Laun þingmanna og ráðherra hækka ekki 1. júlí

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra fær heim­ild til að hækka laun þjóð­kjör­inna full­trúa einu sinni, þann 1. jan­úar 2020. Laun þing­manna hækk­uðu um 44,3 pró­sent haustið 2016.

Ríkisstjórnin stendur öll á bakvið ákvörðunina.
Rík­is­stjórnin stendur öll á bak­við ákvörð­un­ina. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sent efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis minn­is­blað, með sam­þykki rík­is­stjórnar, þar sem hann leggur til tvær breyt­ingar á frum­varpi til breyt­inga á lögum vegna brott­falls laga um kjara­ráð, sem er nú til með­ferðar Alþingis.

Önnur breyt­ingin er sú að launa­hækkun kjör­inna full­trúa – þing­manna og ráð­herra – sem átti að koma til fram­kvæmda 1. júlí næst­kom­andi mun ekki verða. Þess í stað verði ráð­herr­anum veitt heim­ild í eitt skipti til að hækka laun laun þjóð­kjör­inna full­trúa þann 1. jan­úar 2020 til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á launum þann 1. júlí 2020.

Auk þess er lagt til að ákvæði um heim­ild ráð­herra til að hækka laun 1. jan­úar til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á launum 1. júlí verði fellt út en ákvæðið er í nokkrum greinum frum­varps­ins.

Sam­þykkt var á Alþingi í fyrra­sumar að leggja kjara­ráð, sjálf­­stætt ráð sem er falið var það verk­efni að ákveða laun og starfs­­kjör æðstu emb­ætt­is­­manna rík­­is­ins, nið­ur. Það var gert í kjöl­far þess að starfs­hópur sem skip­aður var af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra lagði slíkt til í febr­úar 2018.

Sá hópur var skip­aður eftir að ákvarð­anir kjara­ráðs höfðu síend­ur­tekið valdið ill­deilum á vinnu­mark­aði og hneykslun í sam­fé­lag­inu. Bar það hæst sú ákvörðun kjara­ráðs í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­ar­­­­­kaup alþing­is­­­­­manna og laun ráð­herra. Sam­­­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­­­ar­­­­­kaup alþing­is­­­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­ar­­­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­­­arra ráð­herra að með­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­ar­­­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun þing­­­­­­manna hækk­­­­­­uðu hlut­­­­­­falls­­­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­sent.

Þegar frum­varp um það sem ætti að taka við af kjara­ráði var lagt fram þá var gert ráð fyrir því að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra myndi fá heim­ild til að hækka laun kjör­inna full­trúa í júlí 2019 umfram þær hækk­anir sem hop­ur­inn hafði þegar fengið.

Alþýðu­sam­band Íslands skil­aði inn umsögn um frum­varpið 11. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem meðal ann­ars voru gerðar „al­var­legar athuga­semdir við að til standi að hækka laun allra þeirra ráða- og emb­ætt­is­manna sem breyt­ingin nær til þann 1. júlí n.k. þrátt fyrir að fyrir liggi að laun æðstu stjórn­enda rík­is­ins hafi hækkað langt umfram almenna launa­þró­un. ASÍ leggst sömu­leiðis gegn því að ráð­herra fái heim­ild til þess að hækka laun umrædds hóps þann 1. jan­úar ár hvert til sam­ræmis við áætl­aða breyt­ingu á með­al­tali reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins og leggur til launin taki breyt­ingum einu sinni á ári þegar mat Hag­stof­unnar á breyt­ingu reglu­legra launa rík­is­starfs­manna liggur fyrir í júní ár hvert.“

Nú hefur, líkt og áður kom fram, verið fallið frá þeim hækk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár