Þorgerður segir „ógn við lýðræðið“ hafa falist í skilaboðum frá framkvæmdastjóra SFS

Formaður Við­reisnar segir að „ógn við lýð­ræðið“ felist í þeim skila­boðum frá fram­kvæmda­stjóra Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi að það hafi verið „sér­kenni­legt“ af frétta­stofu Stöðvar 2 að ræða við hana í síð­ustu viku um sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir að „ógn við lýð­ræðið“ hafi falist í skila­boðum sem Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir fram­kvæmda­stjóri SFS setti fram í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í síð­ustu viku.

Í þeirri grein sagði Heiðrún Lind að það hefði verið „sér­kenni­legt“ af frétta­stofu Stöðvar 2 að velja Þorgerði sem við­mæl­anda um skoð­ana­könnun Maskínu sem fjall­aði um áhyggjur lands­manna af sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi, þar sem stefna Við­reisnar í mála­flokknum sé til þess fallin að auka enn sam­þjöppun í grein­inni.

Þor­gerður Katrín svarar þessum ummælum og skrifar í Frétta­blaðið í dag að Heiðrún Lind hafi fært frétta­mönnum þau skila­boð „að hátt­semi þeirra sé á­litin sér­kenni­leg ef þeir tala við stjórn­mála­menn, sem berg­mála ekki mál­flutn­ing SFS“.

„Hér eru sterk­ustu hags­muna­sam­tök lands­ins að beita ó­beinum á­hrifum til að loka fyrir frjálsa hugsun. Það er ógn við lýð­ræðið,“ skrifar Þor­gerður Katrín.

Stefna Viðreisnar sé til þess fallna að auka samþjöppun

Í grein sinni í Frétta­blað­inu í síð­ustu viku sagði Heiðrún Lind að Viðreisn hefði „gengið hart fram með stefnu um inn­köllun afla­heim­ilda og end­ur­út­hlutun þeirra með upp­boðum“ og að þekkt áhrif slíkra ráð­staf­ana væru „aukin sam­þjöppun, þar sem hinir stærri og fjár­hags­lega sterku bera sigur úr býtum og heim­ildir hinna smærri fjara út.“

Heiðrún Lind sagði að það væri „und­ar­legt“ að frétta­maður Stöðvar 2 hefði ekki spurt Þorgerði Katrínu að því hvernig stefna Við­reisnar færi saman við nið­ur­stöðu könn­unar Maskínu, um áhyggjur af sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi í ljósi kaupa Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi.

[adspot]

„Flokk­ur­inn boðar jú skýr­lega að auka enn á áhyggjur fólks af sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi. Næst verður kannski spurt um hvort fólk hafi miklar eða litlar áhyggjur af auk­inni sam­þjöppun og byggða­röskun vegna upp­boða á afla­heim­ildum. Ég hygg að flestir hafi áhyggjur af því, ef frá eru taldir kjós­endur þess flokks sem bein­línis hefur það á stefnu­skránni að flýta sam­þjöppun,“ skrif­aði Heiðrún Lind.[links]

Segir SFS tala fyrir dulbúnum ríkisstuðningi

Þor­gerður Katrín segir í grein sinni í dag að Heiðrún Lind reyni með þessu að halda því fram að tví­skinn­ungur felist í stefnu Við­reisnar í sjáv­ar­út­vegs­málum, sem felst í því að setja hluta afla­hlut­deilda á frjálsan markað og þrengja um leið mögu­leika stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja til að auka afla­hlut­deild sína og fara yfir skil­greind mörk.

Þvert á móti segir Þor­gerður Katrín tví­skinn­ung­inn fel­ast í afstöðu SFS. „Þau segja að vernda verði litlu fyrir­tækin með ó­hóf­lega lágu auð­linda­gjaldi en leggj­ast síðan al­farið gegn því að hindrað verði að stóru fyrir­tækin geti snið­gengið reglur um há­marks afla­hlut­deild og að skil­grein­ingar á tengdum aðilum verði þrengdar,“ segir Þor­gerður Katrín og bætir við að SFS vilji að „þorri sjávar­út­vegs­fyrir­tækja greiði ó­hóf­lega lágt gjald fyrir einka­rétt sinn til að nýta auð­lind­ina. Því ann­ars sé jú ör­fáum lakast settu fyrir­tækj­unum hætta búin“.

„Þetta er það sem kallað er pils­falda­kap­ítal­ismi. Annars vegar er þetta dul­búinn ríkis­stuðn­ingur og hins vegar skálka­skjól til að af­saka að þorri at­vinnu­grein­ar­innar greiði eig­endum auð­lind­ar­innar, þjóð­inni sjálfri, ekki rétt­látt gjald fyrir einka­rétt­inn,“ skrifar Þor­gerður Katrín, sem segir SFS vera bæði með og á móti mark­aðs­bú­skap.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár