Eftir að svonefnd stöðugleikaframlög voru innt af hendi á íslenska ríkið 13,67 prósenta eignarhlut í Sjóvá. Stefnt er að því að koma þorra ríkiseigna í verð fyrir áramót og mun einkahlutafélagið Lindarhvoll, sem heyrir undir Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, annast umsýslu, fullnustu og sölu þeirra. Mál Sjóvár er sérstakt í ljósi þess að fjármálaráðherra tengdist sjálfur þeim viðskiptagjörningum fyrir hrun sem leiddu til þess að tryggingafélagið fór á hliðina. Nú, átta árum seinna, ber hann pólitíska ábyrgð á því hvað verður um eignarhlut ríkisins í félaginu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir