Sjálfstæðismenn mættu á flesta nefndafundi en Samfylkingarfólk á fæsta

Sjálf­stæð­is­menn mættu að með­al­tali á flesta nefnd­ar­fundi hjá nefndum Alþingis á nýliðnu þingi, en Sam­fylk­ing­ar­þing­menn fæsta. Þetta má lesa út úr gögnum sem Píratar hafa birt.

„Því er haldið fram að Píratar mæti illa á fundi. Stöpl­arnir sýna heild­ar­fjölda nefnd­ar­funda sem þing­maður og vara­þing­menn hans mættu á,“ stendur á síð­unni sem Píratar hafa sett upp. Gögnin eru fengin af vef Alþingis.

Í gögn­unum kemur fram að hver þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins mætti að með­al­tali á 91 nefnd­ar­fund í vetur. Ásmundur Frið­riks­son mætti á flesta fundi, eða 136. Haraldur Bene­dikts­son mætti á 132 fundi og var í öðru sæti meðal sjálf­stæð­is­manna. Sá þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem mætti á fæsta fundi var Sigríður Á. Andersen, en hafa verður í huga að hún kom inn á þing sem vara­maður fyrir Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í nóv­em­ber, og var fram á vor, og kom svo inn aftur en þá fyrir Pétur Blöndal. Ragn­heiður Rík­arðs­dóttir mætti á næst­fæsta fundi, eða 52 tals­ins.

Fram­sókn­ar­þing­menn eru í öðru sæti, og mættu að með­al­tali á 88 þing­fundi hver. Páll Jóhann Pálsson ber höfuð og herðar yfir aðra þing­menn flokks­ins, mætti á 146 fundi í vetur. Næsti maður á eftir, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, mætti á 108. Sá þing­maður sem mætti á fæsta fundi var Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, hún mætti á 45 fundi.

Björt fram­tíð er í þriðja sæti á þessum lista, en að með­al­tali mætti hver þing­maður flokks­ins á 83 nefnd­ar­fundi. Björt Ólafs­dóttir mætti á flesta, eða 134 tals­ins, en for­mað­ur­inn Guð­mundur Stein­gríms­son á fæsta, 41.

Hjá Vinstri grænum mætti hver þing­maður að með­al­tali á 78 fundi. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mætti á flesta þeirra, eða 143. Ögmundur Jónasson mætti á fæsta, 49.

Píratar mættu einnig að með­al­tali á 78 fundi hver. Helgi Hrafn Gunn­ars­son mætti á 100 fundi, Jón Þór Ólafsson á 71 og Birgitta Jóns­dóttir á 62.

Sam­fylk­ingin rekur svo lest­ina, en þing­menn hennar mættu á 63 fundi hver að með­al­tali síð­ast­lið­inn þing­vetur. Guð­bjartur Hann­es­son mætti á lang­flesta fund­ina, eða 124. Næsti maður á eftir honum er Oddný Harð­ar­dóttir sem mætti á 75 fundi. Össur Skarp­héð­ins­son mætti á fæsta nefnd­ar­fundi, 32 tals­ins.

Hafa verður í huga að þing­menn geta verið í mis­mörgum nefndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár