Mynd: Bára Huld Beck

Ríkisstjórnin metur framlag sitt til „lífskjarasamninga“ á 100 milljarða króna

Tíu þús­und króna aukn­ing á ráð­stöf­un­ar­tekjum lægsta tekju­hóps, hækkun skerð­ing­ar­marka barna­bóta, nýjar leiðir til stuðn­ings við fyrstu íbúða­kaup­endur með nýt­ingu líf­eyr­is­greiðslna og upp­bygg­ing í Keldna­landi.

Rík­is­stjórnin verð­leggur fram­lag sitt við hina svoköll­uðu „lífs­kjara­samn­inga“, sem stóð til að kynna í gær­kvöldí en var frestað á síð­ustu stundu, á 100 millj­arða króna á gild­is­tíma kjara­samn­inga, sem stefnt er að því að gildi fram í nóv­em­ber 2022. Fram­lagið er til þess fallið að greiða fyrir gerð kjara­samn­inga en rammi að slíkum var und­ir­rit­aður af full­trúum stærstu verka­lýðs­fé­lag­anna og Samtökum atvinnu­lífs­ins á mið­nætti í gær og vonir stóðu til þess að hægt verði að ganga frá samn­ingum milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins í gær­kvöldi eða nótt. Það tókst ekki en stefnt er að því að skrifa undir kjara­samn­ing­anna í dag.

Aðgerð­ar­pakk­inn sem rík­is­stjórnin hefur komið með á borðið inni­heldur tugi aðgerða sem snerta marga og ólíka fleti sam­fé­lags­ins. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, kall­aði pakk­ann „meiri­háttar plagg“ sem muni þýða að Ísland kom­ist á „annan stað í þróun sam­fé­lags­ins í betri átt“ í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í gær­kvöldi.

Á meðal þeirra aðgerða sem pakk­inn nær til, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, er þróun Keldna­lands undir íbúða­byggð, hækkun ráð­stöf­un­ar­tekna lægsta tekju­hóps­ins um tíu þús­und krónur á mán­uði, úrræði fyrir fyrstu kaup­endur hús­næðis um að fá sér­stök lán eða til að nýta hluta af líf­eyr­is­ið­gjalda­greiðslum sínum til að kom­ast inn á hús­næð­is­markað og fram­leng­ing á nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til að greiða niður hús­næð­is­lán til sum­ars­ins 2021.

Nýjar leiðir til að hjálpa við kaup á húsnæði

Fjöl­margar til­lögur sem snúa að hús­næð­is­málum er að finna í pakk­anum. Ein stærsta hús­næð­is­að­gerðin felst í því að ríkið og Reykja­vík­ur­borg eiga að kom­ast að sam­komu­lagi um að hefja skipu­lagn­ingu Keldna­lands, risa­stórs land­svæðis innan borg­ar­markanna sem er í eigu íslenska rík­is­ins.

Þá á að veita heim­ild til þess að skipta upp lög­bundnu iðgjaldi, sem er 15,5 pró­sent, þannig að 3,5 pró­sent þess verði skil­greint sem „til­greind sér­eign“. Þann hluta verður hægt að nota til hús­næð­is­kaupa.

Sú heim­ild sem er við lýði nú um að nota sér­eign­ar­sparnað til að greiða inn á lán, en á að renna út í júlí næst­kom­andi, mun verða fram­lengd í tvö ár, eða fram á mitt ár 2021.

Í pakk­anum er auk þess, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, fjöl­margar til­lögur um að bæta stöðu leigj­enda og sem eru ætl­aðar til þess að auka svig­rúm til að leigja út fast­eignir.

Á meðal ann­arra til­lagna eru aukin fram­lög inn í almenna íbúða­kerfið, að kannað verði að veita sér­stök hlut­deild­ar­lán til fyrstu íbúð­ar­kaup­enda sem bæru lægri vexti og afborg­anir fyrstu árin og gerðu tekju­lágum sem ættu ekki fyrir útborgun mögu­legt að kom­ast inn á eign­ar­markað og að stuðn­ingur stjórn­valda vegna fyrstu kaupa nái líka til þeirra sem hafa ekki átt hús­næði í fimm ár.

Breytingar á skattkerfi og barnabótum

Rík­is­stjórnin kynnti skatta­breyt­ing­ar­til­lögur í febr­úar sem féllu í grýttan jarð­veg hjá verka­lýðs­for­yst­unni. Þær fól í sér nýtt skatt­þrep fyrir lægstu tekj­urnar og að skatt­leys­is­mörk og per­sónu­af­sláttur og tekju­mörk skatt­þrepa verði látin fylgja þróun breyt­inga á vísi­tölu neyslu­verðs og þróun fram­leiðni. Þessar breyt­ingar áttu að leiða til þess að jöfn krónu­tölu­lækkun á skatt­byrði myndi eiga sér stað upp allan tekju­stig­ann, en vænt­ingar verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar voru að meira yrði gert fyrir lægri tekju­hópa.

Þær breyt­ingar sem gripið verður til varð­andi tekju­skatt eru að uppi­stöðu í sam­ræmi við áður fram settar til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar en í stað þess að ráð­stöf­un­ar­tekjur tekju­lægsta hóp lands­manna verði auknar um 6.750 krónur á mán­uði verða þær auknar um tíu þús­und krónur á mán­uði.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er einnig á borð­inu vil­yrði um að hækka skerð­ing­ar­mörk barna­bóta í 325 þús­und krónur á mán­uði á næsta ári. Þá eru áður kynntar til­lögur um að lengja fæð­ing­ar­or­lof úr níu í tíu mán­uði á árinu 2020 og í tólf mán­uði frá byrjun árs 2021 hluti af pakk­anum sem lagður hefur verið fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár