Hvernig tengist ójöfnuður loftslagsmálum?

Hver er teng­ingin milli lofts­lags­mála og ójöfn­uðar? Er hægt að berj­ast fyrir auknum jöfn­uði og gegn afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga á sama tíma?

Hitabylgjur í sumar hafa leikið sumar borgir grátt.
Hita­bylgjur í sumar hafa leikið sumar borgir grátt.

Afleið­ingar vegna hlýn­unar jarð­ast virð­ast versna með hverju árinu sem líður. Óttast er um fram­tíð­ina þar sem dauðs­föll vegna hita­bylgja og póli­tískra upp­reisna tengdar þurrkum geti hrakið fjölda fólks á flótta á næstu árum. Gæti verið að hægt sé að sporna við þess­ari þróun með auknum jöfn­uði?

Þurrkar, eldar og skæðar hitabylgjur

Þrátt fyrir kulda og vætu á Íslandi hefur sum­arið ein­kennst af skæðum hita­bylgjum víðs vegar um heim­inn. Hitamet hafa verið slegin í öllum heims­hornum, skóg­ar­eldar geisað í Svíþjóð og langt þurrka­tíma­bil í júlí gerði mörgum Evr­ópu­löndum erfitt fyrir. Geim­fara­stofnun Evr­ópu­ríkja gaf nýlega út gervi­hnatt­ar­mynd þar sem ber­lega sést hvernig Danmörk hefur skrælnað vegna þurrks­ins og sam­kvæmt The Star lét­ust 53 í Montreal í Kanada vegna skæðrar hita­bylgju þar í byrjun júlí­mán­aðar.

Sumarið er enn ein birt­ing­ar­mynd hnatt­rænnar hlýn­unar auk vanda­mál­anna sem fylgja munu henni á næstu árum og ára­tugum. Vís­inda­menn spá auk­inni tíðni þurrka og hita­bylgja sam­hliða allt að 2,7 metra hækkun sjáv­ar­borðs á þess­ari öld, haldi hlýn­unin áfram óbreytt. Samhliða þessu mun með­al­hita­stig jarð­ar­innar hækka um allt að fjórar gráður. Ljóst er að allir jarð­ar­búar muni finna fyrir þessum breyt­ingum á næstu ára­tugum, en farið geti svo að margir heims­hlutar verði óbyggj­an­legir innan nokk­urra ára­tuga.

Ójafn leikur

Hnattræn hlýnun hefur þó ekki jöfn áhrif á alla heims­byggð­ina. Lofts­lags­breyt­ing­arnar hafa verið mestar í hita­belt­islöndum sem mörg hver eru með fátæk­ustu löndum heims. Mörg þeirra hafa nú þegar fundið fyrir miklum lofts­lags­breyt­ingum, en evr­ópskir vís­inda­menn hafa sýnt fram á að með­al­hita­stig jarðar muni þurfa að hækka um þrjár gráður til að íbúar auð­ugra landa finni fyrir jafn­miklum breyt­ingum.

Þessi skipt­ing á áhrifum lofts­lags­breyt­inga hefur alvar­legar sam­fé­lags­legar afleið­ingar í för með sér. Fyrst og fremst eykur hún ójöfnuð milli landa, þar sem lofts­lags­breyt­ingar eiga sér frekar stað í fátækum löndum sem verða enn fátæk­ari vegna þess að þau skorta inn­viði til að takast á við þær. Einnig við­heldur skipt­ingin tregðu til breyt­inga, þar sem iðn­ríkin fram­leiða mest af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en finna minnst fyrir nei­kvæðum áhrifum þeirra og hafa því ekki nægi­lega þörf fyrir að efna til rót­tækra aðgerða í þeim málum.

Engin loftræsting fyrir alla

Hitinn eykur ekki ein­ungis mun­inn milli iðn­ríkja og þró­un­ar­landa, heldur einnig ríkra og fátækra innan land­anna. The Guardian tók saman frétta­skýr­ingu á dög­unum um það hversu skæðar hita­bylgjur geta orðið víðs vegar um heim­inn, sér­stak­lega fyrir fátæka borg­ar­búa. Skýr­ingin nefndi hita­bylgj­una í Montreal sem dæmi, en meiri­hluti þeirra 53 sem lét­ust í henni var yfir fimm­tugt, félags­lega ein­angr­aður og án loft­ræst­ingar. Með hækk­andi með­al­aldri og auk­inni sókn í þétt­býl­is­svæði á heims­vísu er svo búist við fátækir borg­ar­búar verði enn við­kvæm­ari gagn­vart hita­bylgjum í náinni fram­tíð, verði ekk­ert að gert.

Ójöfn­uður innan borga vegna lofts­lags­breyt­inga á sér margar birt­ing­ar­myndir. Skýrust þeirra eru loft­ræsti­tæki, sem kæla niður hús auð­ugra á sama tíma og þau hita upp göt­urnar. Einnig eru tekju­lágir ólík­legri til að búa nálægt grænum svæðum í borg­inni, en sam­kvæmt The Guardian gæta slík svæði lækkað með­al­hit­ann í nærum­hverfi sínu um 11 til 25 gráður. Á hinn bóg­inn eru fátækir mun lík­legri til að búa nálægt stórum umferð­ar­götum sem gefa frá sér skað­legar eit­ur­gufur á heitum dögum.

Loftslagsflóttamenn

Óttast er að mis­skipt­ingin í áhrifum lofts­lags­breyt­inga, bæði milli landa og innan þeirra, auk þeirra skæðu áhrifa sem búist er við að hnatt­ræn hlýnun mun hafa í för með sér, muni leiða til mik­illar aukn­ingar í fjölda flótta­manna af tveimur ástæðum. Annars vegar er bent á teng­ingu milli lofts­lags­breyt­inga og bylt­inga, en sýnt hefur verið fram á að þurrkar, stormar og nátt­úru­ham­farir auki póli­tískan stöð­ug­leika. Hins vegar er einnig talið að hnatt­ræn hlýnun verði það mann­skæð á næstu árum að fólk muni bein­línis flýja lofts­lagið. Þessa teg­und flótta­manna kalla alþjóð­legar stofn­anir „lofts­lags­flótta­menn.“Vís­inda­menn hafa metið að fjöldi hæl­is­leit­enda úr báðum flokkum muni aukast um allt að 200 pró­sent á þess­ari öld.

Hvað er til ráða?

Erfitt er fyrir ein­staka lönd og borgir að finna lausn á því alþjóð­lega vanda­máli sem hnatt­ræn hlýnun er. Hins vegar gæti ójöfn áhrif lofts­lags­breyt­inga milli landa útskýrt að hluta til ástæðu þess að iðn­ríki eins og Banda­ríkin hafi ákveðið að slíta sig úr alþjóð­legum samn­ingum gegn losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Sum ríki hafa þó áttað sig á félags­legu afleið­ingum hita­bylgju á borg­ara sína og vinna mark­visst gegn mann­tjóni af hennar völdum. Til að mynda hefur Lýð­heilsu­ráð Englands lagt til nið­ur­greiðslu á loft­ræsti­tækjum og ind­verska rík­is­stjórnin hefur stór­lækkað mann­tjón vegna hita með fjölda aðgerða sem mið­aðar eru að fátæk­ari borg­urum lands­ins. Samhliða færri dauðs­föllum stuðla slíkar aðgerðir einnig að auknum jöfn­uði meðal íbúa og minni félags­legri aðgrein­ingu.

Með bættri lýð­heilsu og félags­legum aðgerðum til þeirra sem standa höllum fæti gætu borgir og rík­is­stjórnir mark­visst minnkað dauðs­föll vegna vax­andi hita­stigs. Nái fjöldi landa að verða sam­stíga í þeim málum væri hægt að bæta félags­legan stöð­ug­leika til muna auk þess sem hægt væri koma í veg fyrir þá miklu aukn­ingu í lofts­lags­flótta­mönnum sem ótt­ast er á næstu ára­tugum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár