Sjö þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja breyta fyrirkomulagi við innheimtu útvarpsgjalds

Óli Björn Kárason og sex sam­flokks­menn hans telja að bein inn­heimta útvarps­gjalds stuðli „að betri kostn­að­ar­vit­und almenn­ings þegar kemur að tekju­öflun Rík­is­út­varps­ins, fjöl­mið­ils í almanna­þágu.“

Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson eru á meðal þeirra þingmanna sem eru á frumvarpinu.
Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson eru á meðal þeirra þing­manna sem eru á frum­varp­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Sjö þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp um að breyta fyr­ir­komu­lagi við inn­heimtu útvarps­gjalds sem á að standa undir fjár­mögnun á stærstum hluta af starf­semi RÚV.

Í frum­varp­inu er lagt til að gjaldið verði inn­heimt með beinum hætti tvisvar á ári og að meg­in­stefnu raf­rænt með greiðslu­seðli í heima­banka líkt og gert hefur verið með bif­reiða­gjöld. Til­kynn­ing um álagn­ingu mun sam­kvæmt þessu telj­ast birt ein­stak­lingi eða lög­að­ila þegar hann getur nálg­ast hana í póst­hólfi á vef­svæð­inu Ísland.is. Álagn­ingin telst bind­andi frá og með þeim degi.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að með þessu verði „horfið frá því að inn­heimta útvarps­gjaldið sam­hliða álagn­ingu opin­berra gjalda en aðrir þættir varð­andi gjald­skyldu, und­an­þágur frá gjald­skyldu og upp­hæð gjalds­ins verði óbreyttir. Rík­is­skatt­stjóri og inn­heimtu­menn rík­is­sjóðs sjái um inn­heimtu gjalds­ins.“

Því er ekki verið að leggja til að lög­þvinguð áskrift að RÚV í formi útvarps­gjalds verði hætt, heldur telja flutn­ings­mennir að með beinni inn­heimtu auk­ist eðli­legt og nauð­syn­legt aðhald að RÚV, jafnt rekstr­ar­lega og fag­lega við dag­skrár­gerð. „Bein inn­heimta útvarps­gjalds stuðlar að betri kostn­að­ar­vit­und almenn­ings þegar kemur að tekju­öflun Rík­is­út­varps­ins, fjöl­mið­ils í almanna­þágu.“

[adspot]Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Óli Björn Kárason. Með­flutn­ings­menn eru Brynjar Níelsson, Njáll Trausti Frið­berts­son, Jón Gunn­ars­son, Bryndís Har­alds­dóttir, Ásmundur Frið­riks­son og Vil­hjálmur Árnason.

RÚV telur sig vanta 600 milljónir á næsta ári

RÚV stendur að óbreyttu frammi fyrir umtals­verðum nið­ur­skurði á næsta ári. Í umsögn sem Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri sendi inn til fjár­laga­nefndar um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp sagði að aug­lýs­inga­tekjur RÚV verð­i um 300 millj­­ónum króna lægri á árinu 2020 en áætlað var, beinn auk­inn kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins vegna hlut­verks RÚV í COVID-19 far­aldr­inum er hátt í 80 millj­­ónir króna og geng­is­­lækkun og aðrir liðir hafa hækkað fjár­­­magnsliði fyr­ir­tæk­is­ins um 90 millj­­ónir króna.

Rekstr­­ar­n­ið­­ur­­staða RÚV verður því 470 millj­­ónum krónum verri í ár en stefnt var að.

[links]Staðan á næsta ári, 2021, verður mun alvar­­legri sögn Stef­áns. ­Gert ráð fyrir því í fyr­ir­liggj­andi fjár­­laga­frum­varp­i að fram­lög til RÚV úr rík­­is­­sjóði verði lækkuð um 310 millj­­ónir króna milli ára og verði rúm­­lega 4,5 millj­­arðar króna. Þau voru rúm­­lega 4,8 millj­­arðar króna á yfir­­stand­andi ári.

Heild­­­ar­fjár­­­heim­ild til fjöl­miðla, sem fjár­­­mögnuð er með að mestu með inn­­heimtu útvarps­­gjalds, er áætluð fimm millj­­­arðar króna. Það þýðir að 484 millj­­­ónir króna munu fara í eitt­hvað annað RÚV. Þar af fara 92 millj­­­ónir króna í rekstur Fjöl­miðla­­­nefndar en það sem út af stend­­­ur, 392 millj­­­ónir króna, er ætl­­­aður stuðn­­­ingur við einka­rekna fjöl­miðla.

Stefán sagði að nettó áhrif af fram­an­­greindri lækkun útvarps­­gjalds­ins yrðu mun meiri en 310 millj­­ónir króna í ljósi þess að RÚV líkt og aðrir standi frammi fyrir verð­lags­hækk­­unum á næsta ári í sínum rekstri, þar á meðal vegna nýrra kjara­­samn­inga. Hann taldi að það ætti að meta áhrifin á um 400 millj­­ónir króna vegna þessa. Stefán sagði auk þess að áfram sé gert ráð fyrir veru­­legum sam­drætti í aug­lýs­inga­­tekjum á næsta ári. „Árið 2021 mun því í heild vanta yfir 600 m. kr. í fjár­­­mögnun RÚV,“ skrif­aði Stefán í umsögn sína.

Fyr­ir­­sjá­an­­legt væri að mæta þyrfti þess­ari stöðu með breyt­ingum og sam­drætti í dag­­skrár­­gerð og frétta­­þjón­­ustu RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár