til þeirra aðstæðna sem hafa skap­ast að und­an­förnu. Gengi krón­unnar hefur fallið nokkuð upp á síðkastið, gagn­vart helstu alþjóð­legu myntum, verð­bólgu­þrýst­ingur hefur auk­ist og þús­undir íbúða eru að koma inn á markað, sem getur þá skapað nýjan jafn­vægis­p­unkt í verði milli fram­boðs og eft­ir­spurnar. Evra kostar nú um 132 krónur og Banda­ríkja­dalur tæp­lega 115 krónur. Fyrir innan við hálfu ári kosta evra hins vegar 120 krónur og Banda­ríkja­dalur 99 krónur.

Gríðarleg uppbygging á sér stað á íbúðahúsnæði um þessar mundir. Hún gæti leitt til þess að verð fari að lækka.
Gríð­ar­leg upp­bygg­ing á sér stað á íbúða­hús­næði um þessar mundir. Hún gæti leitt til þess að verð fari að lækka.

Um 5 þús­und íbúðir eru nú í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og munu koma inn á markað á næstu 18 mán­uðum. Erfitt er að segja til hvernig verðið mun þró­ast, en spár gera ráð fyrir á bil­inu eitt til þrjú pró­sent verð­hækk­unum á þessu tíma­bili. Eitt af því sem gæti skipt máli fyrir þró­un­ina eru verð­breyt­ingar á olí­unni, þar sem hún hefur afger­andi áhrif á verð­bólg­una.

Gott fyrir Ísland að vera með lágt olíuverð

Lágt olíu­verð hentar Íslandi vel þar sem þá fer minni gjald­eyrir úr hag­kerf­inu í að kaupa olíu og þá hefur lágt verð einnig jákvæð áhrif á verð­bólgu. Hún helst frekar í skefjum með lágu olíu­verði, þar sem það smitar út í verð á vörum og þjón­ustu, ekki síst þegar kemur að inn­flutn­ingi.

Óhætt er að segja að verð­fallið á fyrr­nefndu tíma­bili, frá 2014 og fram á 2016, hafi verið dramat­ískt, og hafi verkað fyrir okkar örsmáa 200 þús­und manna vinnu­markað sem vítamín­sprauta. Útgerðin eyðir þá minna í olíu, flug­fé­lögin eyddu minna í olíu og heim­ilin sömu­leiðis, á tímum þar sem hag­kerfið allt var að rétta úr kútnum, ekki síst vegna hag­felldrar nið­ur­stöðu þegar kom að upp­gjöri slita­búa föllnu bank­anna.

Straumar og stefnur erlendis hafa áhrif

Ísland er ekki eyland þegar kemur að efna­hags­málum heims­ins, eins og dæmin sanna. Olíu­verðið er mik­ill áhrifa­valdur fyrir gang efna­hags­mála og er líka stórt og mikið við­fangs­efni í stjórn­málum. Einn óvissu­þátt­ur­inn sem Ísland, eins og önnur lönd, þarf að glíma við eru stefnu­mark­andi ákvarð­anir stjórn­valda þegar kemur að olíu­fram­leiðslu. Í Banda­ríkj­unum hafa ákvarð­anir nú þegar haft mikil áhrif á olíu­verð - þá til hækk­unar - og ef það verður farið eftir helstu áherslu­málum fyrr­nefnds Johns Bolton, og félaga hans í starfs­liði Donalds Trump for­seta, þá eru ýmsir óvissu­þættir uppi um hvernig olíu­verðið mun þró­ast. Til dæmis gætu hern­að­ar­að­gerðir gagn­vart Íran haft mikil áhrif. Annað eins hefur gerst eins og að Banda­ríkin grípi til hern­að­ar­að­gerða í mið­aust­ur­löndum, sem síðan hafa áhrif á olíu­iðn­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið undanfarið ár