Olíuverð hækkar um rúmlega 11 prósent

Verð á hrá­olíu hefur hækkað um rúm­lega ell­efu pró­sent í morgun, og stendur nú í tæp­lega 30 Banda­ríkja­dölum. Aðrar hrá­vörur, sem hafa verið að lækka mikið und­an­farnar vikur, hafa einnig hækkar mikið, sem og hluta­bréf í alþjóð­legum bönkum. 

Á vef Wall Street Journal segir að þessi mikla hækkun, hafi komið mörgum á óvart, og sé enn ein stað­fest­ingin á því að það sem helst ein­kenni gang efna­hags­mála í alþjóð­hag­kerf­inu í augna­blik­inu, sé mik­ill óstöð­ug­leiki. Eignir sveiflist mikið upp og niður sem bendi til þess að fjár­festa hafa ekki góða vissu um þróun mála, og færi fjár­magna stöðugt milli eigna­flokka.

Hagtölur frá mörgum af helstu mark­aðs­svæðum heims­ins, Evrópu, Japan og Kína meðal ann­ars, benda til þess að hag­vöxtur sé umtals­vert undir vænt­ingum og á fyrstu vikum árs­ins. 

Í Financial Times (FT) síð­ast­lið­inn mið­viku­dag kom fram að nú séu fjár­festar farnir að ótt­ast hið versta. Fjár­mála­kerfin séu ekki nógu burgðug til að takast á við sam­drátt­ar­skeið, og að skuldum vafnir rík­is­sjóðir, ekki síst Evr­óp­ur­landa, muni lenda í enn meiri erf­ið­leikum. Enn sem komið er eru það helst hluta­bréfa­mark­aðir sem sýna ein­kenni þess að fjár­festar ótt­ist næstu mán­uði. Hagtölur í Banda­ríkj­unum hafa verið að batna á und­an­förnum mán­uðum, og mælist atvinnu­leysi undir fimm pró­sentum þessi miss­erin, en nýjum störfum fækk­aði hins vegar nokkuð í jan­úar miðað við sama mánuð í fyrra.

Evrópu er atvinnu­leysi að með­al­tali ríf­lega tíu pró­sent, og hefur Seðla­banki Evrópu sagt að hugs­an­lega muni koma til þess að nýjum stuðn­ing­ar­að­gerðum bank­ans verið hrint í fram­kvæmd, sem miði að því að örva hag­kerfin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár