Mynd: Bára Huld Beck

Íslendingar með tekjur í öðrum gjaldmiðlum geta ekki fengið íslensk húsnæðislán

Á tímum þar sem fjar­vinna hefur sannað gildi sitt er unnið mark­visst að því að gera Íslend­ingum og/eða erlendum rík­is­borg­urum sem vinna alþjóð­leg fyr­ir­tæki að setj­ast að á Íslandi.

Íslend­ingar sem eru með tekjur í öðrum gjald­miðli en íslenskri krónu, eða eru búsettir erlendis, geta ekki fengið hús­næð­is­lán hjá íslenskum bönkum. Ástæðuna er að finna í því að lögum um fast­eigna­lán til neyt­enda var breytt árið 2017 með þeim hætti að lán tengd erlendum gjald­miðlum voru skil­greind sér­stak­lega. Ein skil­grein­ingin á þeim er að slík lán telj­ist lán sem eru „bundið öðrum gjald­miðli en tekjur neyt­anda og eignir, sem hann ætlar til end­ur­greiðslu láns­ins.“

Þessi skil­grein­ing virkar í báðar áttir. Hún meinar þeim sem eru með tekjur í íslenskum krónum að taka hús­næð­is­mál í öðrum gjald­miðlum, en hún meinar sömu­leiðis þeim Íslend­ingum sem vinna fyrir erlend fyr­ir­tæki, og eru með tekjur í öðrum gjald­miðlum en krónu, eða öðrum áhuga­sömum erlendum aðilum með slíkar tekjur, og vilja kaupa sér hús­næði á Íslandi, að fá lán fyrir því í íslenskum krónum.

Lögunum var nýverið breytt á ný til að taka á þess­ari stöðu. Þær breyt­ingar voru sam­þykktar 9. júní síð­ast­lið­inn. Á meðal þeirra breyt­inga sem þar voru sam­þykktar voru á ákvæði um lán sem tengj­ast erlendum gjald­miðlum þannig að neyt­endum standi til boða að taka lán til kaupa á fast­eign hér á landi þótt tekjur þeirra séu í öðrum gjald­miðli en íslenskri krónu.

Þrátt fyrir þessa breyt­ingu standa slík lán ekki til boða hjá stóru bönk­unum þremur. Tveir þeirra eru að athuga hvort þeir muni breyta þeirri afstöðu í ljósi nýlegu laga­breyt­ing­anna. Sá þriðji segir hins vegar að eins og staðan sé í dag sé hann ekki „tækni­lega til­bú­inn“ í að veita slík lán.

Vonast til að lánin verði veitt

Þegar frum­varp um breyt­ingar á lög­unum var lagt fram af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í febr­úar síð­ast­liðnum, kom fram í grein­ar­gerð að lán tengd erlendum gjald­miðlum eru ekki hluti af vöru­fram­boði íslenskra við­skipta­banka og líf­eyr­is­sjóða. Yrði frum­varpið að lögum stæðu vonir til að sú staða breyt­ist. Að minnsta hvað varði „lán í íslenskum krónum til neyt­enda til kaupa á fast­eignum hér á landi í þeim til­vikum sem tekjur þeirra sem ætl­aðar eru til end­ur­greiðslu láns­ins eru í erlendum gjald­miðli. Einnig er von­ast til að til­lag­aðar breyt­ingar bæti aðgengi neyt­enda hér á landi með erlendar tekjur, og neyt­enda sem eru búsettir erlendis, t.d. náms­manna, að neyt­enda­lánum í íslenskum krónum.“

Kjarninn leit­aði svara hjá Íslands­banka, Lands­bank­anum og Arion banka um hvort að til stæði að fara að bjóða fólki með tekjur í öðrum gjald­miðli en íslenskum krónum upp á hús­næð­is­lán, í ljósi þess að ofan­greint frum­varp er orðið að lögum og vilji stjórn­valda með sam­þykkt þess skýr.

Íslandsbanki telur sig ekki geta uppfyllt nokkrar íþyngjandi skyldur sem krefjist mikillar forritunar og tæknilegrar vinnu.
Íslands­banki telur sig ekki geta upp­fyllt nokkrar íþyngj­andi skyldur sem krefj­ist mik­illar for­rit­unar og tækni­legrar vinnu.

Íslands­banki, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, segir í sínu svari að þótt lög geri ráð fyrir að hægt sé að veita lán tengd erlendum gjald­miðlum þá sé bank­anum ekki skylt að veita slík lán. „Með nýlegri laga­breyt­ingu var aðeins slakað á kröf­unum sem varða lán tengd erlendum gjald­miðlum og þarf því að upp­fylla færri skyldur en áður var. Lög­gjaf­inn gekk þó ekki jafn langt og við höfðum óskað eftir. Eftir standa því nokkrar íþyngj­andi skyldur sem bank­anum er ekki unnt að upp­fylla. Þær krefj­ast mik­illar for­rit­unar og tækni­legrar vinnu sem þyrfti að vera lokið áður en slík lán yrðu veitt. Eins og staðan er í dag erum við því ekki tækni­lega til­búin í að veita slík lán.“

Eru með lánin til athugunar

Í svari Lands­bank­ans, sem einnig er í eigu íslenska rík­is­ins, kemur fram að bank­inn hafi hingað til ekki talið sig geta upp­fyllt öll ákvæði lag­ana um veit­ingu erlendra fast­eigna­lána, svo sem upp­lýs­inga­skildu um geng­is­breyt­ingar. „Nýlega voru gerðar breyt­ingar á lögum um fast­eigna­lán til neyt­enda, m.a. á ákvæði sem teng­ist veit­ingu erlendra fast­eigna­lána. Í kjöl­farið hófst athugun innan bank­ans á því hvort breyt­ingin valdi því að við getum veitt slík lán.“

Arion banki, eini stóri bank­inn á Íslandi sem keppir á hús­næð­is­lána­mark­aði sem er í einka­eigu, segir í sínu svari að almennt sé hann ekki að veita hús­næð­is­lán til ein­stak­linga sem eru með tekjur í öðrum gjald­miðli en íslenskri krónu. „Við erum hins vegar að skoða að bjóða upp á slík lán. Neyt­enda­stofa setur regl­urnar varð­andi utan­um­hald og gætu þær orðið íþyngj­andi. Bankinn vill því bíða og sjá hvernig reglu­verkið verður á þessum lánum áður en það verður farið að bjóða upp á þau.“

Vilja lokka sérfræðinga í fjarvinnu til landsins

Málið er áhuga­vert í öðru sam­hengi. Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sagði fyrr í þessum mán­uði, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, að áhuga­verð tæki­færi hafi skap­ast fyrir Íslands veg COVID-19 far­ald­urs­ins og allrar fjar­vinn­unnar sem far­aldr­inum fylg­ir.

Nú væri unnið að því að gera erlendum rík­is­borg­urum sem starfa fyrir fyr­ir­tæki erlendis auð­veld­ara að setj­ast hér að og vinna fjar­vinnu.

Tækni­fyr­ir­tæki á borð við Twitter, Facebook og fleiri hafa gefið það út að fjar­vinnan hafi gefið svo góða raun í far­aldr­inum að héðan í frá verði starfs­mönnum algjör­lega frjálst að vinna að heim­an. Sem opnar nýja mögu­leika fyrir lönd eins og Ísland að lokka hingað þetta starfs­fólk.

Hug­myndin er sú að sér­fræð­ing­arnir myndu halda áfram að starfa fyrir þau alþjóð­legu fyr­ir­tæki sem þeir starfa fyrir í dag, en búa á Íslandi. Hagur íslensks sam­fé­lags yrði margs­konar. Kristinn Árni L. Hró­bjarts­son, rit­stjóri nýsköp­un­ar­vefs­ins Northstack, benti til að mynda á það í við­tali í Kjarn­anum í maí að eitt stærsta vanda­mál okkar væri að það búi mjög fáir á land­inu og til þess að búa til hag­kerfi fram­tíð­ar­innar þurfi fólk með rétta þekk­ingu og rétta reynslu. „Það eru tvær leiðir til þess að búa það til, annað hvort að senda það í gegnum háskóla eða flytja það inn. Háskóla­kerfið annar bara ákveðið miklu á ári og fljót­leg­asta leiðin væri að flytja inn fullt af fólki. Það er stóra pæl­ingin.“ Með auknum fjölda aðfluttra fjar­vinn­andi sér­fræð­inga væri hægt að efla frum­kvöðla­sam­fé­lagið hér á landi veru­lega.

Margar hindr­anir eru í veg­inum fyrir því að sér­fræð­ingar, hvort sem þeir eru íslenskir að upp­runa eða erlendir, sem vilja búa á Íslandi en starfa áfram fyrir erlendan atvinnu­rek­anda geri slíkt. Ein sú helsta er að sem stendur geta þeir geta ekki tekið hús­næð­is­lán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár