Samþykkja frumvarp um breyt­ingu á lögum vegna brott­falls laga um kjara­ráð

Kjararáð var afar umdeilt eftir að ákvarð­anir þess höfðu síend­ur­tekið verið gagn­rýndar en Alþingi sam­þykkti síð­asta sumar að leggja það niður. Nú hefur Alþingi sam­þykkt frum­varp um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna brott­falls laga um kjara­ráð.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, lagði frumvarpið fram.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, lagði frum­varpið fram. Mynd: Bára Huld Beck

Alþingi sam­þykkti í dag frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna brott­falls laga um kjara­ráð en mark­mið þeirra er að koma á fót nýju fyr­ir­komu­lagi launa­á­kvarð­ana fyrir þá sem féllu undir kjara­ráð. Frum­varpið var sam­þykkt með 31 atkvæði en 18 þing­menn sátu hjá.

Lagt var til að laun þjóð­kjör­inna manna ann­ars vegar og dóm­ara, sak­sókn­ara, ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra, rík­is­sátta­semj­ara, seðla­banka­stjóra og aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra hins vegar yrðu ákvörðuð með fastri krónu­tölu­fjár­hæð og þau síðan end­ur­á­kvörðuð 1. júlí ár hvert miðað við hlut­falls­lega breyt­ingu á með­al­tali reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins.

Jafn­framt var lagt til að ráð­herra, sem fer með starfs­manna­mál, gæti ákveðið að hækka launin hlut­falls­lega 1. jan­úar ár hvert til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á með­al­tali reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins svo að launa­hækk­anir þess­ara aðila yrði jafn­ari og nær almennri þróun kjara­mála í tíma en ef hækk­unin yrði aðeins einu sinni á ári.

Gert er ráð fyrir að laun og starfs­kjör for­seta­rit­ara og nefnd­ar­manna í fullu starfi hjá nokkrum úrskurð­ar­nefndum verði ákvörðuð með hlið­sjón af því launa­fyr­ir­komu­lagi sem ákveðið er í lögum.

Að auki er gert ráð fyrir að laun og starfs­kjör skrif­stofu­stjóra sem heyra undir ráð­herra sem fer með starfs­manna­mál rík­is­ins, sem fara með fyr­ir­svar fyrir hönd ráð­herra við gerð kjara­samn­inga, verði ákveðin af ráð­herra með hlið­sjón af kjara­samn­ingi sem aðrir skrif­stofu­stjórar Stjórn­ar­ráðs­ins falla undir. Enn fremur var lagt til að laun og starfs­kjör sendi­herra félli undir kjara­samn­inga og að við­kom­andi stétt­ar­fé­lag semdi fyrir þeirra hönd.

Ákvarðanir kjararáðs umdeildar

[links]Sam­­þykkt var á Alþingi í fyrra­­sumar að leggja kjara­ráð, sjálf­­­stætt ráð sem er falið var það verk­efni að ákveða laun og starfs­­­kjör æðstu emb­ætt­is­­­manna rík­­­is­ins, nið­­ur. Það var gert í kjöl­far þess að starfs­hópur sem skip­aður var af Katrínu Jak­obs­dóttur for­­sæt­is­ráð­herra lagði slíkt til í febr­­úar 2018.

Sá hópur var skip­aður eftir að ákvarð­­anir kjara­ráðs höfðu síend­­ur­­tekið valdið ill­­deilum á vinn­u­­mark­aði og hneykslun í sam­­fé­lag­inu. Bar það hæst sú ákvörðun kjara­ráðs í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­manna og laun ráð­herra. Sam­­­­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­­­­arra ráð­herra að með­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun þing­­­­­­­manna hækk­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­falls­­­­­­­lega mest við ákvörðun kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­sent.

Laun þingmanna og ráðherra hækka ekki 1. júlí

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sendi efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis minn­is­blað í apríl síð­ast­liðnum, með sam­þykki rík­is­stjórn­ar, þar sem hann lagði til tvær breyt­ingar á frum­varp­inu.

Önnur breyt­ingin var sú að launa­hækkun kjör­inna full­trúa – þing­manna og ráð­herra – sem átti að koma til fram­kvæmda 1. júlí næst­kom­andi myndi ekki verða. Þess í stað yrði ráð­herr­anum veitt heim­ild í eitt skipti til að hækka laun laun þjóð­kjör­inna full­trúa þann 1. jan­úar 2020 til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á launum þann 1. júlí 2020.

Auk þess var lagt til að ákvæði um heim­ild ráð­herra til að hækka laun 1. jan­úar til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á launum 1. júlí yrði fellt út en ákvæðið er í nokkrum greinum frum­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár