Áhugi ungs fólks á mormónum jókst eftir raunveruleikaþættina

Ungir mormónar frá Banda­ríkjunum lögðu líf sitt til hliðar til þess að boða fagnaðar­erindið. Þeir höfðu ekkert um það að segja hvert þeir færu, en þakka fyrir að hafa farið til Íslands. „Íslendingar eru æðislegir.“ Þrátt fyrir dvínandi kirkju­sókn þjóðarinnar finna þeir fyrir auknum áhuga á meðal ungs fólks, en deila um áhrif vinsælla sjónvarps­þátta þar á.

„Við viljum kenna Íslendingum og hjálpa þeim að læra um Krist,“ segir hinn tvítugi öldungur Owen Moyer, sem kemur frá Virginíu­ríki. Með honum er Dylan Nehren, 19 ára gamall drengur frá Salt Lake City í Utah-ríki í Banda­ríkjunum, sem kom til landsins sem öldungur og er búinn að vera hér í rúmt ár. Fyrst á Akureyri en flutti til höfuð­borgarinnar fyrir nokkrum mánuðum. Honum líkar vel á Íslandi, enda mikill snjóbretta­unnandi. 

Stjörnur mormóna

Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu, sem er betur þekkt sem mormóna­kirkjan, er alþjóðleg kirkja sem á rætur sínar að rekja til Banda­ríkjanna. Hún hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undan­farin misseri en raun­veruleika­þættir á borð við Secret lives of Mormon Wives hafa rutt trúnni fram á sjónar­sviðið. Stjörnur þáttanna eru allt ungar mæður með stóran fylgjendahóp á netmiðlum og eru núverandi eða fyrrum meðlimir kirkjunnar.

„Ég elska …
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er alveg ótrúlegt að það skuli vera til ungt fólk sem trúir að það sé til einhver guð. Ég hélt að unga fólkið okkar fengi betri fræðslu en þetta í skólakerfinu. Tilvist guðs stenst enga vísindalega skoðun. Það hafa aldrei verið til neinar sannanir fyrir tilvist guðs.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár