Olíustörfum fækkar hratt í Noregi og Skotlandi

Olíu­verðs­lækk­unin und­an­farnar vikur hefur nú þegar haft mikil áhrif á umsvif í þjón­ustu­tengdum greinum sem tengj­ast olíu­iðn­aði í Noregi og Skotlandi. Verð á norð­ursjáv­ar­olíu er enn lágt, eða um 56 USD/fatið. Mörg fyr­ir­tæki sem gera út skip sem þjón­usta olíu­bor­p­alla í Norð­ur­sjónum hafa lent í hremm­ingum síð­ustu vikur. Ytri aðstæður hafa breyst hratt til hins verra. Verð sem stóru olíu­fé­lögin greiða í skamm­tíma­verk­taka­samn­inga við fyr­ir­tækin sem gera út þjón­ustu­skipin hafa lækkað hratt und­an­farið. Algengt sól­ar­hrings­verð til olíu­þjón­ustu­skipa er nú um 4.000 pund en var um 14.000 pund fyrir ein­ungis sex vikum síðan (pund = 197 íslenskar krónur).

7.000 störf horfin í Noregi


Vegna ástands­ins hafa olíu­fyr­ir­tækin sem starfa í Norð­ur­sjónum í ein­hverjum til­fellum slegið verk­efnum á frest á meðan olíu­verð er svo lágt. Þjón­ustu­fyr­ir­tækin hafa sum hver brugð­ist við þessu með því að fresta pönt­unum á nýjum skipum. Í nýlegu við­tali við Åge Remöy fram­kvæmda­stjóra REM Offshore í Álasundi við tíma­ritið Maritime.no kemur fram að um 46 skip sem gerð eru út frá Stavan­ger, Bergen, Aderdeen og öðrum höfnum hafa verið verk­efna­lítil und­an­farnar vikur vegna ástands­ins á olíu­mörk­uðum. Að sögn Åge munu aðstæður áfram verða krefj­andi á næst­unni. Verð á bréfum fyr­ir­tækja í þjón­ustu við olíu­iðn­aði í Kaup­höll­inni í Osló hefur lækkað frá því olíu­verðið hrundi.

Samkvæmt frétta­síð­unni Skips­Magasinet.no hafa alls 7.000 störf horfið í olíu­iðn­aði í Noregi í haust og vetur. Statoil, þar sem norkska ríkið er stærsti eig­and­inn með tæp­lega 70 pró­sent hlut, eitt og sér hefur skorið niður á milli 1.600 til 1.900 störf. Sér­fræð­ingar á norska olíu­mark­aðnum ótt­ast að fleiri störf muni glat­ast á næst­unni. Allt hangir þetta á olíu­verðs­þró­un­inni á kom­andi mán­uðum.

[caption id="attachment_15005" align="alignnone" width="1500"] Olíu­iðn­að­ur­inn í heim­inum hefur gengið í gegnum erf­ið­leika, eftir að verð á olíu féll úr 110 Band­ríkja­dölum í um 60 Banda­ríkja­dali, á ein­ungis átta vikum. Sér­stak­lega hefur þetta verið erfitt fyrir Norðemnn og Rússa.[/caption]

Fáfnir Offshore siglir þennan ólgusjó


Eitt fyr­ir­tæki sem teng­ist Íslandi starfar á hinum við­kvæma þjón­ustu­skipa­mark­aði við olíu­iðn­að­inn, Fáfnir Offshore. Fyr­ir­tækið gerir út nýlegt skip, Pol­ar­sys­sel, til að þjón­usta olíu­bor­p­alla á norsku haf­svæði. Að hluta til reiðir Fáfnir Offshore sig á skamm­tíma­leigu­mark­að­inn og því má ætla að þessar breyttu aðstæður á mörk­uðum muni hafa nei­kvæð áhrif á rekstur þess eins og ann­arra sam­bæri­legra fyr­ir­tækja. Fyr­ir­tækið er hins vegar með sex ára samn­ing við sýslu­mann­inn á Sval­barða, um gæslu­störf í sex mán­uði á hverju ári. Helstu eig­endur Fáfnir Offshore eru Stein­grímur Erlings­son og fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir Horn II, sem er í stýr­ingu hjá Lands­bank­anum, og Akur, sem er í stýr­ingu hjá Íslands­banka, ásamt smærri hlut­höfum. Þá tók Íslands­banki þátt í að fjár­magna Pol­ar­sys­sel, en heildar kostn­að­ur­inn við smíði þess nam um 7,3 millj­örðum króna.

Rússar hafa stutt Assad-stjórnina mjög ákaflega og er það vegna viðskiptahagsmuna landsins við stjórnina í Sýrlandi. Á hinn bóginn hafa uppreisnarmenn í Sýrlandi, sem samanstanda að mestu af súnní-múslímum, hlotið mikinn stuðning frá stjórn súnní-múslíma í Sádí-Arabíu. Sádarnir eru orðnir þreyttir á ástandinu í Sýrlandi og beina núna sjónum sínum að Rússum og Írönum.
Rússar hafa stutt Assad-stjórn­ina mjög ákaf­lega og er það vegna við­skipta­hags­muna lands­ins við stjórn­ina í Sýrlandi. Á hinn bóg­inn hafa upp­reisn­ar­menn í Sýrlandi, sem sam­an­standa að mestu af súnní-múslímum, hlotið mik­inn stuðn­ing frá stjórn súnní-múslíma í Sádí-Arabíu. Sádarnir eru orðnir þreyttir á ástand­inu í Sýrlandi og beina núna sjónum sínum að Rússum og Írönum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár