Eldri konur af erlendum uppruna „ósýnilegar“ í umræðunni og oft einangraðar

Eldri konur af erlendum upp­runa hér á landi eru oft ein­angr­aðar og því lítið vitað um ofbeldi eða áreitni sem þær gætu hafa orðið fyrir. Sjald­gæft er að þær leiti sér aðstoðar vegna heim­il­is­of­beldis.

Erfitt getur verið fyrir eldri innflytjendur að finna upplýsingar um réttindi aldraðra og þjónustu við þá.
Erfitt getur verið fyrir eldri inn­flytj­endur að finna upp­lýs­ingar um rétt­indi aldr­aðra og þjón­ustu við þá. Mynd: Pexels

Eldri konur af erlendum upp­runa sem eiga heima á Íslandi hafa ekki fengið mikla athygli í umræðu um inn­flytj­endur og fáar, ef nokkrar, rann­sóknir eru til sem snúa að þeim. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var af Háskóla Íslands í sam­starfi við önd­veg­is­verk­efnið Þver­þjóð­leiki og hreyf­an­leiki á Íslandi að beiðni félags­mála­ráðu­neyt­is­ins. Unnur Dís Skapta­dóttir og Kristín Lofts­dótt­ir, pró­fess­orar í mann­fræði við HÍ, unnu skýrsl­una.

Við­mæl­endur skýrslu­höf­und­anna bentu á að eldri konur væru „eig­in­lega ósýni­legar“ í umræð­unni um inn­flytj­endur. Þetta væri stækk­andi hópur sem gæti af ýmsum ástæðum verið í við­kvæmri stöðu og því nauð­syn­legt að beina sjónum að þeim sér­stak­lega.

Lítið vitað um ofbeldi eða áreitni sem eldri konur verða fyrir

Við­mæl­endur sem ræddu um þennan hóp bentu á að eldri konur af erlendum upp­runa væru oft ein­angr­aðar og því lítið vitað til dæmis um ofbeldi eða áreitni sem þær gætu hafa orðið fyrir. Sjald­gæft væri að þær leit­uðu sér aðstoðar vegna heim­il­is­of­beldis.

[links]Við­mæl­andi benti á að þær kæmu oft til Íslands í gegnum fjöl­skyldu­sam­ein­ingu til að aðstoða á heim­ili barna sinna og gæta barna­barna. Við­mæl­and­inn benti á að þær töl­uðu oft­ast hvorki íslensku né ensku og þær sæktu ekki þjón­ustu á vegum vel­ferð­ar­sviðs, svo sem að fá heimsendan mat, ferða­þjón­ustu, dagdvöl eða heima­þjón­ustu. Vegna þess hversu lítið er vitað um hóp­inn sé óvíst hvort ástæður þess séu skortur á upp­lýs­ingum eða aðrar ástæður, til dæmis að eldra fólkið dvelji á heim­ilum barna sinna sem sjái um það.

Margþætt vandamál varðandi framfærslu

Enn fremur benti við­mæl­andi á að inn­flytj­endur hefðu oft ekki búið nægi­lega lengi á Íslandi til að fá fullar greiðslur elli­líf­eyris eða örorku­líf­eyris og fengju mögu­lega engar greiðslur frá upp­runa­landi sínu. Slík búsetu­skerð­ing hefði verið mjög mikið vanda­mál fyrir konur af erlendum upp­runa á elli­líf­eyr­is­aldri.

Jafn­framt nefndi þessi við­mæl­andi að ef fólk fengi synjun á elli­líf­eyri eða mikla skerð­ingu á greiðslum frá Trygg­inga­stofnun leit­aði það til sveit­ar­fé­lag­anna. Það gæti hins vegar verið snúið því að sveit­ar­fé­lögin ósk­uðu eftir gögnum frá heima­land­inu til þess að sanna að engar greiðslur bær­ust þaðan. Það væri ekki hlaupið að því að fá slíka stað­fest­ingu. Yfir­leitt fengi fólk ekki neinar greiðslur frá upp­runa­land­inu en gæti þó ekki sýnt fram á það.

Verið að halda fólki í fátækt

Annar við­mæl­andi benti á að í sumum til­fellum þyrftu hjálp­ar­sam­tök að aðstoða eldra fólk í þess­ari stöðu þar sem það byggi við fátækt. „Það er eitt sem mér finnst skipta máli – og þá er ég ekki bara að tala um erlendar konur – en fólk sem flytur hingað til lands, þegar það kemst á eft­ir­launa­aldur, þá fær það til dæmis ekki fullan elli­líf­eyri, þannig að þarna er verið að halda fólki í fátækt,“ sagði við­mæl­and­inn.

Einn við­mæl­and­inn nefndi að erfitt gæti væri fyrir eldri inn­flytj­endur að finna upp­lýs­ingar um rétt­indi aldr­aðra og þjón­ustu við þá vegna þess að það væri flókið. Mikið af upp­lýs­ing­unum og umsókn­ar­blöðum væri á raf­rænu formi og á íslensku. Við­mæl­andi nefndi að hún sjálf hefði þurft að sækja um sjúkra­dag­pen­inga og henni hefði fund­ist það erfitt; samt hefði hún oft aðstoðað fólk við það áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár