Umferð um Víkurskarð heldur áfram að aukast

Fjöldi far­ar­tækja sem fóru um Vík­ur­skarð í júní jókst um 6,6 pró­sent síðan í júní í fyrra. Þetta segir Frið­leifur Ingi Brynjars­son, verk­efn­is­stjóri hjá Vega­gerð­inni, í sam­tali við 641.is. Aldrei hafa jafn margir farið um Vík­ur­skarð í júní­mán­uði. Jafn­framt hefur umferð um veg­kafl­ann auk­ist um 13,9 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins miðað við árið 2014.

Í úttekt sem IFS Greining vann fyrir fjár­mála­ráðu­neytið um Vaðla­heið­ar­göng og skil­aði af sér í jan­úar 2012 var gert ráð fyrir árlegri aukn­ingu umferðar til árs­ins 2025. Þar er und­ir­strikað að umferð­ar­þungi um svæðið til fram­tíðar sé aðal­lega háður iðn­að­ar­upp­bygg­ingu í nágrenn­inu, eins og kís­il­málms­verk­smiðju á Bakka sem nú hefur verið ákveðið að byggja.

Ein meg­in­rök­semdin fyrir fram­kvæmdum í Vaðla­heiði var að umferð um Vík­ur­skarð myndi aukast til fram­tíðar. Sú umferð­ar­spá sem Vega­gerðin telur lík­leg­asta til að ræt­ast er að umferð um Vík­ur­skarð muni aukast jafn hratt og und­an­farin 26 ár, eða um tæp­lega 3 pró­sent á ári.

Umferð­ar­þungi um Vík­ur­skarð minnk­aði nokkuð á árunum eftir efna­hags­hrunið en hefur verið að aukast hratt aftur síðan 2013. Stjórn Vaðla­heið­ar­ganga, fyr­ir­tæk­is­ins sem ann­ast fram­kvæmdir í Vaðla­heiði, seg­ist ætla að biðja Vega­gerð­ina að upp­færa spár sínar og miða við árið 2015 en nýjasta spá er síðan 2012.

Umferð­ar­met var sett á Þjóðvegi 1 í júní. Aukn­ingin milli júní­mán­aða var um 4,6 pró­sent, sam­kvæmt frétt á vef Vega­gerð­ar­innar. Þá hefur umferð um Þjóðveg 1 auk­ist um 2,2 pró­sent séu fyrstu sex mán­uðir árs­ins bornir saman við sama tíma­bil í fyrra. Aukn­ingin er mest aust­an­lands en minnst á Suð­ur­landi.

Stefnir allt í að umferð­ar­met verði sett á Hring­veg­inum í lok árs en gamla metið var sett árið 2007. Þá þarf að geta þess að júní er jafnan þriðji umferð­ar­þyngsti mán­uður árs­ins á eftir júlí og ágúst.

Kostnaðurinn fer 18 prósent fram úr áætlunum og verklok tefjast

Kostn­aður við gangna­gerð í Vaðla­heiði verður 18 pró­sent meiri en gert var ráð fyrir þegar verkið hófst. Í svari Vaðla­heið­ar­ganga hf. við

fyr­ir­spurn

fjár­laga­nefndar Alþingis segir að sam­an­lagður kostn­aður vegna ganga­gerð­ar­innar stefni í að fara 2,2 millj­arða króna fram úr áætlun sem gerir ráð fyrir kostn­aði upp á 12,2 millj­arða króna. Þá er tekið til­lit til sex pró­sent ófyr­ir­séðs kostn­aðar sem gert er ráð fyrir í áætl­un­inni, eða 706 millj­ónum króna. Í svar­inu segir að kostn­að­ar­liðir fram­kvæmd­ar­innar hafi þegar farið 900 milljón króna fram úr áætl­unum og að fyr­ir­sjá­an­legt sé að þeir „fari kannski 1.300 milljón krónur þar til við­tó­bar fram úr áætl­unum“.

Þessum aukna kostn­aði verður mætt með því að spara til við frá­gang gangn­anna og til tals hefur komið að Vega­gerðin leysi til sín vega­kafla beggja vegna gang­anna. Annars verði leitað til rík­is­ins sem lán­veit­anda með beiðni um frestun end­ur­fjár­mögn­unar og til hlut­hafa um aukn­ingu hluta­fjár.

Fjár­laga­nefnd sendi fyr­ir­tæk­inu fyr­ir­spurn í síð­asta mán­uði þar sem leitað var svara við því hversu mikið verkið muni fara fram úr áætl­unum og hvers vegna for­rann­sóknir höfðu ekki greint vatns­æð­arnar sem tafið hafa verkið.

[caption id="attachment_33445" align="alignnone" width="600"] Verklok Vaðla­heið­ar­ganga munu frest­ast um 7 til 15 mán­uði vegna óvið­ráð­an­legra aðstæðna.[/caption]

Verklok frestast um 7 til 15 mánuði

Gert hafði verið ráð fyrir ein­hverjum vatns­flaumi í Vaðla­heiði en aldrei í því magni sem varð raunin. Þá gerir jarð­hit­inn málin flókn­ari en ekki var vitað um jarð­hita í Vaðla­heiði áður en rann­sóknir hófust fyrir fram­kvæmd­ina. „… þó er búið að leita að heitu vatni fyrir Akureyri í ára­tugi,“ segir í svari Vaðla­heið­ar­ganga hf.

Nú eru tvær sviðs­myndir til skoð­unar og þá helst út frá jarð­fræði­legum aðstæðum í fjall­inu. Önnur sviðs­myndin miðar að verk­lokum í júlí 2017 en hin í mars 2018. Upp­haf­lega var áætlað að verk­inu lyki 15. des­em­ber 2016.

Nið­ur­stöður rann­sóknar sem fram­kvæmd var við háskól­ann í Álaborg árið 2003 voru að með­al­tal van­á­ætl­aðs kostn­aðar við jarð­gangna­gerð væri 48 pró­sent og að 86 pró­sent vega­fram­kvæmda fari fram úr kostn­að­ar­á­ætl­unum.

Má hér rifja upp að fram­kvæmdir við Héð­ins­fjarð­ar­göng, sem opnuð voru haustið 2010, fóru 17 pró­sent fram úr kostn­að­ar­á­ætl­unum. Þar gætti jafn­framt nokk­urs ófyr­ir­séðs vatnsaga sem tafði verkið, sem lauk svo tveimur árum á eftir áætlun.

Í lok síð­ustu viku var búið að grafa sam­tals 4,3 kíló­metra í Vaðla­heiði eða 59,9 pró­sent af heild­ar­lengd gang­anna. Búið er að skerða vatns­flaum­inn úr berg­inu innan í göngn­unum tölu­vert. Heita vatnið sem fellur út um göngin vesta­megin er nú 113 lítrar á sek­úndu en vatns­flaum­ur­inn Fnjóska­dals­megin er nú minni en 280 lítrar á sek­úndu. Mest var hann 520 lítrar á sek­úndu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár