Hryðjuverkin í febrúar stærsta fréttamál ársins í Danmörku

Frétta­menn Danska rík­is­út­varps­ins sem rekur stærstu og öfl­ug­ustu frétta­stofu lands­ins telja hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn í febr­úar lang stærstu frétt árs­ins í kon­ungs­rík­inu. Kosn­ingar og mál­efni flótta­manna eru líka meðal helstu frétta­mála árs­ins.

Í árs­lok rifja fjöl­miðlar iðu­lega upp helstu við­burði árs­ins, á inn­lendum og erlendum vett­vangi. Dönsku fjöl­miðl­arnir eru á einu máli um að hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn séu frétta­mál árs­ins en flestir þeirra segja jafn­framt að Danir hefðu helst viljað vera án þeirra voða­verka.

Um kaffi­leytið laug­ar­dag­inn 14. febr­úar kom ungur maður, Omar Abdel Hamid El-Hussein gang­andi að sam­komu­hús­inu Krudttönden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Þar stóð þá yfir fundur um tján­ing­ar­frelsi og meðal ræðu­manna var sænski teikn­ar­inn Lars Vilks. Hann hafði gert umdeilda teikn­ingu af spá­mann­inum Múhameð í hunds­líki, teikn­ingin birt­ist í sænska blað­inu Nerikes Allehanda í ágúst árið 2007. Hún olli reiði margra múslima sem hót­uðu teikn­ar­anum líf­láti. Omar El-Hussein var ekki kom­inn til þess að hlýða á umræður um tján­ing­ar­frelsi, hafði annað í huga.

Enginn er til frá­sagnar um hvað hann ætl­að­ist fyrir en örygg­is­verðir voru við inn­gang sam­komu­húss­ins. Þar var líka kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Finn Nörgaard. Þegar Omar El-Hussein var kom­inn að hús­inu dró hann upp byssu, þegar Finn Nörgaard sá hvað verða vildi reyndi hann að yfir­buga Omar El-Hussein en galt fyrir með lífi sínu. Omar El-Hussein tókst ekki að kom­ast inn í sam­komusal­inn en lagði á flótta og þrátt fyrir að mikil leit hæf­ist strax fannst hann ekki. Ótti við að ungi mað­ur­inn, sem lög­reglan fann fljót­lega út hver var, myndi láta aftur til skarar skríða reynd­ist á rökum reistur.

Þótt fjöl­mennt lið lög­reglu og her­manna lok­aði nán­ast af mið­borg Kaup­manna­hafnar eftir til­ræðið við Kruttønden tókst Omar El-Hussein að kom­ast að sam­komu-og bæna­húsi gyð­inga, við Krystal­gade, í gamla háskóla­hverf­inu skömmu eftir mið­nætti aðfaranætur sunnu­dags­ins. Að minnsta kosti tveir lög­reglu­þjónar voru við inn­gang húss­ins, þar sem veisla stóð yfir, en úti á gang­stétt­inni, við hliðið, var örygg­is­vörð­ur­inn Dan Uzan, 37 ára gam­all sjálf­boða­liði. Þegar Omar El-Hussein kom að hlið­inu skaut hann Dan Uzan til bana en lagði svo á flótta. Þrátt fyrir ara­grúa lög­reglu- og her­manna í nágrenn­inu tókst Omar El-Hussein að kom­ast undan. Enginn veit með vissu um ferðir hans fyrr en snemma á sunnu­dags­morgn­inum en þá gekk hann nán­ast í fangið á lög­regl­unni, á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Hann svar­aði kalli lög­reglu með skot­hríð en féll sjálfur fyrir skotum lög­reglu­manna.

Í kjöl­far þess­ara atburða fylgdu miklar umræður um örygg­is­mál og ótt­ann við hryðju­verk en ekki síður hvað fær unga menn eins og Omar El-Hussein til að vinna slík voða­verk. Sú umræða stendur enn.

Eins og getið var í upp­hafi er þetta lang stærsta frétta­mál árs­ins í Danmörku, að mati frétta­manna danskra fjöl­miðla.

Aðrir stór­at­burðir í dönsku þjóð­lífi voru að mati frétta­manna þing­kosn­ing­arnar 18. júní, kosn­ingar um fyr­ir­vara Dana við ESB samn­ing­inn 3. des­em­ber, flótta­manna­straum­ur­inn og mál honum tengd voru líka nefnd, enda­laust klúður hjá dönsku skatt­stof­unni komst líka á blað og svo nefndu frétta­menn tvö mál sem aðrir en Danir myndu lík­lega ekki telja mikil frétta­mál. Annars vegar 75 ára afmæli Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar og að fyrsti danski geim­far­inn Andreas Mogensen þaut út í geim­inn í sept­em­ber. Þegar frétta­menn voru beðnir um að raða þessum málum eftir mik­il­vægi (án þess að það væri nánar skil­greint) nefndu þeir allir flótta­manna­málin.

Ástæðuna sögðu þeir að það væri mál sem varð­aði millj­ónir fólks og yrði vafa­lítið eitt stærsta og erf­ið­asta við­fangs­efni margra Evr­ópu­landa á næsta ári. Engar lausnir, hvorki ein­faldar né flóknar væru í aug­sýn og eng­inn viti í raun hvað muni ger­ast. Frétta­menn nefndu því næst kosn­ing­arnar 3.des­em­ber sl. Úrslit þeirra valda óvissu um sam­starf Dana við Evr­ópu­sam­bandið á ýmsum sviðum, einkum varð­andi lög­reglu-og dóms­mál. Málefni skatts­ins, og allt klúðrið í kringum þá stofnun verða örugg­lega mikið í umræð­unni á kom­andi ári. „Sagan enda­lausa þar sem eitt klúðrið tekur við af öðru” eins og einn frétta­maður komst að orði. Þing­kosn­ing­arnar, þar sem flokk­ur­inn með óvin­sælasta þing­mann Dan­merkur sem for­mann tap­aði miklu fylgi en mynd­aði minni­hluta­stjórn eru ekki eitt­hvað sem verður í fréttum næsta árs. Danski geim­far­inn og ferð hans út í geim­inn og afmæli Mar­grétar Þór­hildar eru svo til heima­brúks eins og nokkrir frétta­menn komust að orði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár