Ríkið skipaði 191 nýja nefnd í fyrra - 24% uppfylltu ekki jafnréttislög

Ríkið skip­aði í 191 nýjar nefndir, ráð og stjórnir í fyrra, sam­kvæmt nýrri skýrslu frá Jafn­rétt­is­ráði. Af þessum 191 voru 76%, eða 146, í sam­ræmi við jafn­rétt­islög. 54 nefndir, eða 24%, voru það ekki.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið skar sig úr og aðeins 53% nefnda sem skip­aðar voru þar í fyrra voru í sam­ræmi við fimmt­ándu grein jafn­rétt­islag­anna. Nefndir á vegum ráðu­neyt­is­ins hafa verið tals­vert til umfjöll­unar und­an­farið eftir að í ljós kom að dóm­nefnd sem fjallar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti er ein­göngu skipuð körlum, og þeir aðilar sem skipa full­trúa í nefnd­ina telja sig vera und­an­þegna jafn­rétt­islögum.

Hjá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu var hlut­fall nefnda í sam­ræmi við lög 62%, þrettán nefndir voru skip­aðar og þar af voru átta í sam­ræmi við jafn­rétt­islögin.

For­sæt­is­ráðu­neytið skip­aði í tíu nefndir, og sjö þeirra eða 70% voru í sam­ræmi við jafn­rétt­islögin. Fjár­mála­ráðu­neytið skip­aði 21 nefnd og 71% voru í sam­ræmi við lögin, eða 15 nefndir.

Á vegum mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins voru skip­aðar 41 nefnd, ráð og stjórnir í fyrra, og 78 pró­sent þeirra eða 32 voru í sam­ræmi við lögin. Hjá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu var hlut­fallið 83%, 25 af þeim 30 nefndum sem voru skip­aðar voru í sam­ræmi við lög.

95% nefnda vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins upp­fylltu jafn­rétt­islögin, en tvær af 41 nefnd sem þar var skipuð var ekki í sam­ræmi við lögin. Utan­rík­is­ráðu­neytið skip­aði aðeins þrjár nefndir í fyrra og allar upp­fylltu þær jafn­rétt­islögin.

Jafn­rétt­is­stofa bendir á það í sinni skýrslu að í sumum til­fellum séu nefndir skip­aðar á grund­velli laga sem til­greina hvaða emb­ætt­is­menn eigi að vera í þeim, og slíku sé ekki hægt að hrófla við nema með laga­breyt­ingum. Það á hins vegar ekki við um dóm­nefnd­ina á vegum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem áður var nefnd. Í nið­ur­stöðum Jafn­rétt­is­stofu er sér­stak­lega tekið fram að það séu ýmsar ástæður sem telj­ist hlut­lægar og mál­efna­legar þegar komi að því að beita und­an­þágu­heim­ild frá því að til­nefna eigi bæði karl og konu í nefndir. „Jafn­rétt­is­stofa hefur tekið til greina þætti eins og reynslu og sér­þekk­ingu starfs­fólks. Aðrar ástæður svo sem að til­nefn­ing­ar­að­ili vilji ekki til­nefna nema einn eru ekki hlut­lægar ástæður sem falla undir und­an­þágu­heim­ild­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár