Fleiri flóttamenn í Grikklandi í júlí en allt árið 2014

Fleiri flótta­menn og inn­flytj­endur komust yfir landa­mærin til Grikk­lands í júlí síð­ast­liðnum en allt árið 2014. Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, hefur kallað þetta „kreppu inn í kreppu“ en nærri 50.000 manns komust til Grikk­lands í júlí.

Samkvæmt Frontex, landamæra­eft­ir­liti Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) hafa meira en 130.000 ólög­legir inn­flytj­endur komið til Grikk­lands, flestir flótta­menn frá Sýrlandi og Afganistan sem leita hælis í löndum ESB. Ferð þeirra hefur jafn­vel verið yfir Mið­jarð­ar­hafið í yfir­fullum bátum.

Austari leiðin yfir Mið­jarð­ar­hafið er nú orðin sú fjöl­farn­asta af öllum leiðum flótta­fólks frá Mið-Aust­ur­löndum og Norður-Afríku. Þó efna­hagur Grikkja sé í rúst eftir greiðslu­fall og kreppu und­an­farin miss­eri þá er þar meiri hag­sæld en í Afganistan, Sýrlandi og fleiri löndum hvaðan sem fólk flytur.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa lýst ástand­inu í grískum höfnum þar sem flótta­fólk hefst við í „algerri upp­lausn“ vegna skorts á nauð­synja­vörum eins og fötum, hrein­læti og húsa­skjóli. „Það ríkir alger upp­lausn á eyj­unum. Eftir nokkra daga verður þetta fólk flutt til Aþenu þar sem þeirra bíður ekk­ert,“ var haft eftir Vincent Cochetel, hjá flóttaman­an­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í flestum til­vikum verða Grikkir að fjalla um mál þess flótta­fólks sem nær landi þar en áætl­anir um að dreifa inn­flytj­endum á aðild­ar­ríki ESB hefur taf­ist vegna and­stöðu sumra ríkja.

Á kort­inu hér að neðan má sjá hversu mörgum flótta­mönnum sem hafa náð ströndum í Grikk­landi og Ítalíu ESB-ríkin hafa veitt hæli. Sem dæmi þá voru stjórn­völd í Aust­ur­ríki beðin um að taka við 1.048 inn­flytj­endum en þau tóku ekki við neinum. Við hvert land eru merktar tvær tölur; fyrri talan sýnir hversu marga landið tók en sú sem er innan sviga er mis­mun­ur­inn af þeim fjölda sem þau voru beðin um að taka.

Dreifing hælisleitenda í Ítalíu og Grikklandi um Evrópu

Þeir sem tóku fleiri en ætl­ast var til eru merkt rauð en hin blá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár