Framsókn og Píratar bæta við sig í nýrri könnun MMR – Vinstri græn dala mest

Fylgi Vinstri grænna mæld­ist þremur pró­sentu­stigum lægra en síð­ast í nýrri könnun MMR. Á sama tíma bæta Framsókn og Píratar við sig tæpum þremur pró­sentu­stigum hvor flokkur. Píratar mæl­ast næst­stærsti á eftir Sjálf­stæð­is­flokki, sem er nærri kjör­fylgi.

MMR segir að fleiri baráttulínur séu að teiknast upp á milli flokka en bara sú sem fyrirtækið hefur vakið máls á að séu greinilegar á milli Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.
MMR segir að fleiri bar­áttu­línur séu að teikn­ast upp á milli flokka en bara sú sem fyr­ir­tækið hefur vakið máls á að séu greini­legar á milli Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nærri kjör­fylgi sínu í nýrri skoð­ana­könnun frá MMR, en flokk­ur­inn mæld­ist með 24,6 pró­sent fylgi. Þar á eftir koma Píratar með 13,5 pró­sent og Framsókn með 12,5 pró­sent fylgi. Báðir flokkar bæta við sig í þess­ari nýju könnun, Píratar 2,5 pró­sentu­stigum og Framsókn 2,9 pró­sentu­stigum.

Svipaða sögu er að segja af Viðreisn, sem mælist nú með 11 pró­sent fylgi og bætir við sig rúmu pró­sentu­stigi frá síð­ustu könnun MMR. Vinstri græn dala hins vegar mest og mæl­ast nú með 11,1 pró­sent fylgi, sléttum 3 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu könnun MMR.[links]

Fylgi Sam­fylk­ingar dalar einnig um rúmt pró­sentu­stig og mælist nú 10,9 pró­sent. Fylgi Mið­flokks­ins minnkar sömu­leiðis um rúmt pró­sentu­stig á milli kann­ana og mæld­ist nú 6,5 pró­sent.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 5,6 pró­sent, sem er rúmu pró­sentu­stigi minna en í síð­ustu könnun MMR og Flokkur fólks­ins mælist með 2,8 pró­sent fylgi, eftir að hafa mælst með 4,2 pró­sent í síð­ustu könnun. 1,6 pró­sent aðspurðra segja að þeir myndu að kjósa ein­hverjar aðrar stjórn­mála­hreyf­ingar.

MMR segir í umfjöllun um nið­ur­stöð­urnar á vef sínum að þegar gögnin séu skoðuð aftur í tím­ann sé ljóst að nokk­urs titr­ings gæti í fylgi flokk­anna. „Þessar sveiflur eru eðli­legar og til marks um þau áhrif sem stjórn­mála­um­ræðan hefur á þeim tíma­punkti þegar við­kom­andi könnun er tekin,“ segir á vef MMR.



Skoð­ana­kann­anir fyr­ir­tæk­is­ins eru ólíkar þjóð­ar­púlsi Gallup, sem Kjarninn birti ítar­lega umfjöllun um fyrr í dag, meðal ann­ars að því leyti að kann­anir MMR eru fram­kvæmdar á skemmra tíma­bili og mæla þannig skarp­ari sveiflur í fylgi en Þjóð­ar­púls­inn, sem er fram­kvæmdur yfir mán­að­ar­langt tíma­bil.

Þessi könnun MMR var fram­kvæmd dag­ana 25. maí til 1. júní 2021.

Fleiri baráttulínur að koma í ljós

MMR leggst í nokkra grein­ingu á töl­unum og segir í umfjöllun sinni að sveifl­urnar í fylgi flokk­anna sýni okkur á milli hvaða flokka bar­áttan standi.

[adspot]

„MMR hefur áður gert að umfjöll­un­ar­efni hve stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sveifl­ast í gagn­stæða átt við fylgi Mið­flokks­ins sem hefur þótt til marks nokkra bar­áttu milli flokk­anna um hilli sömu kjós­end­anna. Það sem hefur gerst frá ára­mótum er að slíkar bar­áttu­línur hafa komið í ljós milli fleiri flokka og má í dag, til við­bótar við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk, sjá nei­kvæða fylgni (r = -0,75 eða sterk­ari) milli Vinstri grænna og Pírata, Sam­fylk­ingar og Sós­í­alista auk Við­reisnar og Flokks fólks­ins,“ segir í umfjöllun MMR.

Þau orð fylgja að nú þegar hylli undir lok COVID-bar­átt­unnar og athygli stjórn­mála­manna bein­ist í auknum mæli að hefð­bundnum stjórn­málum, séu línur teknar að skerp­ast um hvaða flokka þeir muni velja á milli í kom­andi kosn­ingum.

Könnun MMR var sem áður segir fram­kvæmd dag­ana 25.-1. júní 2021. Þátt­tak­endur voru ein­stak­lingar 18 ára og eldri sem valdir voru handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR, en álits­gjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir end­ur­spegli lýð­fræði­lega sam­setn­ingu þjóð­ar­innar á hverjum tíma. Um net­könnun var að ræða og voru svör 951 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár