Ef börn verði ekki bólusett gæti faraldur brotist út á meðal þeirra

Þegar far­aldur fær að ganga óáreittur um ákveðna næma hópa fara sjald­gæfir atburðir að eiga sér stað. „Sjald­gæfir alvar­legir atburðir sem við viljum ekki sjá,“ segir Jóhanna Jak­obs­dóttir líf­töl­fræð­ingur.

Rannsóknir eru þegar hafnar á virkni og öryggi bóluefnis AstraZeneca fyrir börn og segir Jóhanna það mikið fagnaðarefni.
Rann­sóknir eru þegar hafnar á virkni og öryggi bólu­efnis AstraZeneca fyrir börn og segir Jóhanna það mikið fagn­að­ar­efni. Mynd: Pexels

Ekkert bólu­efni sem komið er á markað hefur verið sam­þykkt fyrir fólk yngra en sextán ára. „Þannig að sam­kvæmt skil­grein­ingu munum við ekki ná hjarð­ó­næmi í þýð­inu – íslensku sam­fé­lagi í þessu til­viki – því börn verða áfram næm fyrir sjúk­dómnum,“ sagði Jóhanna Jak­obs­dóttir líf­töl­fræð­ingur í ítar­legu við­tali við Kjarnann sem lesa má í heild sinni hér.

Íslensk stjórn­völd hafa farið þá leið líkt og víð­ast ann­ars staðar að bólu­setja fram­línu­starfs­menn og við­kvæm­ustu hópana fyrst. Eftir því sem skömmt­unum fjölgar verður farið neðar í aldri en ekki er enn talað um að bólu­setja börn.

[adspot]

Miðað við með­al­tal smit­stuð­uls COVID-19 er oft talað um að 60-70 pró­sent fólks í sam­fé­lagi þurfi að vera ónæmt svo hjarð­ó­næm­is­þrös­k­uldi sé náð.

En hvað ger­ist í sam­fé­lagi þegar þeim áfanga er náð?

[links]„Veiran hverfur ekki. Hún þarf ekki að hverfa frá Íslandi og hún þarf ekki að hverfa úr heim­inum,“ segir Jóhanna. Veiran er lík­leg til að fylgja mann­kyn­inu til ein­hverrar fram­tíðar. Þegar 60-70 pró­sent íslensku þjóð­ar­innar hefur fengið bólu­setn­ingu og eru því ónæm, eru enn 30-40 pró­sent það ekki. Það sem hins vegar ger­ist er að ef sýk­ing brýst út verður hún „von­andi það lítil að við náum að hlaupa fram fyrir hana,“ segir Jóhanna. Auð­veld­ara verður að beita verk­fær­unum okkar; smitrakn­ingu, sótt­kví og ein­angrun, til að ráða nið­ur­lögum hóp­sýk­inga. Á einum bar, svo dæmi sé tekið, myndu ekki 70 manns smit­ast á einu kvöldi heldur kannski þrjá­tíu. „Það eitt og sér, að meira en helm­inga fjöld­ann í slíkum hóp­sýk­ingum, mun gera alla verk­ferla og allt okkar kerfi ein­fald­ara í fram­kvæmd.“

Að sama skapi yrði þá búið að bólu­setja þá sem í mestri áhættu eru að fá alvar­lega sýk­ingu og þar með minnka líkur á sjúkra­húsinn­lögnum veru­lega. „Fólk sem er yngra en þrí­tugt og jafn­vel yngra en tví­tugt getur orðið alvar­lega veikt af COVID þó að það sé ólík­legra til þess en eldra fólk. Þetta er ekki mesti áhættu­hóp­ur­inn en af því að svo gríð­ar­lega margir eru að smit­ast á stuttum tíma þá fjölgar líka þeim ein­stak­lingum sem veikj­ast alvar­lega úr þessum hópi. Sem dæmi má nefna að flestir þeirra sem eru á önd­un­ar­vélum vegna COVID-19 í Bret­landi eru á aldr­inum 50-60 ára. Við getum því alls ekki alveg slakað á þegar við erum búin að bólu­setja sex­tíu ára og eldri. Útbreitt smit í yngri ald­urs­hópum getur haft alvar­legar afleið­ingar.“

Jóhanna seg­ist hafa vissar áhyggjur af því að ekk­ert bólu­efni hafi enn verið sam­þykkt fyrir börn. Börn virð­ast ólík­legri en full­orðnir til að smit­ast af veirunni og bera smit. Þau eru ólík­legri til að veikj­ast og mun ólík­legri til að veikj­ast alvar­lega. En ef börn á aldr­inum 0-16 ára, sem er stór hópur, verða ekki bólu­sett, er sá mögu­leiki fyrir hendi að far­aldur brjót­ist út á meðal þeirra. Jóhanna útskýrir þetta frekar:

„Það er margt áhuga­vert við hjarð­ó­næmi. Segjum sem svo að við förum yfir þrösk­uld­inn, bólu­setjum yfir sex­tíu pró­sent þjóð­ar­innar – að meiri­hluti lands­manna sé orð­inn ónæmur fyrir sýk­ingu af völdum veirunnar og sam­fé­lagið fari aftur af stað án tak­mark­ana. R-stuð­ull­inn fer niður fyrir 1 en hann er bara með­al­tal og getur verið hærri innan ákveð­inna hópa, t.d. barna. Far­ald­ur­inn getur því við­haldið sér áfram í þeim hópum sem enn eru næmir. Fái hann að fara um þá óáreittur fara sjald­gæfir atburðir að ger­ast. Sjald­gæfir alvar­legir atburðir sem við viljum ekki sjá.“

Rann­sóknir eru þegar hafnar á virkni og öryggi bólu­efnis AstraZeneca fyrir börn og segir Jóhanna það mikið fagn­að­ar­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár