Inga: „Þó að einhver hafi það verra einhvers staðar annars staðar þá bætir það ekki stöðu þeirra sem eru fátækir“

„Hvers vegna hjálpum við þeim ekki?“ spurði for­maður Flokks fólks­ins í sér­stökum umræðum á þingi um fátækt á Íslandi. Fjár­mála­ráð­herra var til and­svara og sagði rík­is­stjórn hafa gert mikið til að bæta hag þeirra sem hafa lægstu tekj­urnar.

Inga Sæland var málshefjandi í sérstökum umræðum á fátækt á Alþingi í dag. Til andsvara var Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, en þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu tóku þátt í umræðum.
Inga Sæland var máls­hefj­andi í sér­stökum umræðum á fátækt á Alþingi í dag. Til and­svara var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en þing­menn stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu tóku þátt í umræðum. Mynd: Kjarninn/Samsett

Það er ekki nóg að bjarga fyr­ir­tækjum þegar kreppir að heldur verður einnig að bjarga ein­stak­lingum og þá sér­stak­lega þeim ein­stak­lingum sem ekki geta unnið fyrir sér að mati Ingu Sæland for­manns Flokks fólks­ins. Þetta sagði Inga í sér­stökum umræðum um fátækt á Íslandi í þing­inu í dag en Inga var máls­hefj­andi.

Inga sagði að fyrsta sér­staka umræða hennar á Alþingi hefði farið fram í des­em­ber 2017 um sama mál. Hana lang­aði til að athuga hvað hefði áunn­ist á þeim tíma sem liðin er frá fyrri umræðum og til að spyrja hvernig stjórn­völd hefðu brugð­ist við fátækt á þessu tíma­bili.

Inga sagði ekki ætla að gera lítið úr því að hér á landi hafi fólk það betra en víð­ast hvar ann­ars staðar. Hana grun­aði að í and­svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, myndi hann benda á hve fáir búi við fátækt hér á landi. „Þess vegna langar mig að vita það, fyrst það eru svona fáir: Af hverju hjálpum við þeim ekki? Af hverju tökum við ekki utan um fátækt fólk og skömm­umst okkar fyrir það að vera búnir að reisa slíka ramm­gerða fátækt­ar­gildru um þús­undir ein­stak­linga? Þeir eiga sér ekki mögu­leika á því að ná endum saman. Það er okkar er í okkar valdi að hjálpa þessum ein­stak­lingum.“

Bjarni saknaði tillagna um aðgerðir í ræðu Ingu

Bjarni Bene­dikts­son var til and­svara í umræð­unum. Hann sagði mál­efnið mik­il­vægt á þessum tímum eins og alltaf. „Við getum sagt að lífs­kjör Íslend­inga og mál­efni þeirra sem standa höllum fæti eru aldrei of oft rædd hér í þing­inu. Það sem ég hef viljað gera í þeirri umræðu er að beina sjónum að aðgerðum sem geta skipt máli. Hvað er það sem við getum gert sér­stak­lega og ég verð að segja alveg eins og er ég saknað þess í fram­sögu hátt­virts þing­manns sem hér hefur umræð­una, hátt­virts þing­manns, Ingu Sæland, að það sé ekki bent á fleiri atriði sem geta skipt máli,“ sagði Bjarni.

Hann sagði tekju­skatts­breyt­ingar hafa skilað 120 þús­und króna aukn­ingu á ráð­stöf­un­ar­tekjum þeirra tekju­lægstu auk þess sem skerð­ing­ar­mörk barna­bóta hefðu verið hækkuð sem og breyt­ingar á örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri sem varð til þess að tekjur juk­ust um átta þús­und á mán­uði fyrir þá allra tekju­lægstu. „Ég veit þetta ekki háar tölur þegar maður horfir á ein­staka liði en þetta leggst saman og fer að skipta veru­legu máli, ekki bara í mán­uð­inum heldur á árs­grund­velli,“ sagði Bjarni um þær aðgerðir sem ráð­ist hefur verið í.

„Við höfum verið í ein­hverjum umfangs­mestu efna­hags­að­gerðum sög­unnar, varið hund­ruðum millj­arða þegar allt er saman tekið í þeim til­gangi hund­ruðum millj­arða og eru með þrjú hund­ruð millj­arða halla á þessu ári, svo dæmi sé tekið, og þar eru sjálf­virku sveiflu­jafn­arar veru­lega sterkir og þetta fer eitt­hvað í taug­arnar á sumum hér í þing­sal,“ sagði Bjarni undir frammíköllum þing­manna.

Inga setjist í stól Bjarna í tvo mánuði

Þingmenn stjórnar- og stjórn­ar­and­stöðu tóku þátt í umræðum og tóku undir það sjón­ar­mið að mik­il­vægt væri að útrýma fátækt, þá sér­stak­lega með til­liti til barna sem lifa við fátækt. Undir lok umræð­unnar tók máls­hefj­andi, Inga Sæland, til máls öðru sinni. Að hennar mati væri ein lausn við vand­anum sú að hún hrein­lega tæki við emb­ætti Bjarna til skamms tíma. „Fyrir það fyrsta skal leysa hana af í tvo mán­uði og ég mundi alveg sko sann­ar­lega stokka þetta kerfi heldur betur upp.“

Þá spurði hún hvers vegna ekki væri búið að afnema per­sónu­af­slátt til hátekju­fólks, líkt og hennar sjálfrar og Bjarna, og færa það fjár­magn niður til þeirra sem bág­ast hafa það. Hún sagði það ekki nóg að tala um tekjur þessa fólks fyrir skatt, heldur þyrfti að tala um ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem minnstar tekj­urnar hafa.

Að end­ingu sagði Inga að verri fátækt ann­ars staðar ekki rétt­læta fátækt hér á landi, „Eitt er alveg víst að þó að ein­hver hafi það verra ein­hvers staðar ann­ars staðar þá bætir það ekki stöðu þeirra sem eru fátækir og fastir í fátækt­ar­gildru á okkar landi í dag og ég segi bara: verði þeim að góðu sem ætlar að reyna að telja fátæku fólki trú um það þegar það á ekki fyrir salti í graut­inn að það sé ekki fátækt.“

Setti út á borgaralaun og inngöngu í ESB

„Við erum að tala um alvöru mál­efni og við verðum líka að tala af alvöru um gögn og stað­reyndir sem við höfum í hönd­unum um það hvað er í raun að ger­ast á Íslandi í dag. Heilt yfir er fátækt á Íslandi lítil í alþjóð­legum sam­an­burði. Okkur hefur tek­ist vel að bæta stöðu þess hóps sem við erum sér­stak­lega að tala um. Lág­tekju­hóp­arnir á Íslandi hafa séð kjara­bætur kjara­bætur á und­an­förnum árum. Það er engum blöðum um það að fletta. Við erum með minnstan ójöfnuð í Evrópu við erum með lægsta lág­tekju­hlut­fall sömu­leiðis,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son þegar hann tók til máls öðru sinni, síð­astur ræðu­manna dag­skrár­lið­ar­ins.

Hann sagði að vel hefði tek­ist til hjá rík­is­stjórn­inni við við að bæta hag þess hóps sem væri til umræðu og gaf lítið fyrir sumar þeirra hug­mynda sem ræddar höfðu verið undir dag­skrár­liðnum. „Mig langar að koma aðeins inn á hug­mynda­fræð­ina sem mætir mér hér í þing­sal í dag. Píratar tala um það að maður skilji ekki stöðu þessa fólks þrátt fyrir allan árang­ur­inn sem við höfum verið að sýna, þrátt fyrir að við höfum með skatta­lækk­unum og styrk­ingu bóta­kerf­anna og fjár­mögnun slíkra styrk­inga sýnt fram á það að við getum bætt stöðu þess­ara hópa. Ég beið bara eftir því að það kæmi hér ræða frá tals­manni Pírata í umræð­unni um að það væri auð­vitað þeirra fram­tíð­ar­sýn, eins og við þekkjum úr sög­unni, að hér gengju fjöru­tíu til fimm­tíu þús­und manns um á borg­ara­launum og gerðu ekki neitt og og mundu bara að vera vel settir af því,“ sagði Bjarni.

„Viðreisn kemur í raun og veru bara með eitt mál hér inn á borðið og það kemur svo sem ekk­ert á óvart, það er Evr­ópu­sam­bandið. Evr­ópu­sam­bandið myndi leysa þetta mál. Þó er það þannig í Evr­ópu­sam­band­inu að neyslan hrundi miklu meira heldur en á Íslandi,“ bætti Bjarni við í yfir­ferð sinni yfir ræður ann­arra þing­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár