Kona bæjarstjórans ráðin í starf sem flutt var úr ráðuneyti

Hall­gerður Gunn­ars­dóttir var í síð­ustu viku ráðin í starf lög­fræð­ings á sviði gjaf­sókn­ar­mála hjá sýslu­mann­inum á Vest­ur­landi. Hall­gerður sinnti starf­inu áður hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu í Kópavogi, eða þar til starfið var flutt til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í fyrra. Um ára­mótin færð­ist staðan svo til sýslu­manns­ins á Vest­ur­landi sem hefur aðsetur í Stykk­is­hólmi, þar sem eig­in­maður Hall­gerðar, Sturla Böðv­ars­son, er bæj­ar­stjóri.

Staðan var aug­lýst til umsóknar þann 19. des­em­ber síð­ast­lið­inn og var umsókn­ar­frestur til 5. jan­úar. Alls sóttu 31 um starfið. Viku eftir að umsókn­ar­frest­ur­inn rann út, að morgni 12. jan­úar, var umsækj­endum um starfið til­kynnt að búið væri að ráða Hall­gerði, hún hafi verið eini umsækj­and­inn sem upp­fyllti öll hæf­is­skil­yrði. Aðeins einn umsækj­andi auk Hall­gerðar var boð­aður í við­tal vegna starfs­ins.

Að minnsta kosti einn umsækj­andi hefur nú óskað eftir því að fá öll gögn um ráðn­ing­ar­ferlið, þar með talið rök­stuðn­ing, afhent frá sýslu­mann­inum á Vest­ur­landi.

Var sú eina sem uppfyllti skilyrðin


„Ég veit alveg hvaða gagn­rýni ég er að kalla yfir mig,“ segir Ólafur K. Ólafsson sýslu­maður á Vest­ur­landi, spurður um ráðn­ing­una. Hann vísar þó allri gagn­rýni á bug. „Ég get ekki verið að velta fyrir mér per­sónu­legum tengslum. Það sem skiptir mig máli er starfið sem ég er að fá, hvaða kröfur eru gerðar til starfs­ins og hvaða umsækj­andi upp­fyllir þær kröfur. Það er það sem ég horfi á. Ég get ekki verið að velta því fyrir mér hver er giftur hverjum og svo fram­vegis. Þá eru það ekki hæf­is­sjón­ar­mið sem ráða.“

Eins og áður segir var Hall­gerður valin úr hópi 31 umsækj­anda. „Sú sem var ráðin var eini umsækj­and­inn sem upp­fyllti öll hæf­is­skil­yrðin,“ segir Ólafur. Hann segir að annar umsækj­andi hafi upp­fyllt fáein af hæf­is­skil­yrð­unum og sá hafi einnig verið boð­aður í við­tal. Aðrir umsækj­endur hafi ekki upp­fyllt mörg hæf­is­skil­yrði, en meg­in­þorri umsækj­enda hafi verið nýlega útskrif­aðir lög­fræð­ingar.

Vegna reynslu Hall­gerðar af starf­inu, á meðan hún sinnti því hjá sýslu­mann­inum í Kópavogi, hafði engin umsækj­andi sam­bæri­lega reynslu af starfi gjaf­sókn­ar­nefndar eða sam­bæri­legra verk­efna, eins og kveðið var á um í aug­lýs­ingu um starfið. Vegna þessa tók ráðn­ing­ar­ferlið svo stuttan tíma, að sögn Ólafs.

Tillaga sýslumanns að færa starfið


Ólafur segir að starfið hafi verið flutt til sýslu­manns­ins á Vest­ur­landi að hans til­lögu. „Sýslu­menn eru að því núna, að senda til­lögur til ráðu­neyt­is­ins, ég er búinn að senda þrjár eða fjórar til­lögur,“ segir hann. Flutn­ingur á verk­efnum úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til sýslu­manna um allt land er í sam­ræmi við aðgerða­á­ætlun stjórn­ar­ráðs­ins í tengslum við sam­ein­ingu sýslu­manns­emb­ætta og stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar.

Ólafur hafnar því hins vegar aðspurður að nokkuð utan­að­kom­andi hafi haft áhrif á þá til­lögu hans að flytja þetta til­tekna starf í Stykk­is­hólm. Hann hafi ein­fald­lega skoðað verk­efni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og hvaða verk­efni væri lík­legt að emb­ætti hans gæti „krækt í“. Vegna þess að starf lög­fræð­ings á sviði gjaf­sókn­ar­mála hafi lengst af verið hjá sýslu­manni hafi hann talið það góðan kost. Hann hafi, eins og fram hefur komið, lagt fleiri til­lögur að flutn­ingi á störfum fyrir ráðu­neytið. „Ég er ekk­ert hættur, ég ætla að halda áfram. Það er í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu núna mjög jákvæður vilji gagn­vart því að færa verk­efni til þess­ara nýju emb­ætta, ekki bara hérna. Það er lag að gera þetta núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár