Segir bókhaldsblekkingar ríkisstjórnarinnar við hækkun barnabóta draga úr trausti

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir rík­is­stjórn­ina beita bók­halds­blekk­ingum við hækkun barna­bóta. Sam­fylk­ingin dró til­lögu sína um aukn­ingu upp á þrjá millj­arða króna til barna­bóta á árinu 2023 til baka en ætlar nú að leggja hana aftur fram.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir rík­is­stjórn­ina beita bók­halds­blekk­ingum við kynn­ingu á hækkun barna­bóta.

Rík­is­stjórnin kynnti í vik­unni nokkrar aðgerðir sem hún ætl­aði að grípa til sem áttu á liðka fyrir kjara­samn­ings­gerð og hjálpa lág- og milli­tekju­hópum í sam­fé­lag­inu. Ein stærsta aðgerðin var kerf­is­breyt­ing á barna­bóta­kerf­in­u.

Í kynn­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kom fram að heild­­ar­fjár­­hæð barna­­bóta yrði fimm millj­­örðum krónum hærri en í óbreyttu kerfi á næstu tveimur árum eftir að breyt­ingin tekur gildi.

„Ég hrós­aði rík­is­stjórn af þessu til­efni. Nú vil ég draga þetta hrós til baka og lýsa yfir von­brigðum með fram­komu hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra í þessu máli,“ sagði Kristrún í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun þar sem hún beindi fyr­ir­spurn sinni til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

[links]Á þriðju­dags­kvöld var birt minn­is­blað úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á vef Alþingis sem hafði verið sent til efna­hags- og við­skipta­nefndar sama dag. Þar birt­ist önnur mynd af barna­bóta­kerfi næstu tveggja ára en í kynn­ingum ráð­herra, en sam­kvæmt því er gert ráð fyrir 600 milljón króna hækkun barna­bóta á næsta ári og 1,4 millj­arði króna árið 2024.

Því mun þurfa tvo millj­arða króna í auknar fjár­heim­ildir til að full­fjár­magna þær breyt­ingar sem rík­is­stjórnin kynnti á blaða­manna­fundi sínum á mánu­dag, en ekki fimm millj­arða króna.

„Það er ekki einu sinni raunaukn­ing á gild­is­tíma kjara­samn­ing­anna, engin aukn­ing til barna­bóta ef tekið er til­lit til verð­bólgu. Svona bók­halds­blekk­ingar draga úr trausti. Og ég vil taka það fram að svona stjórn­mál eru mér ekki að skapi,“ sagði Kristrún.

Drógu breytingartillögu um hækkun til baka en leggja hana nú aftur fram

Sam­fylk­ingin lagði til breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið þar sem gert var ráð fyrir aukn­ingu upp á þrjá millj­arða króna til barna­bóta á árinu 2023 en dró hana til baka þegar rík­is­stjórnin kynnti áform sín á mánu­dag. Kristrún greindi frá því að Sam­fylk­ingin hyggst nú leggja þessa breyt­ing­ar­til­lögu aftur fram við þriðju umræðu fjár­laga í ljósi þess sem fram hefur komið.

Kristrún spurði því næst hvort for­sæt­is­ráð­herra finnd­ist það smekk­leg fram­setn­ing að boða fimm millj­arða króna hækkun barna­bóta þegar aukn­ingin er í raun mun minni, bæði miðað við fjár­mála­á­ætlun og frum­lag til fjár­laga.

„Og getur hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra stað­fest hér í dag, fyrir Alþingi og almenn­ingi, að það verður ekki nein raunaukn­ing í fram­lögum rík­is­ins til barna­bóta á árinu 2023?“

Ekki blekkingarleikur heldur kerfisbreytingar

Katrín sagði það hafa legið fyrir frá upp­hafi að kostn­aður við þessa kerf­is­breyt­ingu verður fimm millj­örðum hærri á næstu tveimur árum en ella hefði orðið miðað við núver­andi fjár­hæðir og skerð­ing­ar­mörk.

„Ég held að það sé mik­il­vægt að hátt­virtur þing­maður tali ekki um ein­hverjar blekk­ingar því að þetta hefur legið fyrir,“ sagði Katrín.

Kerf­is­breyt­ingar eru það mik­il­væga í til­lög­unni að mati for­sæt­is­ráð­herra, þar sem fjöl­skyldum sem njóta stuðn­ings í kerf­inu fjölgar um 2.900. En, þar er, að minnsta kosti að góðum hluta, að ræða fjöl­skyldur sem hefðu verið áfram inni í núver­andi kerfi ef skerð­ingar vegna launa og verð­lags hefðu verið upp­færðar miðað við aðstæður í efna­hags­líf­in­u.

En Katrín ítrek­aði að ekki væri um neinn blekk­ing­ar­leik að ræða. „Hér er hins vegar um að ræða kerf­is­breyt­ingu sem hefur verið kallað eftir, m.a. úr flokki hv. þing­manns, sem er að barna­bóta­kerfið nái til fleiri fjöl­skyldna en áður.“

Hún sagði það einnig áhuga­vert að Kristrún fengi sig ekki til að gleðj­ast yfir því að verið sé að breyta barna­bóta­kerf­inu með því að fjölga þeim fjöl­skyldum sem njóta barna­bóta.

Kristrún sagði upp­still­ingu rík­is­stjórn­ar­innar á hækkun barna­bóta ekki eðli­lega. „Ef það er yfir­lýst mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar að nýta ekki fjár­heim­ildir í barna­bóta­kerf­inu, heldur nýta sér skerð­ing­ar­mörkin eins og þau eru, þá á fólk skilið að fá að vita það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár