RÚV telur óljóst hverju það skili að innheimta útvarpsgjaldið eins og bifreiðagjöld

Rík­is­út­varpið seg­ist ekki sjá hvernig frum­varp sjö þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks verði til þess að auka aðhald með rekstri og dag­skrár­gerð rík­is­fjöl­mið­ils­ins. Sýn styður frum­varpið og segir fólk oft gleyma því að RÚV sé ekki ókeypis.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­út­varpið telur að greina þurfi betur nokkur atriði varð­andi frum­varp sjö þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks um breytt fyr­ir­komu­lag á inn­heimtu útvarps­gjalds, áður en hægt sé að taka afstöðu til þess. Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri segir í umsögn Rík­is­út­varps­ins að ekki sé ljóst hvernig breytt fyr­ir­komu­lag inn­heimtu nái þeim mark­miðum sem að sé stefnt.

Flutn­ings­menn frum­varps­ins telja að með breyttu formi inn­heimtu útvarps­gjalds muni eðli­legt og nauð­syn­legt aðhald að Rík­is­út­varp­inu, jafnt rekstr­ar­legu og hvað dag­skrár­gerð varðar, aukast.[links]

Þing­menn­irnir sjö lögðu fram frum­varp sitt í byrjun des­em­ber í fyrra, en Óli Björn Kárason er fyrsti flutn­ings­maður þess. Lagt er til að útvarps­gjaldið verði inn­heimt með beinum hætti tvisvar á ári og þá raf­rænt, með greiðslu­seðli í heima­banka líkt og gert hefur verið með bif­reiða­gjöld.

Í dag er útvarps­gjaldið inn­heimt sam­hliða álagn­ingu opin­berra gjalda og nemur í ár 18.300 krónum. Ekki er lagt til að inn­heimtu­upp­hæðin breyt­ist með frum­varp­inu, heldur virð­ist til­gangur frum­varps­ins fyrst og fremst vera sá að það sé sýni­legra greið­end­unum. Einnig er lagt til að upp­hæðin verði rukkuð í tvennu lagi, helm­ingur 1. jan­úar og hinn helm­ing­ur­inn 1. júlí, með eindaga hvorrar greiðslu einum og hálfum mán­uði síðar.

„Bein inn­heimta útvarps­gjalds stuðlar að betri kostn­að­ar­vit­und almenn­ings þegar kemur að tekju­öflun Rík­is­út­varps­ins, fjöl­mið­ils í almanna­þág­u,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Í umsögn Rík­is­út­varps­ins segir að ekk­ert liggi fyrir hver kostn­að­ur­inn yrði við að breyta fyr­ir­komu­lag­inu, hver ætti að bera kostnað af breyttu fyr­ir­komu­lagi inn­heimtu eða hvaða áhrif það myndi hafa á inn­heimtu og þar með tekju­grund­völl Rík­is­út­varps­ins að breyta inn­heimtu­leið­inni.

„Sömu­leiðis liggur ekk­ert fyrir um hvaða áhrif þetta hefur á skyldur Rík­is­út­varps­ins eins og þær koma fram í þjón­ustu­samn­ingi við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Nauð­syn­legt er að greina nánar fram­an­greind atriði áður en afstaða er tekin til þeirra breyt­inga á fyr­ir­komu­lagi inn­heimtu útvarps­gjalds sem þarna eru boð­aðar,“ segir í umsögn RÚV.

Skatturinn telur ákveðinn „ómöguleika“ til staðar

Frum­varpið er til með­ferðar í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd þings­ins þessa dag­ana og hafa fleiri umsagnir borist. Rík­is­skatt­stjóri, sem í dag sér um inn­heimtu útvarps­gjalds­ins, bendir á að álagn­ing útvarps­gjalds­ins ráð­ist af sömu for­sendum og álagn­ing gjalds í Fram­kvæmda­sjóð aldr­aðra.

[adspot]

Skatt­ur­inn bendir á að sökum þessa sé „í reynd ómögu­leiki“ fal­inn í þeirri breyt­ingu á gjald­dögum og ein­dögum útvarps­gjalds­ins sem lögð sé til með frum­varp­inu, ef for­sendur gjald­skyldu eigi ekki að breyt­ast líka, en í dag eru þeir und­an­þegnir greiðslu útvarps­gjalds sem hafa undir 1,87 millj­ónum króna í árs­laun.

„Til þess að áform þau sem búa að baki frum­varp­inu fengju efn­is­lega fram að ganga yrði að öllum lík­indum nauð­syn­legt að horfið yrði frá þeirri afmörkun gjald­skyldu sem tekur mið af tekju­mörkum,“ segir Skatt­ur­inn.

Sýn tekur heilshugar undir með flutningsmönnum

Umsagn­ar­beiðnir alls­herjar- og mennta­mála­nefndar voru sendar út 5. mars síð­ast­lið­inn. Sam­dæg­urs barst stutt umsögn frá Sýn þar sem sagði að „heils­hugar“ væri tekið undir með flutn­ings­mönnum frum­varps­ins.

„Með því að útvarps­gjald verði inn­heimt með beinum hætti tvisvar á ári og að meg­in­stefnu raf­rænt með greiðslu­seðli í heima­banka líkt og gert hefur verið með bif­reiða­gjöld mun kostn­að­ar­vit­und almenn­ings gagn­vart gjald­heimt­unni aukast og hún verða gagn­særri. Það er algengur mis­skiln­ingur að ekk­ert sé greitt fyrir afnot af dag­skrá RÚV,“ segir í umsögn Sýnar, sem Páll Ásgríms­son aðal­lög­fræð­ingur fyr­ir­tæk­is­ins skrifar undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár