Kínverski boltinn: Tif skordýranna

Þrumur druna í háloft­unum. Hin keis­ara­lega vekjara­klukka nátt­úr­unnar. Brátt skríður her­skari grænna lirfa upp úr mold­inni. Þær ætla að hakka í sig nýsprottin lauf­blöðin og umbreyt­ast svo í fiðr­ildi (eða pöddur).

Bændur vita að nú er að duga eða drep­ast. Þeir eiga leik í hinu eilífa spili manns og nátt­úru. Ef eitt­hvað klikkar við sán­ing­una verður upp­skeran rýr. Pen­ing­arnir undir kodd­anum munu ekki vaxa. En tifið í skor­dýr­unum hefur ekki bara áhrif úti á lands­byggð­inni. Full­trúar bænda, verka­manna, her­manna og -- nú í seinni tíð -- kap­ít­alista taka að streyma þús­undum saman til höf­uð­borg­ar­innar að taka sæti sitt í rauð­bólstr­uðu sæti er Flokk­ur­inn hefur úthlutað þeim í Höll alþýð­unnar við Torg hins himneska friðar sem er heim­speki­leg miðja Mið­rík­is­ins (á kín­versku heitir Kína Zhongguo sem þýðir Miðríkið). Þetta er hið svo­kall­aða „sós­íal­íska lýð­ræði með sér-kín­verskum ein­kennum“ í fram­kvæmd. Full­trú­ar­inir hlusta á ser­íur af þriggja klukku­stunda löngum ræðum leið­toga lands­ins og rétta upp hönd þegar við á. Allt er alveg að verða nýtt og betra. Hveitið, kornið, hrís­grjónin, lögin, regl­urnar um áveitu­kerfin og lág­marks­launin og margt margt fleira.

Lokakeppni í forrétt


Meðan beðið er eftir að leik­tíðin hefj­ist í kín­verska bolt­anum er alla jafna boðið upp á nokkra „for­rétti“. Í jan­úar fór t.d. fram loka­keppni Asíu-móts lands­liða. Í Kína voru menn á einu máli um að „strák­arnir okkar“ hefðu staðið sig ágæt­lega jafn­vel þó þeir hefðu ekki kom­ist mjög langt. Þjóðin var fyrst og fremst glöð yfir því að fnykur spill­ingar, mútu­mála og hvers lags hneyksl­is­mála sem plagað hefur bolt­ann svo lengi sem elstu menn muna virt­ist hafa verið skúbb­aður af fyrir þetta mót.

Einlægur bar­áttu­andi var sýni­legur í naumum sigrum á Sádum, Úsbekistum og N-Kóreu­mönnum. Það þótti því hrein­lega ekki við hæfi að vera með leið­indi í fjöl­miðlum þrátt fyrir 2-0 tap gegn heima­mönnum Áströlum í átta liða úrslit­unum í Brisbane -- nota bene, á velli sem var eitt mold­ar­flag eftir hin rudda­legu rugby-ein­vígi sem þar fara að stað­aldri fram. Þess má geta að Ástralir héldu áfram á sig­ur­braut og hömp­uðu að lokum Asíu-bik­arnum með því að leggja S-Kóreu­menn 2-1 í úrslita­leiknum. Í febr­úar fóru síðan fram fyrstu leik­irnir í Asíu-keppni félags­liða, en fjögur kín­versk lið taka þátt að þessu sinni. Gerðu þau sér öll lítið fyrir og sigriðu í fyrstu umferð riðla­keppn­innar.

[caption id="attachment_23815" align="alignnone" width="842"] Í jan­úar fór fram loka­keppni Asíu-móts lands­liða. Í Kína voru menn á einu máli um að lið lands­ins hefði staðið sig ágæt­lega jafn­vel þó þeir hefðu ekki kom­ist mjög langt.[/caption]

Stóru liðin og erki­fj­endur síð­ustu ára Peking-varð­lið­arnir og Guangzhou Evergrande unnu einnig í ann­ari umferð og þykja lík­leg til að kom­ast upp úr sínum riðlum. Annars er Asíu-keppnin ekki hvað síst áhuga­verð fyrir þær sakir að veita inn­sýn í lönd er ann­ars eru að mest lokuð. Verða heima­leikir írösku lið­anna í Basra eða Aleppo? Verða þau yfir­leitt með í ár? Hvað með Sýrland, Líbanon og N-Kóreu? Eru Uzbekistar betri eða verri undir ein­ræði Karimovs? Hefur bolt­inn í Búrma komið til eftir að Aung San Suu Kyi var leyst úr stofu­fang­elsi? Ég hvet áhuga­menn um stjórn­mál Mið­aust­ur­landa, Mið-Asíu og Aust­ur­landa fjær að fylgj­ast með Asíu-keppn­inni hér.

Árátta að hlaða upp varnarmúrum


Sjálfur er ég mik­ill aðdá­andi Peking-varð­lið­anna. Það hófst með því að ég flutti til Peking fyrir nokkrum árum og fór að fylgj­ast með sparki heima­manna í sjón­varp­inu á laug­ar­dags­kvöldum meðan ég var að bíða eftir beinni útsend­ingu frá enska bolt­anum (sem vegna tíma­mis­munar hefst hér ekki fyrr en um mið­nætti).

Peking-varð­lið­arnir er dæmi­gert Norður-Kína lið. Byggir á áráttu norð­an­manna að hlaða upp varn­ar­múrum /Kína­m­úrum í bland við leiftr­andi skynd­i­sóknir í kung-fu stíl. Guangzhou Evergrande treystir hins vegar á auð­magn eig­enda síns Jack Ma til að krækja í upp­renn­andi stjörnur frá Brasilíu og gamlar kempur frá Evrópu. Keppni þess­ara tveggja liða end­ur­speglar þannig að nokkru leyti tog­streit­una er ríkir hér eystra milli fornra kín­verskra dyggða ann­ars vegar og nútím­ans hins vegar með alla sína pen­inga, tækni og alþjóð­legu við­skipti. Það segir sína sögu um hve hörð þessi bar­átta er að í síð­ustu átta viður­eignum lið­anna hafa bæði lið unnið tvisvar en fjórum sinnum hafa þau skilið jöfn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár